Fréttablaðið - 24.09.2004, Blaðsíða 24
Húsnæðiskerfið hér er óskapnaður
sem á engan sinn líka, enda tekur
það öll mið af Bjarti í Sumarhús-
um. Það er einungis lánakerfi sem
lánar fé gegn ábyrgð þriðja aðila.
Geti fólk ekki borgað er lausnin
nauðungaruppboð og útburður.
Leiguíbúðir voru strax bannaðar í
þessu kerfi því allir áttu að vera
sjálfstæðir bændur! Afleiðingin er
skuldsettasta þjóð í heimi og skipu-
lagsrugl vegna flatrar útþenslu
borgarinnar sem veldur því að
borgin þarf að skera niður þjón-
ustu eins og almenningssamgöngur
og sorphirðu! Flutningar fólks til
borgarinnar voru kallaðir flótti og
fólkið meðhöndlað sem flóttamenn.
Enn hefur þetta fólk ekki fullan
kosningarétt! Borgin hefur byggst
upp af fólkinu sjálfu í andstöðu við
stjórnvöld. Leiguíbúðir voru og
eru aukaíbúðir einstaklinga, hana-
bjálkar, kjallarar og bílskúrar og
yfirleitt skammtímaleiga. Eigandi
gat hent fólkinu út eins og öðru
rusli, enda giltu hér engin húsa-
leigulög fyrr en undirritaður stofn-
aði Leigjendasamtökin fyrir 26
árum til að berjast gegn illri með-
ferð á fólki. Er verkamannabú-
staðir risu um 1970 eignaðist borg-
in nokkur hundruð skuldlausar
íbúðir og leigði fátækasta fólkinu,
mest öryrkjum. Er „félagshyggju-
öflin“ náðu völdum í borginni seldu
þau íbúðirnar, hækkuðu leiguna og
hófu útburð á bjargarlausu fólki og
enn er haldið áfram með þátttöku
Vinstri grænna og finnst þá
mörgum fokið í flest skjól. Nýlega
urðu blaðaskrif vegna útburðar á
Jóhannesi Bjarnasyni sem barist
hefur við krabba í 16 ár. Reynt var
að hafa af honum sjálfsvirðinguna
með því að afneita sjúkdómnum og
gera hann að ærulausum róna! Það
er rétt hjá Fréttablaðinu: Útburður
skapar stærri vanda en honum var
ætlað að leysa. Jóhannes var raun-
ar borinn út strax við fæðingu því
móðirin afneitaði honum, sagði
föðurinn hafa nauðgað sér. Hann
var ættleiddur strax en 12 ára
gamall hafði hann misst báða
fósturforeldrana og stóð þá einn í
heiminum. Barnaverndarnefnd
sótti hann og lokaði hann inni í
tukthúsinu „svo hann týndist ekki.“
Hann var svo sendur á Upptöku-
heimili ríkisins í Breiðuvík. Þaðan
kom hann unglingur og fór strax að
vinna, eignaðist konu og 4 börn.
Konan yfirgaf síðar heimilið og
skildi hann einan eftir með börnin.
Jóhannes vann fyrir sér og börnun-
um þar til krabbinn kom í veg
fyrir að hann gæti unnið. Flestum
þykir víst nóg að berjast við illvíg-
an sjúkdóm, þótt annað bætist ekki
við. Jóhannes Bjarnason er vel
gerður maður sem má kannski sjá
af því að hann skuli enn vera uppi-
standandi þrátt fyrir öll spörkin
frá samfélaginu. Það er til nokkuð
sem heitir samfélagsábyrgð og það
er Félagsþjónustunni til skammar
að hafa ekki leyst þetta mál farsæl-
lega fyrir löngu. Opinber húsnæð-
isstefna getur ekki haft annað
markmið en að tryggja öllum við-
unandi húsnæði. Jóhannes Bjarna-
son gæti sagt eins og Bólu-Hjálm-
ar: „Haf þú Akrahreppur grey
heila þökk fyrir meðferðina.“ ■
Nú að stólaskiptum afloknum
verður spennandi að sjá hvað
framsóknarmenn með forystu
ætla að gera í málefnum
táknmálsins og heyrnarlausra al-
mennt. Þeim til upplýsinga um
málefnið get ég sagt það að í
þessum málaflokk hafa sjálf-
stæðismenn skilið eftir sig
sviðna jörð. Þeir hafa einfald-
lega slökkt lífsneistann í heyrn-
arlausu fólki til þess að lifa og
hrærast í íslensku þjóðfélagi til
jafns við aðra þjóðfélagsþegna.
