Fréttablaðið - 03.09.2004, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 03.09.2004, Blaðsíða 14
„Við eigum enn langt í land. Ég hef óskað eftir stuðningi og aðstoð landanna sem eru hér samankomin en nokkur þeirra eru þegar þátt- takendur í eyðingu efnavopna í Rússlandi. Við munum reyna að vinna saman að því að koma í veg fyrir að gjöreyðingarvopn komist í hendurnar á hryðjuverkahópum hvar sem er í heiminum,“ segir Richard Lugar, formaður utanrík- ismálanefndar öldungadeildar bandaríska þingsins. Hann var gestur á fundi formanna utanríkis- málanefnda þinga Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna sem hald- inn var í gær. Richard Lugar, öldungardeild- arþingmaður Repúblikanaflokks- ins, er þekktastur fyrir framlag sitt til afvopnunarmála. Hann stóð að baki Nunn-Lugar afvopnunar- áætluninni árið 1991 ásamt fyrrum öldungardeildarþingmanni Demó- krataflokksins, Sam Nunn. Fyrir vikið voru þeir tilnefndir til Friðar- verðlauna Nóbels árið 2002. Áætl- unin miðaðist upphaflega við að finna og eyða gereyðingarvopnum í Sovétríkjunum fyrrverandi en nú er stefnt að því að ná til allra ríkja heimsins sem talin eru búa yfir slíkum vopnum, svo sem Norður- Kóreu, Íran, Líbíu, Indlands og Pakistan. Auk þess nær áætlunin nú einnig til efnavopna og lífefna- vopna. Nú þegar hefur Nunn-Lugar áætlunin meðal annars staðið fyrir eyðingu á rúmlega sex þúsund kjarnaoddum í Sovétríkjunum fyrrverandi. Gríðarlegt verkefni fram undan „Við höfum núorðið nokkuð góða mynd af því magni kjarnorku- vopna sem til er í heiminum. Við höfum ekki jafn góða yfirsýn yfir efnavopn og enn síður lífefnavopn. Til að mynda eru fjögur svæði í Rússlandi sem við höfum ekki enn fengið aðgang að,“ segir Lugar. Rússar hafa gert grein fyrir 40 þúsund tonnum af efnavopnum sem geymd eru á sjö stöðum. „Í einu efnavopnabyrgi í Rússlandi eru geymdar 1,9 milljónir efnavopna - sprengjur sem geymdar eru á við- arhillum í timburgeymslum,“ segir Lugar. „Í augnablikinu er öryggis- gæsla á svæðinu, bandarískir og rússneskir hermenn gæta svæðis- ins og er það umkringt gaddavírs- girðingum. Öll þessi efnavopn þarf að gera óvirk en það er gert með því að bora tvö göt í hverja og eina sprengju, fjarlægja efnið úr þeim og gera það skaðlaust með ákveðn- um aðferðum. Þetta þarf að gera 1,9 milljón sinnum og mun sennilega taka um sex ár. Hér er aðeins um að ræða eina geymslustöð af sjö en þetta gefur góða mynd af því gríð- arlega verkefni sem fram undan er,“ segir Lugar. Þörf á aðgerðum í Norður- Kóreu og Íran Eitt helsta vandamálið sem takast þarf á við er sala og dreifing Norður-Kóreumanna á hráefnum og sérþekkingu sem nýta má til þess að framleiða kjarnorkuvopn. „Það er ekki lengur spurning um hvaða vopn þeir hafa undir hönd- um, því við höfum aflað okkur nokkuð góðrar vitneskju um það. Talið er að í Norður-Kóreu séu allt að sex kjarnavopn. Það þarf að koma af stað aðgerðum sem leiða til þess að þau verði gerð óvirk og að Norður-Kóreumenn hætti öllum áformum sínum um frekari smíð kjarnavopna,“ segir Lugar. Hann segir að grípa þurfi til að- gerða sem fyrst og bendir á að um- ræður um öryggismál í Asíu séu þegar í gangi milli fulltrúa frá Bandaríkjunum, Kína, Japan, Norður-Kóreu, Suður-Kóreu og Rússlandi. Lugar segir að jafnframt leiki ekki nokkur vafi á því að Íranar séu með í gangi áætlun um smíði kjarnavopna þrátt fyrir að þeir neiti því staðfastlega. „Takmark okkar er að ná alþjóðlegri sam- stöðu um að beita yfirvöld í Teher- an þrýstingi um að láta af þessum áformum. Alþjóðlega kjarnorku- stofnunin hefur þegar málefni Írana undir höndum en ef þeir breyta hins vegar ekki um stefnu þarf að vísa málinu til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna og krefjast aðgerða,“ segir Lugar. Deilur milli Indlands og Pakistans Landamæri Pakistans og Ind- lands hafa verið kölluð hættuleg- asta svæði heims. Lugar segir að báðar þjóðirnar búi yfir kjarna- vopnum og sú staðreynd ætti að vekja athygli heimsins á ástandinu sem þar ríkir. „Það er afar mikil- vægt að þjóðir heimsins sameinist um að koma í veg fyrir að ástand geti skapast milli landanna sem geti orðið til þess að