Fréttablaðið - 24.09.2004, Side 51

Fréttablaðið - 24.09.2004, Side 51
FÖSTUDAGUR 24. september 2004 35 Mazda6 – bíllinn sem þú verður að prófa Opið frá kl. 12-16 laugardaga Gravesen bestur hjá VG Daninn snjalli skýtur mönnum eins og Henry, Reyes og Okocha ref fyrir rass í einkunnagjöf norska blaðsins. FÓTBOLTI Danski miðjumaðurinn Thomas Gravesen, sem leikur með Everton, er efstur í ein- kunnagjöf norska dagblaðsins VG þegar sex umferðir eru búnar af ensku úrvalsdeildinni. Gravesen hefur leikið skínandi vel með Everton það sem af er og er með 7,6 í meðaleinkunn í leikjunum fimm sem hann hefur spilað með liðinu á tímabilinu. Besti leikur hans var gegn Crystal Palace í annarri umferð en þá skoraði hann tvö mörk og lagði upp eitt í 3-1 sigri Everton. Fyrir þann leik fékk hann níu í einkunn en hann hefur skorað tvö mörk og lagt upp tvö í leikjunum fimm. Fjórir leikmenn koma síðan í humátt á eftir Gravesen með 7,5 í meðaleinkunn. Það eru þeir Dennis Bergkamp og Thierry Henry hjá Arsenal, Muzzy Izzet hjá Birmingham og Jay Jay Okocha, fyrirliði Bolton. Frakkinn Thierry Henry heldur uppteknum hætti frá því í fyrra en þá var hann markahæsti leikmaður deildarinnar og átti einnig flestar stoðsendingar. Hann hefur nú skorað fimm mörk í sex leikjum Arsenal og átt sjö stoðsendingar, þremur meira en næsti maður sem er félagi hans hjá Arsenal, Fredrik Ljungberg. Næstur í einkunnagjöf VG er spænski framherjinn Jose Ant- onio Reyes hjá Arsenal. Hann hefur fengið 7,4 í meðaleinkunn en hann er markahæsti leikmaður deildarinnar með fimm mörk ásamt Henry og Nicolas Anelka hjá Manchester City. Tveir Íslendingar eru á listan- um. Hermann Hreiðarsson, sem hefur átt fast sæti í vörn Charlton það sem af er tímabilinu, er í 86. sæti listans með 6,5 í meðaleink- unn. Hermann hefur hæst fengið sjö í einkunn, alls fjórum sinnum, en lægst fimm fyrir leikinn gegn Bolton í fyrstu umferðinni sem Charlton tapaði, 4-1. Eiður Smári Guðjohnsen er í 139. sæti listans með 6,2 í meðaleinkunn. Hann hefur byrjað inn á í fjórum leikj- um af sex í framlínu Chelsea, skorað eitt mark sem var gegn Manchester United í fyrstu um- ferðinni og fékk sína hæstu eink- unn eða sjö fyrir leikinn gegn Tottenham um síðustu helgi sem endaði með markalausu jafntefli. Framherjinn Dwight Yorke, sem gekk nýverið til liðs við Birmingham frá Blackburn, er með verstu einkunnina af þeim leikmönnum sem hafa leikið fjóra leiki eða meira. Yorke er með 5,0 í meðaleinkunn og tókst að komast upp í fimmuna um síðustu helgi þegar hann skoraði jöfnunarmark Birmingham gegn Charlton og fékk sex í einkunn. oskar@frettabladid.is THOMAS GRAVESEN Bestur í ensku úrvals- deildinni það sem af er að mati norska dag- blaðsins VG. BESTIR Í ENSKU ÚRVALSDEILD- INNI AÐ MATI NORSKA DAG- BLAÐSINS VG. Thomas Gravesen, Everton 7,6 Dennis Bergkamp, Arsenal 7,5 Thierry Henry, Arsenal 7,5 Muzzy Izzet, Birmingham 7,5 Jay Jay Okocha, Bolton 7,5 Jose Antonio Reyes, Arsenal 7,4 Ricardo Fuller, Portsmouth 7,33 Ledley King, Tottenham 7,33 Bruno N'Gotty, Bolton 7,33 Paul Robinson, Tottenham 7,33 Radhi Jaidi, Bolton 7,25 Patrick Berger, Portsmouth 7,2 Darren Huckerby, Norwich 7,17 Alan Stubbs, Everton 7,17

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.