Fréttablaðið - 03.09.2004, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 03.09.2004, Blaðsíða 20
20 3. september 2004 FÖSTUDAGUR HLUTVERKASKIPTI Annar mátar stýrið en hinn snuðið gæti einhver hafa sagt þegar heimsmeistarinn í rallakstri, Petter Solberg frá Noregi, settist undir son sinn Oliver í þjónustuhléi í und- ankeppni Japansrallsins á Hokkaido í gær. Sjálft rallið hefst í dag og stendur fram á sunnudag. VEÐURFAR Hitastig á Íslandi hefur verið yfir meðallagi síðustu 30 mánuði og nýliðinn ágúst- mánuður var þar engin undan- tekning. Meðalhiti í höfuðborg- inni mældist 12.6 stig sem er 2.4 gráðum yfir meðallagi og reynd- ist þetta næsthlýjasti ágúst- mánuður í borginni frá upphafi mælinga. Aðeins ágúst í fyrra hefur mælst hlýrri. Trausti Jónsson hjá Veður- stofu Íslands hefur tekið saman helstu gögn yfir veðurfar í ágúst og sýna þau að þrátt fyrir hita- bylgjuna um miðjan mánuðinn þar sem hitastig fór yfir 20 stig fjóra daga í senn í Reykjavík var hlýrra í fyrra þar sem jafnheitt var allan mánuðinn meðan hita- stig nú hefur tekið meiri dýfur. „Þetta er fjórða til fimmta hlý- jasta sumar sem verið hefur í Reykjavík en úrkoma var í meðallagi. Á Akureyri var meðalhitastigið 12.1 gráða og þar var einnig hlýrra í fyrra.“ Tölur yfir aðra landshluta í ágústmánuði hafa ekki verið teknar saman. ■ SVÍÞJÓÐ AP Níutíu tveggja manna herbergi í myndarlegu húsi í sveitasælunni, fjölbreyttir af- þreyingarmöguleikar og sjónvarp og sími í hverju herbergi. Þannig kynni auglýsingin að hljóma. Hins vegar hefur borið mikið á gagn- rýni því hér er ekki um hótel að ræða heldur nýtt fangelsi í Svíþjóð. „Það hljóta að vera takmörk fyrir því hversu þægileg fang- elsin eiga að vera,“ sagði þing- maðurinn Gunnar Axen, sem hefur verið einna háværastur gagnrýnenda nýja fangelsisins. „Fangarnir njóta fleiri tækifæra til afþreyingar en nemendur í skólum okkar, og það ókeypis,“ bætti Axen við. Nýja fangelsið fyrir utan Norrköping er stærsta fangelsi Svíþjóðar þar sem fangar dvelja við lágmarksgæslu. Ólíkt öðrum fangelsum þar sem fangar mega koma með sitt eigið sjónvarp skaffar fangelsið föngunum sjón- varp, og síma að auki. Tveir fangar eru í hverju herbergi og geta læst að sér ef þeir vilja og verið þannið í ró næði. Lars Bergman, fangelsismála- stjóri Svíþjóðar, segist ekki botna í umræðunni um munað. „Við verðum að viðhalda þeim lífs- gæðum sem við búum við í sam- félaginu. Ég held ekki að það sé sérstakur munaður að hýsa tvo einstaklinga í átján fermetra her- bergi.“ Þeir einir fá að dvelja í fang- elsinu sem hafa verið dæmdir til innan við árs vistar í fangelsi og hafa ekki framið ofbeldisbrot. ■ Trjágróður: Vaxtarkippur næsta sumar GRÓÐURFAR Hitabylgja sumarsins dregur ekki úr hæfni gróðurs til að búa sig undir veturinn, að mati Garðars R. Árnasonar, verkefnis- stjóra hjá Garðyrkjuskóla ríkis- ins. Hann segir mikilvægara hvernig haustið ber að og ekki kólni of hratt. „Mestu skiptir að gróður fái tíma til að vetra sig, eins og það er kallað,“ segir hann. Almennt telur Garðar hita- kastið í sumar hafa góð áhrif á gróður. „Í sumum trjátegundum getur gott ár líka gefið góðan vöxt næsta ár. Þá búa trén enn að tíðinni í sumar,“ segir hann og nefnir greni sem dæmi um trjá- tegund sem geti átt eftir að taka út góðan vöxt næsta sumar. ■ ■ MIÐ-AUSTURLÖND ■ ASÍA AUÐGA ÚRANÍUM Á NÝ Írönsk stjórnvöld segjast ætla að hefja auðgun úraníums á nýjan leik. Sérfræðingar segja að með þessu geti Íranar eignast nógu mikið auðgað úraníum til að framleiða nokkrar kjarnorkusprengjur. Sjálfir neita þeir því statt og stöðugt að slíkt standi til. RABBÍNI KÆRÐUR FYRIR NAUÐ- GUN Einn helsti rabbíni gyðinga í landtökubyggðum á Vesturbakk- anum hefur verið handtekinn og ákærður fyrir nauðgun. Rabbíninn er ásakaður um að nauðga konu og áreita hana. BRUTUST INN Í SKÓLA 29 einstak- lingar sem segjast hafa flúið frá Norður-Kóreu brutu sér leið inn í japanskan skóla í Peking, höfuð- borg Kína. Þeir óska eftir póli- tísku hæli í Japan. Þúsundir Norður-Kóreumanna hafa flúið land í gegnum Kína. Flestir hafa reynt að komast áfram til Suður- Kóreu. NÆSTHLÝJASTI ÁGÚSTMÁNUÐURINN Þrátt fyrir hitabylgjuna sem reið yfir landið um miðjan ágústmánuð var ágústmánuður í fyrra hlýrri. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M G U N N AR SS O N Fangar fá sjónvarp og síma í klefa sína: Kvartað undan munaði í fangelsi FANGAVÖRÐUR Í FANGAKLEFA Fangarnir fá sjónvarp og síma í klefann sinn og geta farið í gönguferðir og skokkað í ná- grenni fangelsisins. TRJÁGRÓÐUR Veðurlag í sumar getur í sumum trjátegund- um kallað á aukinn vöxt næsta sumar, en þá býr gróðurinn enn að góða tíðarfarinu. HANDTÖKUR FLÓTTAMANNA Yfir 150 flóttamenn eru í haldi spænsku strandgæslunnar eftir að nokkrir bátar fullir af flóttafólki á leið til Spánar frá Afríku náðust á svipuð- um tíma í fyrrinótt. Fólkinu verður gert að snúa aftur til síns heima. ■ EVRÓPA Veðurfar í ágúst: Næsthlýjasti ágúst í höfuðborginni 20-21 2.9.2004 21:03 Page 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.