Þeir hafa útilokað heyrnarlausa
frá því að fá sömu atvinnutæki-
færi, og svipt þá möguleika að
taka þátt í lífsgæðakapphlaupinu
af sama móð og aðrir landsmenn
eru að gera núna. Þeir hafa sett
heyrnarlausa og táknmálið í
félagslega einangrun á valda-
tíma sínum. Máli mínu til stuðn-
ings gæti ég svosem farið langt
aftur í tímann og nefnt hina
margfrægu nefnd sem núver-
andi umhverfisráðherra úr röð-
um sjálfstæðismanna gegndi for-
mennsku, sú formennska stóð í 6
ár án þess svo mikið að koma ein-
um staf í orð eða framkvæmd
heyrnarlausum til hagsbóta, eins
og megintilgangur nefndarinnar
var í upphafi. En ég held það taki
því varla að fara svo langt aftur,
það er of sárt að vera að nefna og
rifja upp öll hin sviknu loforð.
Mér nægir það eitt að nefna nú-
verandi stöðu.
Staðan í dag er þannig að
heyrnarlausir fá ekki túlk í at-
vinnuviðtal. Þeir fá ekki túlk til
að taka þátt í tómstunda- eða
íþróttastarfi barna sinna. Þeir fá
ekki túlk til að kaupa og selja
íbúð. Þeir fá ekki túlk til að fara
til endurskoðanda. Þeir fá ekki
túlk til að sinna áhugamálum
sínum og fræðast meira um þau.
Þeir fá ekki túlk til að fara til
lögfræðings og leita réttar síns
ef þeim finnst stjórnvöld eða
aðrir vega illa að þeim. Þeir fá
ekki túlk til að geta kynnst fjöl-
skyldu sinni eða tekið þátt í gleði
þeirra og sorg á þeim stundum
sem við á. Þeir fá ekki túlk til
þess að leita að sínu innra sjálfi
eins og hver maður getur. Ég
þarf ekki að útlista nákvæmlega
hvað túlkur gerir og er, þjóðin er
nú þegar upplýst um þau mál.
Allt þetta er nú ekki vegna þess
að skortur er á túlkum, heldur
vegna þess að fyrrverandi for-
ystan hefur hunsað óskir heyrn-
arlausra um að fé til félagslegrar
túlkunar verði aukið, þeir hafa
jafnvel hunsað frumvarp til laga
um að táknmálið verði gert að
fyrsta máli heyrnarlausra,
heyrnarskertra og daufblindra.
Þeir hafa líka hunsað textunar-
frumvarp sem ætlað er að stuðla
að því að stórbæta upplýsingar-
aðgengi 10% þjóðarinnar. Sam-
félag heyrnarlausra og tákn-
málið er nú orðið afar seinþreytt
á að vera snuprað af ráðandi
stjórnvöldum sí ofan í æ.
Ég get ekki hætt að skrifa fyrr
en ég er búin að nefna það sem
forsætisráðherra lofaði opinber-
lega í mars 2003 þegar heyrnar-
lausir mættu í Alþingishúsið að
mótmæla þessu sama og ég er að
gera núna. Hann lofaði að stofn-
uð yrði nefnd sem ætti að heita
Nefnd um aðgerðaráætlun ríkis-
stjórnarinnar í málefnum heyrn-
arlausra. Ekkert bólar á þeirri
nefnd. Í apríl 2004 þegar mér
auðnaðist að fá fund um málefni
heyrnarlausra og táknmálsins
með þáverandi forsætisráðherra
nefndi hann þessa nefnd aftur og
ætlaði að stofna hana. Enn sem
komið er bólar ekkert á henni, og
reikna ég með að það verði varla
í bráð. Nú er komið að framsókn-
armönnum. Stóra spurningin er:
Hvað ætlið þið að gera í málefn-
um heyrnarlausra og táknmáls-
ins? Þau mál eru svo sannarlega
ekki í góðum farvegi eins og
dæmin sýna. Ætlið þið að rétta
hlut táknmálsins í íslensku
samfélagi eða ekki? Ég ráðlegg
ykkur að koma þessum málum á
hreint sem fyrst og gera það í
fullri samvinnu við heyrnar-
lausa, táknmálsnotendur sjálfa,
gleymið forræðishyggjunni um
stund. Þetta er heilbrigt fólk með
heilbrigðar skoðanir á þessum
málum.
Höfundur er varaþingmaður
Frjálslynda flokksins í SV-kjör-
dæmi.
24. september 2004 FÖSTUDAGUR24
Útburðir mannlífsins ýlfra þar hátt
Fyrir um 3 árum fóru þroskaþjálf-
ar í verkfall í um sex vikur. For-
eldrar fatlaðra barna þurftu í
flestum tilvikum að hafa börnin
heima vegna verkfallsins. Núna
eru kennarar farnir í verkfall og
aftur verða foreldrar fatlaðra
barna að upplifa verkfalls-
martröðina. Það sem gerir þetta
svo erfitt fyrir börn með fötlun er
að þau þola illa, og sum hver alls
ekki, þá röskun sem verður á
þeirra daglegri rútínu sem er
þeim svo nauðsynleg til að höndla
tilveruna. Nú eru sumir kannski
farnir að hugsa: „Æ, á nú enn einu
sinni að fara að tala um hvað þessi
fötluðu börn eiga erfitt.“ Ég bið
það fólk að reyna að setja sig í
spor foreldra fatlaðra barna sem
enn á ný þurfa að taka frí í vinnu
eða skóla til að vera með börnin
heima.
