Fréttablaðið - 24.09.2004, Blaðsíða 9
9FÖSTUDAGUR 24. september 2004
Uppreisnarmenn:
Myndu fagna
þvingunum
SÚDAN, AP Eina leiðin til að stöðva
ógnaröldina í Darfur er að Samein-
uðu þjóðirnar beiti Súdan viðskipta-
þvingunum eða öðrum refsiaðgerð-
um, sögðu forystumenn Frelsishers
Súdans, helstu uppreisnarhreyfing-
arinnar sem starfar í vesturhluta
Súdans.
„Þvinganir verða til þess að auka
þrýsting á stjórnvöld og verða til
þess að koma vitinu fyrir ráða-
menn,“ sagði Sharif Harir, einn af
leiðtogum uppreisnarmanna. „Rík-
isstjórnin notar olíuauðinn til að
kaupa vopn og flugvélar til að drepa
okkar fólk, því styð ég refsiaðgerð-
irnar,“ sagði Adam Shogar, annar
forystumaður uppreisnarmanna. ■
Útivist í Haukadalsskógi:
Skógarstígur fyrir hjólastóla
ÚTIVIST Um síðustu helgi voru opn-
aðir skógarstígar í Haukadals-
skógi sem sérstaklega eru gerðir
með aðgengi hreyfihamlaðra í
huga. Stígarnir eru vel færir
hjólastólum, breiðir og hæðar-
munur eins lítill og mögulegt er. Í
Haukadalsskógi, steinsnar frá
Geysi og Gullfossi, er nýtt ferða-
mannasvæði og ráðgert að halda
áfram með lagningu stíga sem eru
á flatlendi í Haukadal.
Gerð stíga sem færir eru
hreyfihömluðum er samstarfs-
verkefni Sjálfsbjargar á Suður-
landi og Skógræktar ríkisins sem
hófst sumarið 2002 og var lokið
við fyrsta áfanga nú í sumar.
„Markmið er að gera öllu fólki
mögulegt að skoða íslenska skóga,
líka þeim sem aðeins geta ferðast
um í hjólastól,“ segir Hreinn Ósk-
arsson, skógarvörður Skógræktar
ríkisins á Suðurlandi. Almennt á
fólk í hjólastól þess ekki kost að
ferðast um skógarstíga vegna
þess hve yfirborð þeirra er gróft,
þeir mjóir eða halli of mikill.
Helstu styrktaraðilar verkefn-
isins eru Pokasjóður, Svæðis-
vinnumiðlun Suðurlands, Ferða-
málaráð, Landgræðslusjóður,
Bændasamtök Íslands og sumar-
vinna Landsvirkjunar. Þá unnu
jafnframt nemendur Menntaskól-
ans að Laugarvatni og Fjölbrauta-
skóla Suðurlands á Selfossi við
stíginn í sjálfboðavinnu. ■
Ríkisreikningur Grikkja:
Bókhaldið
rannsakað
BRUSSEL, AP Evrópusambandið ætl-
ar að láta rannsaka bókhalds-
aðferðir grískra stjórnvalda.
Ástæðan er sú að í ljós kom að út-
reikningar þeirra á fjárlagahalla
síðustu ára voru fjarri lagi svo
nam milljörðum evra, andvirði
hundraða milljarða króna. Munar
svo miklu að óvíst er hvort Grikk-
ir hefðu fengið aðild að mynt-
bandalagi ESB hefðu réttar upp-
lýsingar legið fyrir þegar ákvörð-
un var tekin um það.
Til að uppfylla skilyrðin urðu
Grikkir að sýna fram á að fjár-
lagahalli væri innan við þrjú pró-
sent af landsframleiðslu. Það
gerðu þeir en nú er ljóst að bók-
haldið var skrautlegt og fjárlaga-
hallinn meiri en Grikkir sögðu. ■
Rússar í Lettlandi:
Enn neitað
um réttindi
LETTLAND, AP Ríkisborgarar Evr-
ópusambandsins fá að greiða at-
kvæði í sveitarstjórnarkosningum
en ekki nær 500 þúsund lands-
menn af rússneskum uppruna
sem hafa árum saman búið í Lett-
landi, samkvæmt lögum sem lett-
neska þingið hefur nýverið sam-
þykkt.
Til að fá atkvæðisrétt í sveitar-
stjórnarkosningum þurfa ríkis-
borgarar aðildarríkja ESB að vera
búsettir í landinu. Það dugar hins
vegar ekki um hálfri milljón
Rússa sem er búsett í landinu en
nýtur ekki lettnesks ríkisborgara-
réttar. Flestir fluttu þeir til Lett-
lands meðan landið var hluti Sov-
étríkjanna en hefur verið neitað
um lettneskan ríkisborgararétt. ■
LÍKUM STURTAÐ
Líkum var sturtað í fjöldagrafir í borginni
Gonaives.
Hörmungar á Haítí:
Barist um
matvæli
HAÍTÍ, AP Til átaka kom sums stað-
ar þegar Haítíbúar börðust um
mat og drykkjarvatn, sem er af
skornum skammti eftir að hita-
beltisstormurinn Jeanne gekk
yfir landið. Rúmlega 1.100 manns
létust af völdum stormsins og
1.250 manns er enn saknað. Því
má gera ráð fyrir að tala látinna
hækki enn.
Um 250.000 manns misstu heim-
ili sín af völdum fárviðrisins og
flóða sem fylgdu því. Unnið var að
því í gær að grafa lík fórnarlamba
stormsins í fjöldagröfum. ■
SKÓGARSTÍGURINN OPNAÐUR
Hreinn Óskarsson, skógarvörður á Suðurlandi, og Svanur Ingvarsson, formaður Sjálfsbjarg-
ar á Suðurlandi, helstu hvatamenn þess að til yrðu göngustígar fyrir hreyfihamlaða í
Haukadalsskógi, opnuðu nýja stíginn með viðhöfn.