Fréttablaðið - 03.09.2004, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 03.09.2004, Blaðsíða 6
6 3. september 2004 FÖSTUDAGUR LÁN Útlán Íbúðalánasjóðs, vegna ýmissa kaupa á fasteignum og vegna viðhalds og endurbóta á eignum, námu samtals um 482 milljörðum króna í júnílok og höfðu þau hækkað um 37 milljarða frá áramótum. Um áramótin námu heildarútlánin um 445 milljörðum króna og höfðu þá útlánin hækkað um 52 milljarða allt árið. Til samanburðar má geta þess að útlán KB banka námu í árslok 2003 um 350 milljörðum, og er þar vita- skuld um fleiri lán að ræða en lán til íbúðakaupa. Heildarútlán Íslands- banka námu 315 milljörðum og útlán Landsbanka Íslands 326 milljörðum. Ef að líkum lætur eiga útlán banka og sparisjóða eftir að aukast, nú þegar þeir hafa boðað sókn inn á fasteignalánamarkað. Í tengslum við tíðindi á lána- markaði undanfarið hafa þær radd- ir gerst háværari að Íbúðalánasjóð- ur hafi misst tilgang sinn. Af ofan- greindum tölum að dæma virðist þó blasa við að sjóðurinn hafi skotið nokkuð djúpum rótum í samfélag- inu og að það yrði hægara sagt en gert að leggja hann niður. Að sögn Halls Magnússonar hjá Íbúðalánasjóði eru lánþegar sjóðs- ins í kringum 80 þúsund. Hann seg- ir nýjustu tölur ekki benda til þess að útlán sjóðsins hafi minnkað vegna vaxandi samkeppni. ■ Milljón manna flýr heimili sín Flórídabúar óttast miklar hamfarir þegar fellibylurinn Frances gengur á land í kvöld. Fólk ýmist flýr heimili sín eða reynir að styrkja þau fyrir átökin fram undan. Farið er að bera á vöruskorti. FLÓRÍDA Meira en einni milljón manna, kvenna og barna hefur verið fyrirskipað að yfirgefa heimili sín og koma sér í skjól áður en öflugur fellibylur gengur á land á Flórída. Þeir sem eftir verða hafa verið önnum kafnir við að byrgja glugga og styrkja heim- ili sín áður en óveðrið gengur yfir. Fellibylurinn Frances er jafn öflugur og fellibylurinn Charley sem gekk yfir Flórída fyrir tæp- um þremur vikum en nær yfir tvöfalt stærra svæði en Charley og veldur heimamönnum miklum ugg. Veðurfræðingar segja að það þurfi að fara hálfa öld aftur í tím- ann til að finna dæmi þess að Flór- ída hafi orðið fyrir barðinu á tveimur svo fellibylum á skömm- um tíma og þeir hafi ekki verið jafn kraftmiklir og Charley og Frances. Hjördís Rut Sigurjónsdóttir, blaðamaður Fréttablaðsins, sem stödd er á Flórída, segir fátt annað komast að í samtölum fólks en yfir- vofandi fellibylur. Fólk sé tekið til við að búa sig undir hamfarirnar. „Íbúar eru búnir að birgja sig upp af mat og búast við rafmagnsleysi í þrjá til fjóra daga eftir fellibylinn. Fólki er ráðlagt að halda sig innan- dyra, í gluggalausum rýmum, eða að yfirgefa ríkið á meðan fellibyl- urinn gengur yfir,“ segir Hjördís, sem var nýbúin að keyra fram hjá bensínstöð þar sem allt eldsneyti var uppurið. Víða hamstrar fólk nauðsynjar. Hjördís hefur lítið orðið vör við Íslendinga á svæðinu, einn hitti hún þó sem var kominn þang- að til að huga að húsinu sínu áður en fellibylurinn skylli á. Búist er við því að fellibylurinn gangi á land síðdegis í dag að stað- artíma eða í kvöld að íslenskum tíma og eru embættismenn þegar farnir að hafa áhyggjur af því að finna ekki nóg pláss til að hýsa fólk sem missir heimili sín. Enn búa margir í athvörfum sem var komið upp til að hýsa þá sem misstu heimili sín þegar síðasti fellibylur gekk yfir Flórída. Yfirvöld íhuga að breyta nokkrum hraðbrautum þannig að allar leiðir liggi frá hættusvæð- um. Fyrir fimm árum klúðraðist brottflutningur fólks þegar lang- ar bílaraðir mynduðust á hrað- brautum og fóru hægt yfir. Þá vildi til happs að