Fréttablaðið - 03.09.2004, Blaðsíða 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 - fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
410 4000 | landsbanki.is
Banki allra landsmanna
Veldu
þitt lán
4,2% 80% 100%
vextir lánshlutfall þjónusta
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
57
20
08
/2
00
4
Í Landsbankanum getur þú valið hvort þú tekur íbúðalán
á 1. veðrétti til 25 eða 40 ára:
1. Með föstum 4,2% verðtryggðum vöxtum
út lánstímann.
2. Með endurskoðun vaxta á 5 ára fresti.
Skilyrði fyrir þessum kjörum er að lántaki sé með launareikning í Landsbankanum
og þrjá af eftirfarandi þjónustuþáttum í Landsbankanum:
• Greiðsludreifing • Kreditkort • Lífeyrissparnaður • Líftrygging eða sjúkdómatrygging.
Ráðgjöf og nánari upplýsingar hjá Fasteignaþjónustu Landsbankans í síma 410 4000 og í útibúum
um land allt. Fasteignaþjónusta Landsbankans í Reykjavík er opin til kl. 19 alla virka daga.
Allt í einu
Alltaf þegar eitthvað gerist á Ís-landi, þá gerist það allt í einu.
Alveg fyrirvaralaust. Þetta er dálít-
ið fyndið. Grandvaralausir menn
eru kannski bara að fá sér kókó-
mjólk eða eitthvað, í rólegheitum,
og þá er allt í einu búið að lækka
vextina á íbúðarlánum og komin
blússandi samkeppni í bankakerfinu
og hvaðeina. Það er rétt svo að
menn nái að tæma úr fernunni og
henda henni í ruslið áður en næsta
vaxtalækkun er boðuð.
SVONA gerast hlutirnir á Íslandi.
Þetta er íslenska leiðin. Það veit
aldrei neinn almennilega hvað ger-
ist næst. Allir halda kannski að eitt-
hvað muni gerast, og það vantar
ekki kenningasmiðina og fólk sem
hefur gaman af því að spá í spilin,
en svo, nánast undantekningarlaust,
gerist bara eitthvað annað, eða þá
að hlutirnir gerast þegar enginn
býst við að þeir gerist.
FATTIÐI? Ég held að við viljum
hafa þetta svona. Við nennum ekki
að plana hlutina. Hvenær, til dæmis,
eigum við að nenna að segja hern-
um að fara? Hvenær munum við
nenna að taka upp 90% lán?
Hvenær munum við skyndilega
nenna að afnema verðtryggingu?
Hvenær nennum við að breyta
kvótakerfinu? Allt þetta mun bara
gerast einhvern tímann. Einhver
segir eitthvað, og það verður til
þess að einhver annar segir eitt-
hvað, og svo bara gerist eitthvað
einhvern veginn. Og allir verða
bara sáttir við það, fyrir utan
nokkra sem verða alltaf dæmdir til
þess að vera of seinir að segja það
sem þeir ætluðu að segja.
ÞETTA býður upp á skemmtilegar
pælingar. Hvar verður maður næst
þegar stórtíðindi gerast? Ætli ég
hafi ekki bara verið að klóra mér
einhvers staðar, í eyranu eða eitt-
hvað, þegar Kolkrabbinn féll. Það
var í ágúst 2003. Þá gjörbreyttist
viðskiptalífið. Kannski verður mað-
ur einhvers staðar að klæða sig í
úlpu þegar skattarnir lækka. Að
stinga lykli í skrá þegar innflutning-
ur á landbúnaðarvörum verður gef-
inn frjáls. Að sleikja ís með dýfu
þegar vín verður allt í einu komið í
matvöruverslanir, skyndilega og án
þess að nokkur nái að reka upp
múkk , út af einhverju sem einhver
sagði einhvern tímann vegna ein-
hvers. Allt í einu.
BAKÞANKAR
GUÐMUNDAR
STEINGRÍMSSONAR
64 bak 2.9.2004 20:34 Page 2