Fréttablaðið - 24.09.2004, Blaðsíða 11
11FÖSTUDAGUR 24. september 2004
inganna. „Ég hef hvatt báða aðila
til að hugleiða hvernig þeir geti
nálgast hvorn annan,“ segir
Ásmundur.
Eiríkur Jónsson gerði grein
fyrir stöðu kjaradeilnanna á
fundi með kennurum í verkfalls-
húsi þeirra í Borgartúni í fyrra-
kvöld. Hann segir samninga-
nefnd kennara hafa fengið skýr
skilaboð frá félagsmönnum.
„Við förum ekki frá samn-
ingaborðinu fyrr en við höfum
náð markmiðum okkar varðandi
kennsluskyldu og verkstjórnar-
þáttinn, ásamt því að svokallaður
launapottur verði færður inn í
grunnlaun. Þetta eru ófrávíkjan-
legar kröfur,“ segir Eiríkur, sem
fundar ekki fyrr en tilboð
sveitarfélaganna berst.
gag@frettabladid.is
Vinstri grænir í Kópavogi:
Segja kjör
kennara til
skammar
KJARAMÁL Flokksfélag Vinstri
grænna í Kópavogi hefur
samykkt ályktun þar sem hvatt
til þjóðarsáttar um kjarabætur
til handa kennurum.
„Flokksfélagið harmar að til
verkfalls hafi komið og skorar
á deiluaðila að komast að sam-
komulagi hið allra fyrsta,“
segir í ályktuninni. „Kjör kenn-
ara eru til skammar í okkar
þjóðfélagi á sama tíma og sí-
fellt meiri ábyrgð er velt yfir á
stéttina. Foreldrar og samfélag
gera kröfur um góða skóla og
þá verða kjör starfsfólksins að
vera í samræmi við kröfurnar.
Stjórn VG í Kópavogi skorar
á stjórnvöld sveitarstjórna og
landsmála að taka höndum sam-
an með verkalýðsfélögum um
nýja þjóðarsátt. Þjóðarsátt um
réttlát laun til handa kennur-
um.“ ■
VIÐRÆÐUR EFTIR HELGI Kjara-
samningur Samtaka ferða-
þjónustunnar og Samtaka at-
vinnulífsins við Félag leiðsögu-
manna rennur út í lok október.
Viðræður milli aðila hefjast í
næstu viku.
Flýja heimili sín:
Óttast um
öryggi sitt
BELFAST, AP Rúmlega 1.200 norður-
írskar fjölskyldur flýðu heimili
sín í fyrra af ótta við árásir kaþ-
ólikka eða mótmælenda. Þetta
kemur fram í ársskýrslu stofnun-
ar sem sér um að aðstoða fórnar-
lömb átaka við að finna sér nýtt
heimili.
Meðal þeirra sem sóttu um að-
stoð stofnunarinnar voru fjöl-
skyldur nokkur hundruð fanga-
varða sem óttuðust um öryggi sitt
eftir að í ljós kom að Írski lýðveld-
isherinn hafði upplýsingar um
nöfn þeirra og heimili. Írski lýð-
veldisherinn myrti 20 fangaverði
áður en vopnahlé tók gildi 1997. ■
BRUSSEL, AP Líkur á að Evrópusam-
bandið hefji aðildarviðræður við
Tyrki þykja heldur hafa aukist
eftir fund Recep Erdogan, forsæt-
isráðherra Tyrklands, og Günther
Verheugen, sem fer með stækk-
unarmál í framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins.
„Þær fullvissanir sem ég fékk
gera mér kleift að gera mjög
skýrar tillögur,“ sagði Verheugen,
sem gefur skýrslu í næsta mánuði
um hvort hefja eigi aðildarvið-
ræður við Tyrki. Hann vildi ekki
segja hverjar tillögur sínar yrðu
en þó mátti ráða af orðum hans að
þær yrðu á þann veg að hefja ætti
viðræður við Tyrki.
„Það eru ekki fleiri hindranir í
veginum núna,“ sagði Verheugen
eftir að Erdogan hét því að fá
samþykktar lagabreytingar um
breytingar á refsi- og dómslög-
gjöf Tyrklands. Slíkar umbætur
eru nauðsynlegar til að Evrópu-
sambandið samþykki að hefja
viðræður við Tyrkland. Erdogan
sagði að boðað yrði til sérstaks
aukafundar í tyrkneska þinginu
á sunnudag til að samþykkja um-
bæturnar. ■
■ KJARAMÁL
Viðræður um aðild Tyrkja að ESB hefjast fljótlega:
Síðasta hindrunin úr vegi
ERDOGAN HJÁLPAR PRODI
Tyrkneski forsætisráðherrann að-
stoðaði forseta framkvæmdastjórn-
arinnar, sem átti í vandræðum með
hátalarastandinn sinn.
EIRÍKUR JÓNSSON
Segir breytingar á kennsluskyldu, verk-
stjórnarþætti og launapotti ófrávíkjanlegar
kröfur.