Ég hef heyrt að sumir foreldr-
ar annarra barna hafi komið sér
saman um að skiptast á að passa
fyrir hvort annað, jafnvel með 3-4
börn yfir daginn. Slíkt kæmi
aldrei til greina fyrir foreldra
með fötluð börn þar sem þau börn
þurfa oft manninn með sér. Sum
fyrirtæki hafa líka boðið upp á
dagvistun fyrir börn starfs-
manna. Ég leyfi mér að efast um
að foreldrar fatlaðra barna, ef
þeir vinna hjá þessum fyrirtækj-
um, geti nýtt sér þessa umdeildu
þjónustu því börn með fötlun
þurfa sérhæfða þjónustu sem
slík bráðarbirgðarþjónusta gæti
aldrei veitt. Fyrir utan er svona
þjónusta ekki til að flýta fyrir að
samningar leysist, þar sem þetta
minnkar áhrif verkfalls til muna
og getur leitt til þess að það verði
lengur en ella. Og á hverjum
kemur það síðan harðast niður á?
Að sjálfsögðu lendir þetta verst á
börnum sem falla ekki inn í þetta
þrönga „norm“ sem þjóðfélagið
hefur skapað. Í grunnskólum og
sérskólum starfa þroskaþjálfar
og stuðningsfulltrúar sem ekki
eru í verkfalli og verða því að
sjálfsögðu að mæta til vinnu. En
börnin mega samt ekki mæta í
skólann þar sem kennarar bera
ábyrgð á kennslunni og aðrir
mega ekki grípa inn í þau störf.
Þar eru engar undantekningar
leyfðar. Þroskaþjálfar og stuðn-
ingsfulltrúar mæta því í vinnuna í
tóma skólana til að gera ekki neitt.
Það er eitthvað ekki rétt við þetta,
eitthvað svo dapurt og rangt og
alltaf bitnar þetta á þeim sem
minnst mega sín. En svona er
þetta bara í verkföllum og við
verðum víst bara að kyngja því.
Við hjónin eigum fatlað barn
og erum bæði í Kennaraháskólan-
um í þroskaþjálfa- og grunnskóla-
námi, þar sem 80% mætingar-
skylda er í öllum fögum. Við erum
bæði á námslánum. Ef við mætum
ekki í skólann dettum við út úr
kúrsum, fyrir utan er námið hjá
okkur báðum þannig að stór hluti
námsefnisins er kennt í tímunum
og stuðst við lesefni. Með öðrum
orðum dugar ekki „bara“ að lesa
skruddurnar. Ef við náum ekki
75% af fögunum þá fáum við ekki
full námslán, sem þýðir að við
getum ekki stundað skólann. Við
erum nýbúin að ganga í gegnum
verkfallsvesen þegar þroskaþjálf-
arar fóru í verkfall. Þá vorum við
að vísu bæði úti á vinnumarkaðn-
um sem var að mörgu leyti auð-
veldara. Nú fara kennarar í
verkfall og aftur þurfum við að
taka þátt í verkfalli með ófyrir-
sjáanlegum afleiðingum fyrir
fjölskylduna.
Höfundur er kennaraháskóla-
nemi.
UMRÆÐAN
SIGURÐUR SIGURÐSSON
SKRIFAR UM SKÓLAMÁL FATLAÐRA
Fatlaðir í þjóð-
félagi allsnægta
SIGURLÍN M. SIGURÐARDÓTTR
VARAÞINGMAÐUR
UMRÆÐAN
MÁLEFNI
HEYRNARLAUSRA
Staðan í dag er
þannig að heyrnar-
lausir fá ekki túlk í atvinnu-
viðtal. Þeir fá ekki túlk til
að taka þátt í tómstunda-
eða íþróttastarfi barna
sinna. Þeir fá ekki túlk til að
kaupa og selja íbúð. Þeir fá
ekki túlk til að fara til end-
urskoðanda. Þeir fá ekki
túlk til að sinna áhugamál-
um sínum og fræðast meira
um þau.
,,
JÓN FRÁ PÁLMHOLTI
GJALDKERI LEIGJENDASAMTAKANNA
UMRÆÐAN
HÚSNÆÐISMÁL Í
REYKJAVÍK
Hvað nú, framsóknarmenn?
ÆVINTÝRI GRIMS