fellibylurinn sem búist var við sveigði af leið og gekk ekki inn á Flórída. ■ BOÐA TIL KOSNINGA Palestínska heimastjórnin hefur boðað til sveitarstjórnarkosninga, þeirra fyrstu sem hafa farið fram á landsvæðum Palestínumanna frá árinu 1976. Fyrstu kosningarnar fara fram í desember þegar kosið verður í 36 sveitarfélögum. Síðar verður kosið í þremur hrinum til ársloka 2005. SHAATH TIL GAZA Mikil örygg- isgæsla var þegar Nabil Shaath, utanríkisráðherra Palestínu, kom fram opinberlega á Gaza- svæðinu. Nokkrum dögum áður höfðu vígamenn hótað að ráða hann af dögum eftir að hann sat fund með utanríkisráðherra Ísraels. Þeir sögðust myrða hann næst þegar hann kæmi til Gaza. ■ PALESTÍNA VEISTU SVARIÐ? 1Hvers minntust Pólverjar 1. septem-ber síðastliðinn? 2Þjóðminjasafnið var opnað í fyrradageftir breytingar. Hvað hafði það verið lokað lengi? 3Í hvaða sæti er íslenska landsliðið ífótbolta á styrkleikalista Alþjóða- knattspyrnusambandsins? Svörin eru á bls. 22 Í RÉTTARSAL Slobodan Milosevic vill verja sig sjálfur en dómarar ákveða í dag hvort skipaður verði verjandi fyrir hann. Slobodan Milosevic: Vildi ekki Stór-Serbíu HOLLAND, AP Ásakanir um að hann hafi ætlað sér að koma á fót Stór- Serbíu þar sem engir nema Serbar byggju eru firra, sagði Slobodan Milosevic, fyrrum for- seti Júgóslavíu, þegar hann svar- aði ákærum í réttarhöldum vegna meintra glæpa hans á tímum borgarastríðsins í Júgóslavíu. Milosevic lauk í gær málsvörn sinni og fór hörðum orðum um ásakanir saksóknara. Að málsvörninni lokinni sögðust dómarar við réttinn ætla að ákveða það í dag hvort skipaður yrði verjandi fyrir Milosevic, sem vill verja sig sjálfur. ■ HALLUR MAGNÚSSON Segir mikið þurfa að ganga á til þess að Íbúðalánasjóður láti á sjá í samkeppni við bankana. Lánþegar Íbúðalánasjóðs eru í kringum 80 þúsund: Útlán upp á 482 milljarða króna ARI EDWALD Hann segir að við fyrstu sýn séu tillögurnar langt frá því slæmar þegar á heildina sé litið. „Það er ekki víst að við munum leggj- ast gegn einu eða neinu á þessu stigi,“ segir hann. Samtök atvinnulífsins: Áhyggjur af framgangi VIÐSKIPTASKÝRSLAN Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka at- vinnulífsins, lýsir áhyggjum af þeim farvegi sem væntanleg frumvörp viðskiptaráðherra um breytingar á íslensku við- skiptaumhverfi eru komin í. „Ég vísa til þess sem komið hefur fram, að von sé á frumvörp- unum innan skamms. Mér finnst eðlilegt við smíð á frumvörpum að ráðuneytið kalli eftir viðbrögð- um og umsögnum frá okkur og öðrum lögmætum hagsmunaaðil- um í samfélaginu áður en frum- vörpin eru sett fram í endanleg- um búningi. Ég geri mér vonir um að við fáum að koma að umræð- unni um þessi mál,“ segir Ari. Ari er ekki tilbúinn að tjá sig um þær breytingar sem hann vildi sjá á tillögum nefndarinnar. Hann segir að fara verði varlega í að fela stjórnvöldum heimildir til að brjóta upp fyrirtæki, einnig efast hann um að þörf sé á mikilli lög- gjöf um stjórnarhætti fyrirtækja og bendir á auki á að sumar tillög- ur eigi ekki síður við um fjöl- skyldufyrirtæki en skráð fyrir- tæki. ■ BÚA SIG UNDIR FELLIBYL Víða á Flórída byrgir fólk glugga sína og býr sig með margvíslegum hætti undir komu felli- bylsins Frances. Rúmri milljón manna hefur verið skipað að hafa sig á brott. FRÖKKUNUM SLEPPT Frönsku blaðamennirnir tveir sem teknir voru í gíslingu í Írak voru í gær leystir úr prísund gíslatöku- manna. Þeir voru afhentir hópi sem á að koma þeim í hendur Frakka, að því er franski utanrík- isráðherrann greindi frá í gærkvöldi. ■ EVRÓPA 06-07 2.9.2004 22:11 Page 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.