Fréttablaðið - 24.09.2004, Qupperneq 27
Matseðill:
Lystauki með ansjósu og ólífu.
Forréttur:
Saltfiskbollur med Aioli og stökku salati.
Fyrsti réttur:
Spænsk skelfisksúpa med saffran, tómötum, chilli
og kóríander.
Annar réttur:
Lambainnralærisvöðvi ilmaður med hvítlauk og
rósmarin. Framreiddur með grilluðu grænmeti
med kryddjurtum, ólífuolíu og kröftugri Rioja
sósu. eða Pönnusteiktur saltfiskur med
katalónskri sósu og spínati.
Eftirréttur:
Appelsinu- og jarðarberjasalat med
sherrýbúðing og möndlukexi.
Verð: 4.950.
Eftirfarandi vín verða í boði
með matseðlinum
Montecillo Blanco 2003
Montecillo Crianza 2000
Montecillo Reserva 1998
Montecillo Gran Reserva 1995
Montecillo Gran Reserva Especial 1985
Öllum matargestum verður boðið uppá Osborne
Sherrý víð komu og með eftirrétti kvöldsins.
María Martinez, drottningin af Rioja, er ein þekktasta víngerðarkona
heims. Hún hefur í rúma þrjá áratugi stýrt Bodegas Montecillo, einu
kunnusta vínhúsi Rioja sem er helsta víngerðarsvæði Spánar.
Spænskir matar- og víndagar
hjá Sigga Hall á Óðinsvéum
- í tilefni af heimsókn Maríu Martinez, víngerðarmeistara Bodegas Montecillo
Borðapantanir í síma 511 6677
siggihall@siggihall.is
www.siggihall.is
3FÖSTUDAGUR 24. september 2004
Svona verður forréttur kokkalands-
liðsins sem sagt er frá á forsíðunni.
Uppskriftin er fyrir 20 manns.
Humar og Laxa „Balontine“
með eplum og tómötum, borið fram
með sítrus smjörsósu
Humarvafinn lax
400 g humar
100 g eggjahvíta
200 g rjómi
Sett í matvinnsluvél.
Lime og chili humar
100 g humar
2 stk lime (safi og börkur)
50 g Jómfrúar ólífuolía
1 rif hvítlaukur
sjávarsalt
Skelflettur humarinn er látinn liggja í
leginum í 1 klst. og settur inn í laxinn.
Kryddjurtalax
1 laxaflak
2 bréf blandaðar ferskar kryddjurtir
2 stk. matarlímsblöð
sjávarsalt
Laxinn er hreinsaður og skorinn langs-
um til að þynna flakið. Lagður á plast
filmu með humarfarsi og kryddjurtum,
fylltur með lime-chili humarnum.
Plastfilman er rúlluð þétt upp og
bundið fyrir báða enda. Sett í 80íC
heitt vatn í 9 mínútur og snöggkæld.
Þegar rúllan er köld er hún skorin í
sneiðar og hituð rólega upp í 100´C
heitum ofni. Borið fram með tómat-
sultu, skelfisk smjörsósu og þurrkuðu
laxaroði.
Tómatsulta
1 fínt saxaður skarlottu laukur
1 rif hvítlaukur
10 plómutómatar (kjarna- og hýðis-
hreinsaðir)
1 msk. tómatmauk
2 msk. ólífuolía
sjávarsalt
og smá flósykur
Allt sett í pott og eldað í 2 mín og svo
sigtað, því næst þurrkað í ofni við
100°C í 1 klst með smá flórsykri.
Þurrkað laxaroð
1stk. laxaroð
kryddblanda
Laxaroðið er kryddað eftir smekk með
salti, pipar og anís. Þurrkað í ofni við
150°C þar til það er stökkt.
Sítrus smjörsósa
100 ml hvítvín
100 ml safi af blönduðum sítrus
ávöxtum (appelsínum, lime ,sítrónum
og rauðu greip)
100 ml rjómi
200 g kalt smjör
100 g ávaxtakjöt af blönduðum sítrus
ávöxtum (appelsínum, lime, sítrónum
og rauðu greip).
Allur vökvinn er soðinn niður um
helming og svo er köldu smjöri í ten-
ingum hrært í. Þá má sósan ekki
sjóða. Hún er krydduð með salti og
pipar og gott er að bæta við skelfiski í
lokin (svo sem kræklingi eða kúskel).
[ LANDSLIÐIÐ ]
Forréttur
landsliðsins
Rioja Vega Crianza er nýtt vín í kjarnasölu í Vínbúðum en það
hefur fengið mjög góðar viðtökur hér á landi enda afbragðs vín á
ferðinni. Rioja Vega Crianza kemur frá Bodegas Muerza í Rioja
á Spáni. Það er gert úr þrúgunum tempranillo, mazuelo og
garnacha og er geymt í 12 mánuði á eikartunnum áður en það
fer á flöskur. Rioja Vega Crianza 2001 fékk gullverðlaun á
Concours Mondial Bruxelles í Belgíu fyrr á þessu ári og þess má
geta að Þorri Hringsson valdi vínið sem bestu kaup hjá sér í Gest-
gjafanum, gaf því 3 bikara og sagði m.a. um vínið: „Einfalt, vel gert
og gott vín sem hentar vel með saltfiski, lambakjöti og hörðum
ostum. Mjög góð kaup.“
Verð í Vínbúðum 1.090 kr.
Rioja Vega Crianza:
Nýtt vel gert Rioja-vín
Nýtt í Vínbúðum
Enski læknirinn Henry Lindeman hóf víngerð í Hunter-
dalnum í Nýja Suður Wales í Ástralíu snemma á 19.öld. Í dag
er Lindemans eitt kunnasta vínhús álfunnar og hafa vín þess
um langt skeið verið í hópi vinsælustu vína hér norður á Íslandi.
Lindemans Cabernet Sauvignon Bin 45, fékk nýlega afbragðs
einkunn í tímaritinu Wine Spectator, 85 stig og talin „bestu
kaup“ í vínum. Vínið er nútímalegt, ávaxtaríkt og auðdrekkan-
legt. Það ræður við flestan mat og er ákaflega ljúft eitt og sér.
Verð í Vínbúðum 1.290 kr.
Lindemans Bin 45:
Bestu kaup í Wine
Spectator
Vín vikunnar
Brúðkaupsmatur:
Svínarif í veislunni
Margir leggja mikið upp úr veitingum í
brúðkaupsveislur og yfirleitt fer mestur
peningur og tími í það að finna rétta
kokkinn, rétta kjúklinginn og réttu sjáv-
arréttina. Svo ekki sé minnst á borð-
búnaðinn og servétturnar sem þurfa að
fylgja. Þar sem þessi undirbúningur
veldur mörgum ama þá ættu sumir ef
til vill að fylgja fordæmi einnar heitustu
poppstjörnu í dag, hennar Britney
okkar Spears. Britney gifti sig í annað
skiptið á þessu ári fyrir stuttu og ekki
von að stúlkan nennti að standa í löng-
um undirbúningi. Það sést best á því
að skötuhjúin gæddu sér á kjúklinga-
bitum og svínarifjum ásamt brúðkaups-
gestum eftir athöfnina. Kannski er
góður matur ávísun á lengra hjóna-
band. Það kemur von bráðar í ljós.