Fréttablaðið - 24.09.2004, Qupperneq 43
27FÖSTUDAGUR 24. september 2004
Skarphéðinn Steinarson, stjórnar-
formaður Norðurljósa, var kjör-
inn stjórnarformaður Og fjar-
skipta á aðalfundi í gær. Norður-
ljós og tengdir aðilar ráða för í fé-
laginu eftir kaup á 35 prósenta
hlut Kenneth Peterson í félaginu.
Landsbankinn minnkaði hlut
sinn í félaginu. Sjö prósenta hlut-
ur var seldur til eignarhalds-
félagsins Riko sem er í eigu Sig-
urðar Bollasonar og Magnúsar
Ármann. Þeir seldu Baugi hlut
sinn í tískukeðjunni Karen Millen
fyrir skömmu.
Skarphéðinn Steinarson segir
róttækrar stefnubreytingar ekki
að vænta hjá Og Vodafone. Hann
gefur heldur ekkert út á vanga-
veltur um sameiningu Norður-
ljósa við Og Vodafone. „Við sjáum
ýmis tækifæri í samvinnu þessara
félaga,“ segir Skarphéðinn.
Auk Skarphéðins koma Árni
Hauksson, Einar Hálfdánarson og
Pálmi Haraldsson inn í stjórnina.
Ein stjórnarmaður, Vilhjálmur
Þorsteinsson, situr áfram í stjórn-
inni. Óskar Magnússon er for-
stjóri félagsins, en ekki liggur
fyrir hvort breytingar verða gerð-
ar í æðstu stjórn félagsins.
Hagvísar
snúa niður
Helstu hagvísar í Bandaríkjunum
benda ekki til þess að efnahagslíf-
ið sé á leið í uppsveiflu. Sérstök
vísitala sem mælir breytingar í
öðrum vísitölum lækkaði í ágúst
þriðja mánuðinn í röð.
Sérfræðingar á markaði í
Bandaríkjunum hafa áhyggjur af
þessari þróun og óttast að víxl-
verkun verði á milli óhóflegs að-
halds heimila og samdráttar hjá
fyrirtækjum.
Bæði Dow Jones og Nasdaq-
vísitölurnar hafa sigið niður á við
á síðustu vikum þrátt fyrir að
bandaríski Seðlabankinn haldi því
fram að efnahagsleg uppsveifla
sé í vændum. ■
Norðurljós með lyklavöldin
NÝR STJÓRNARFORMAÐUR Skarp-
héðinn Steinarsson, stjórnarformaður
Norðurljósa, er nýr stjórnarformaður Og
Vodafone. Nýir eigendur tóku við völd-
um í félaginu í gær.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.
Íslendingar
vinna lengi
Hærra hlutfall karlmanna á
aldrinum 55 til 64 ára er á vinnu-
markaði á Íslandi en nokkurs
staðar annars staðar í OECD-
ríkjunum. Um 95 prósent manna
í þessum hópi eru þátttakendur í
atvinnulífinu hér en næstmest
er atvinnuþátttakan í Japan,
tæplega 85 prósent.
Í vefriti fjármálaráðuneytis-
ins í gær kemur fram að ástæð-
ur þessa séu hár eftirlaunaald-
ur. Hér fer fólk að meðaltali á
eftirlaun á aldrinum 66 til 68 ára
en víðast annars staðar gera
menn það í kringum sextugt eða
fyrr.
Minnst atvinnuþátttaka í
þessum hópi er meðal Belga. Að-
eins um þriðjungur karla á aldr-
inum 55 til 64 ára tekur þátt í at-
vinnulífinu.
Á hinum Norðurlöndunum er
atvinnuþátttaka þessa hóps einnig
minni en á Íslandi. Í Noregi er hún
um 75 prósent, í Danmörku tæp
sjötíu prósent og í Finnlandi tæp
fimmtíu prósent. ■
Nýsköpun
verðlaunuð
Þrír fræðimenn í Háskóla Íslands,
hver á sínu sviði, hlutu í gær verð-
laun fyrir sameiginlegt verkefni
sem miðar að því að útbúa tæki
sem greint getur ýmsa augnsjúk-
dóma án þess að nemar séu settir
inn í augað.
Einar Stefánsson, prófessor í
læknadeild, Jón Atli Benediktsson
verkfræðiprófessor og Þór
Eysteinsson, dósent í lífeðlis-
fræði, standa að verkefninu, sem
felst í að þróa tækjabúnað sem
metur blóðþurrkarsjúkdóm í
augnbotnum.
Í öðru sæti í hugmyndasam-
keppninni „Upp úr skúffunum“
var verkefni á sviði félagsfræði
undir stjórn Kristínar Loftsdóttur
dósents.
Jóhann P. Malmquist, prófess-
or í tölvunarfræði, og Guðlaugur
Kr. Jörundsson meistaranemi
fengu þriðju verðlaun fyrir verk-
efni um sjónræna framsetningu á
umræðum í vefkerfi. ■
LÖNG STARFSÆVI ÍSLENDINGA Um 95
prósent karlmanna á aldrinum 55 til 64
eru þátttakendur í atvinnulífinu á Íslandi.
Þetta hlutfall er miklum mun hærra hér en
í öðrum OECD-löndum.