Fréttablaðið - 03.09.2004, Blaðsíða 10
10 3. september 2004 FÖSTUDAGUR
Erlendar starfsmannaleigur:
Þörf fyrir lagasetningu könnuð
ATVINNUMÁL Félagsmálaráðuneytið
hefur sett af stað vinnu til að kanna
hvort nauðsyn beri til þess að sér-
stök lög verði sett um erlendar
starfsmannaleigur hér á landi. Árni
Magnússon félagsmálaráðherra
hefur skipað þriggja manna starfs-
hóp sem vinnur að undirbúningi
könnunarinnar.
Starfshópnum er ætlað að
fjalla um stöðu starfsmannaleiga
á íslenskum vinnumarkaði, að
sögn ráðherra. Tilgangur hópsins
er meðal annars að skoða sérstak-
lega starfsumhverfi starfsmanna-
leigna sem hafa staðfestu í öðru
ríki innan Evrópska efnahags-
svæðisins og kjósa að veita þjón-
ustu hér á landi. Enn fremur er
honum ætlað að kanna nauðsyn
þess að sett verði sérstök lög um
starfsemi starfsmannaleigna, sem
eiga sér staðfestu hér á landi,
hvort sem um er að ræða fyrir-
tæki sem er innlent að uppruna
eða erlent fyrirtæki sem hefur
kosið að nýta sér staðfesturétt
sinn samkvæmt EES-samningn-
um.
Í starfshópnum eiga sæti
Magnús Norðdahl frá Alþýðusam-
bandi Íslands, Hrafnhildur Stef-
ánsdóttir frá Samtökum atvinnu-
lífsins og Hanna Sigríður Gunn-
steinsdóttir lögfræðingur í félags-
málaráðuneytinu. ■
HEILBRIGÐISMÁL „Við viljum að fag-
hópur á geðsviði sjái um fram-
kvæmd sjálfræðissviptingar geð-
sjúks fólks sem er hættulegt um-
hverfi sínu,“ segir Sveinn Magn-
ússon, framkvæmdastjóri Geð-
hjálpar. Hann bætir við að það sé
ekki leggjandi á aðstandendur
geðsjúkra að standa í því að þeir
séu sviptir sjálfræði.
Í Fréttablaðinu í gær var greint
frá mikið veikum manni á miðjum
aldri sem ítrekað hefur reynst stór-
hættulegur þeim sem eru í um-
hverfi hans, svo og sjálfum sér.
Hann hefur stórslasað fólk og rúst-
að öllu í kringum sig og aðstand-
endur hans hafa leyst upp heimili
sín til að hefta aðgang hans að sér.
Maðurinn hefur verið inni og
úti af geðdeildum, enda er engin
aðstaða til að hafa hann þar. Það
eru því engin úrræði fyrir hann
þótt hann sé svo hættulegur sem
raun ber vitni og heilbrigðis- og
félagsmálayfirvöldum sé full-
kunnugt um það. Hann er einn af
20 geðsjúkum einstaklingum sem
velkjast um í kerfinu án úrræða.
Sveinn segir að Geðhjálp hafi
ítrekað hvatt til breytinga á lög-
um um nauðungarvistun og sjálf-
ræðissviptingu.
„Þetta er tvíþætt,“ segir Sveinn.
„Ef hlutirnir væru í betra horfi varð-
andi eftirlit með fólki væri nauðung-
arvistun fátítt úrræði. Síðan er það
hin hliðin, að gera þessa kröfu til að-
standenda. Þeir standa jafnvel fram-
mi fyrir því að vera í hættu með líf
sitt þegar einstaklingurinn er svona
á sig kominn. Það þýðir ennþá lengri
bið eftir úrlausn. Og hvað þarf til?
Einhverjar uppákomur sem ég vil
ekki einu sinni hugsa til, hvað þá
segja upphátt.“
Sveinn vill sjá sviptingarmálum
þannig fyrir komið, að sett verði á
laggirnar þverfaglegt ráð sem að-
standendur geti leitað til. Þar verði
einstaklingar greindir og skilgreint
hvað þurfi að gera fyrir þá.
„Ef nauðungarvistun þarf að
eiga sér stað, þá er það ákvörðun
ráðsins en ekki aðstandenda,“
segir Sveinn. „Ráðið gæti jafnvel
þurft að taka slíka ákvörðun í
blóra við aðstandendur vegna
neitunar eða einhvers annars, en
aðstandendur séu að sjálfsögðu
upplýstir um þá aðgerð. Markmið-
ið er ekki að taka fólk í umferð
heldur að vinna að því að koma
því til bærilegra lífs.“ ■
KJARNORKUVERIN ÁFRAM
Svo kann að fara að Belgar hætti
við að loka kjarnorkuverum sín-
um. Þetta sagði Marc Verwilgh-
en, orkumálaráðherra Belgíu, í
blaðaviðtölum. Hann sagði lítið
vit í því að loka belgískum kjarn-
orkuverum til þess eins að flytja
inn orku úr frönskum kjarnorku-
verum. Fréttirnar hafa vakið
misjöfn viðbrögð á meðal
almennings í Belgíu.
