Fréttablaðið - 03.09.2004, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 03.09.2004, Blaðsíða 29
Smáauglýsingar byrja í dag á bls. 5 Flokkar & fjöldi Bílar & farartæki 108 stk. Keypt & selt 32 stk. Þjónusta 44 stk. Heilsa 6 stk. Skólar & námskeið 3 stk. Heimilið 13 stk. Tómstundir & ferðir 8 stk. Húsnæði 36 stk. Atvinna 44 stk. Tilkynningar 5 stk. Sveppatíminn genginn í garð BLS. 4 Góðan dag! Í dag er föstudagurinn 3. september, 247. dagur ársins 2004. Reykjavík 6.16 13.27 20.35 Akureyri 5.56 13.12 20.25 Heimild: Almanak Háskólans Sólarupprás Hádegi Sólarlag María Björk Sverrisdóttir er mikið fyrir góðan mat. „Ég er matarfíkill og matur er helsta nautnin í mínu lífi. Mér finnst rosagaman að fara út að borða og finnst þá gaman að borða öðruvís mat. Mér finnst alveg gaman að elda en ég er oft mjög upptekin svo ég borða mikið úti. Ég elda sjaldan og stundum biðja börnin mín mig að elda fisk eða einhvern hversdags- mat ólíkt öðrum börnum sem kannski fá sjaldnar pitsu eða annan heimsendan mat.“ María ratar samt alveg um eldhúsið sitt. „Mér finnst mjög gaman að drekka gott rauðvín og elda góðan mat. Ég á nokkrar uppskriftir sem klikka ekki og ég held mig frekar við þær en að prófa eitthvað nýtt. Ég er ekki tilraunakokkur og vil láta þá sem vitið hafa elda það sem þeir gera best, En ég er talin góð í því að elda það sem ég kann. Ég kann að gera frábæran lax með kókosmassa utan um og með appelsínusósu og hvítlauk. Svo hef ég líka þann sið að þegar ég fæ góðan mat hjá vinum mínum fæ ég uppskriftina og elda hana svo. Þannig lærði ég t.d. að gera chili-kjúkling a la Jónas R. og Diddú lét mig fá uppskrift að pasta með engu kjöti en fullt af hvítlauk, ólífum og tómötum en þar er það mysingur sem gerir gæfumuninn.“ Hver er besti maturinn sem María mat- gæðingur hefur fengið? „Ég fer stundum til Ísraels og þar fæ ég gæsalifur sem er grilluð en samt eiginlega hrá og hún bráðnar upp í manni og það er, held ég, eitt það besta sem ég hef smakkað.“ María mun ekki ná að elda næstu daga því Söngskóli Maríu og Siggu er að hefja hauststarfið í nýju húsnæði og það er í morg horn að líta. En hún á vonandi eftir að finna tíma til að borða almennilega. brynhildurb@frettabladid.is María Björk Sverrisdóttir, söngkona og skólastjóri: Algjör matarfíkill Útivistar- og sportfatnaður fyrir alla aldurs- hópa er á til- boði hjá Inter- sport. Bómull- arfóðraðar íþróttabuxur eru á 3.490 kr. en kostuðu áður 4.990 kr. Hlaupa- skór kosta 5.490 kr. en voru áður á 6.990 kr. Vatteruð unglingavesti eru á 1.990 kr. og hafa lækkað um 1.000 krónur en mestur er afslátt- urinn af dömulegum dúnúlpum sem áður kostuðu 11.990 kr. en eru nú seldar á 5.990 kr. Fiskbollur eru á tilboði í dag hjá Fiskbúðinni Vík við Hringbraut í Reykjanesbæ og kosta 590 krónur kílóið. Þær eru steiktar og fulleld- aðar og þarf því bara að hita þær upp. Þegar slík tilboð rekur á fjör- ur er engin goðgá að kaupa sér slatta og setja í frystinn. Rokna útsala er nú í verslunum Rúmfatalagersins og nemur afslátt- urinn frá 25% og allt upp í 70%. Á það bæði við um húsgögn, fatnað og smávöru. Sem dæmi um verðlag í þessari verslun má nefna að hægt er nú að kaupa þrenna stutterma- boli á fullorðna á 299 krónur, þ.e. innan við 100 krónur stykkið. Stígvél kosta 990 kr. og léttar útivistarúlpur einnig 990 kr., hafa lækkað úr 3.990 kr. Sem dæmi um ódýr hús- gögn má nefna skrifborðsstól á 1.990 kr. og skrifborð á 2.990 kr. Verslunin Miss Selfridge í Smáralindinni lokar um miðjan september og eru allar nýjar vörur með 40% afslætti og allar útsöluvör- ur á 500 kr. meðan birgðir endast. tilbod@frettabladid.is FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L. Smáauglýsingar á 995 kr. visir.is SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 Liggur í loftinu Í TILBOÐUM Toyota Corolla XLi 1300, 5 dyra, ‘96, ek. 190 þ. Beinsk., álfelgur, CD, ný tímreim. Fæst á sérstöku tilb. Uppl. í s. 487 5838 & 892 5837. MMC Lancer 1600 GLXi árg. 05/’93, ek. 150 þ. CD, álfelgur, dr. krókur, spoiler. Gullfallegur í toppstandi. Verð 320 þ. Uppl. í s. 487 5838 & 892 5837. VW Golf 1,6 ‘97. Sjálfskiptur. Verð 250 þús. Uppl. í s. 695 3600. VW Golf 1800 GT árg. ‘92, ekinn 157 þús. km, 17” álfelgur o.fl. S. 867 6741 Kristófer. FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TÍSKA NEYTENDUR o.fl. María Björk elskar góðan mat. 29 (01) Allt forsíða 2.9.2004 16:00 Page 1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.