VOPNASMYGL STÖÐVAÐ
Tollverðir í Kosovo komu í veg
fyrir að þúsundum skotfæra yrði
smyglað inn í héraðið þegar þeir
gerðu leit í bíl sem var á leið inn
í héraðið frá Albaníu. Þúsundir
skotfæra fundust í sætum, hurð-
um og bensíntanki bílsins.
■ EVRÓPA
Hungurverkfall:
Nærast á
nýjan leik
ÍSRAEL, AP Um 4.000 palestínskir
fangar í ísraelskum fangelsum
hafa bundið enda á átján daga
langt hungurverkfall sitt.
Hungurverkfallið hófu þeir í
tvennum tilgangi, annars vegar til
að mótmæla hernámi Ísraela á
Vesturbakkanum og Gaza og hins
vegar til að knýja á um bættar að-
stæður í fangelsinu þar sem þeim
var haldið.
Talsmaður fanganna sagði að
Ísraelar hefðu samþykkt að verða
við ýmsum kröfum þeirra um
bættan aðbúnað. Því neitaði hins
vegar talsmaður ísraelskra fang-
elsismálayfirvalda sem staðfesti
þó að flestir fangarnir væru farn-
ir að nærast á ný. ■
Búseta geðfatlaðra:
Vinna komin
í fullan gang
FÉLAGSMÁL „Vinna við úttekt á bú-
setuþörf geðfatlaðra hefur farið
seinna af stað heldur en ég hefði
viljað, en nú er hún komin í full-
an gang,“ sagði Árni Magnússon
félagsmálaráðherra um könnun
sem ráðuneytið lætur gera á bú-
setuþörfinni á landsvísu. Að
sögn ráðherra á hópurinn að
skila upplýsingum þeim sem
hann hefur safnað eigi síðar en
um áramót.
Um síðustu áramót voru tæp-
lega 90 geðfatlaðir einstaklingar á
biðlista eftir félagslegu húsnæði,
þar af er þriðjungurinn á Vestur-
landi og þriðjungurinn á Norður-
landi eystra. Stærstur hlutinn bjó
í heimahúsum. Alls beið 21 eftir
að komast á sambýli, 33 óskuðu
eftir íbúð og 34 vildu komast í
íbúð með sameiginlegri aðstöðu.
Þetta kom fram í svari heilbrigð-
isráðherra við fyrirspurn Ástu
Möller,
Á sama tíma voru 53 einstak-
lingar á geðsviði Landspítala -
háskólasjúkrahúss sem áttu rétti-
lega að búa í félagslegri búsetu
samkvæmt skýrslu Svæðisskrif-
stofu um málefni fatlaðra í
Reykjavík.
Eftir könnun félagsmálaráðu-
neytisins verður hafist handa að
skipuleggja áfangauppbyggingu
húsnæðis með sama hætti og
verið er að gera varðandi húsnæði
fyrir öryrkja. ■
AUKNA BARÁTTU GEGN ALNÆMI
Um hundrað samkynhneigðir einstaklingar
efndu til mótmæla fyrir framan Grand
Central lestarstöðina í New York á loka-
degi flokksþings repúblikana sem haldið
er í borginni. Þeir átöldu George W. Bush
fyrir að gera ekki meira til að berjast gegn
alnæmi.
FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA
Lætur kanna þörf á lagasetningu um
starfsmannaleigur.
PALESTÍNSKIR FANGAR
Flestir fanganna hættu hungurverkfallinu
í gær.
Faghópur sjái um
sjálfræðissviptingu
Breyting á lögum um nauðungarvistun og sviptingu sjálfræðis mikið geðsjúkra er
nauðsynleg, að mati Geðhjálpar. Samtökin hafa lengi barist fyrir því að slíkar aðgerðir verði í
höndum þverfaglegs hóps á geðsviði.
KLEPPSSPÍTALI
Tuttugu geðsjúkir einstaklingar hafa verið inni og úti af geðdeildum vegna þess að þeir
eru svo veikir að þeir þurfa önnur úrræði.
HEILBRIGÐISRÁÐHERRA
Samkvæmt svari hans á Alþingi voru tæp-
lega 90 geðfatlaðir á biðlista eftir húsnæði
í kringum áramótin.
10-11 2.9.2004 21:12 Page 2