einhver geti tekið óyfirvegaða ákvörðun sem leiði til kjarnorkuhörmunga,“ segir Lugar. Hann segir að fyrsta skrefið sé að huga að því hvernig hægt sé að aðstoða löndin við lausn á deilum sínum og stuðla að bættum sam- skiptum þeirra á milli. ■ 14 3. september 2004 FÖSTUDAGUR SAMGÖNGUR „Tölvan í bílnum til- kynnti á Hvolsvelli að nú væri bíllinn orðinn eldsneytislaus. Það má því segja, að við höfum farið síðasta spölinn á bæninni,“ sagði Stefán Ásgrímsson hjá FÍB, en hringferð hans og félaga hans á VolksWagen Golf dísilbíl hringinn í kringum landið lauk í gær. Með Stefáni var séra Jakob Rolland, prestur kaþólska safn- aðarins í Hafnarfirði, en Stefán er einnig í kaþólska söfnuðinum Félagarnir ætluðu að fara hringinn á einum tanki og það tókst. Rétt rúmur einn lítri var eftir á tanknum þegar þeir komu á áfangastað. Lagt var upp á þriðjudag, en bíllinn renndi aftur inn á bíla- stæði Frumherja 15 mínútum yfir tólf í gærdag. Þar með varð það ljóst að markmið ferðarinn- ar, að aka umhverfis landið á einni tankfylli af dísilolíu, hafði náðst. Í ferðalok reyndust vera 1.292 km að baki samkvæmt vegalengdarmæli bílsins. 54 lítrar fóru á geyminn, sem tekur 55 lítra, þannig að bíllinn eyddi að meðaltali 4,1 l á hverja 100 km í þessari ferð og meðalhraði var 57 kílómetrar á klukku- stund. ■ ■ LEIÐRÉTTING MEÐAL ÞESS SEM HEFUR ÁUNNIST MEÐ NUNN-LUGAR ÁÆTLUNINNI Í FYRRUM SOVÉTRÍKJUNUM: ■ 6.312 kjarnaoddum eytt eða gerðir óvirkir ■ 537 langdrægum flaugum eytt eða gerðar óvirkar ■ 459 skotpöllum fyrir langdrægar flaugar eytt ■ 11 hreyfanlegum skotpöllum fyrir lang- drægar flaugar eytt ■ 128 sprengjuflugvélum eytt ■ 780 flaugum fyrir sprengju- flugvélar eytt ■ 408 skotpöllum kafbátaflauga eytt ■ 496 kafbátaflaugum eytt ■ 27 kjarnorkukafbátum eytt eða gerðir óvirkir ■ 194 kjarnorkutilraunastöðvum lokað ■ Aukin öryggisgæsla við um 260 tonn af sprengiefni ■ Aukin öryggisgæsla við um 60 geymslubyrgi fyrir kjarnaodda ■ 208 tonnum af auðguðu úraníum breytt í skaðlaust úraníum ■ Uppfærsla á öryggisbúnaði um 35% af efnavopnum Rússa ■ 58 þúsund vopnasérfræðingar hafa verið ráðnir í ný störf, friðartengd ■ Úkraína, Hvíta-Rússland og Kasakstan eru nú kjarnorkuvopnalaus lönd. Í umfjöllun um málþing um konur, völd og lögin sem birtist í blaðinu laugardaginn 28. ágúst undir fyrir- sögninni „Endurvakning umræð- unnar„ var rangt farið með tilvitn- un í ummæli Bjargar Thorarensen í pallborðsumræðum. Hér á eftir birtist rétt tilvitnun: „Það hefur orðið endurvakning á jafnréttisumræðunni á Íslandi að undanförnu. Meira hefur verið rætt um jafnréttismál á síðustu sex mánuðum en undanfarin sex ár. Hart var deilt á skipun hæsta- réttardómara og nú síðast risu framsóknarkonur upp og mót- mæltu því að Siv Friðleifsdóttur væri vikið úr ráðherrastóli.“ HÚSIÐ RÚSTIR EINAR Palestínskar konur sitja fyrir framan rústir íbúðabyggingar. Ísraelar eyðilögðu tvær fimm hæða blokkir á Gazasvæðinu. Eftir standa fjörutíu heimilislausar fjölskyldur. Á ÁFANGASTAÐ Stefán og séra Roland renndu kampakátir í bæinn um hádegisbilið í gær. Þeim hafði tekist að fara hringveginn á einum dísiltanki. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA Óku hringinn í kringum landið á einum dísiltanki: Fóru síðasta spölinn á bæninni RICHARD LUGAR „Við höfum núorðið nokkuð góða mynd af því magni kjarnavopna sem til er í heiminum. Við höfum ekki jafngóða yfirsýn yfir efnavopn og enn síður lífefnavopn. Til að mynda eru fjögur svæði í Rússlandi sem við höfum ekki enn fengið aðgang að.“ Enn langt í land í afvopnunarmálum Richard Lugar, formaður utanríkismálanefndar öldungadeildarþings Bandaríkjanna og sérfræð- ingur í afvopnunarmálum, segir enn langt í land í afvopnunarmálum. Ríki heimsins þurfi að vinna saman að því að koma í veg fyrir að gjöreyðingarvopn komist í hendurnar á hryðjuverkahópum. SIGRÍÐUR D. AUÐUNSDÓTTIR BLAÐAMAÐUR FRÉTTASKÝRING STAÐA AFVOPNUNARMÁLA Í HEIMINUM Írak: Saklausir víða í haldi MANNRÉTTINDI Þúsundum sak- lausra manna, kvenna og barna er enn haldið föngnum án ákæru eða réttarhalda í fangelsum víða í Írak þrátt fyrir að hersetu innrás- araðila hafi lokið í júní síðastliðn- um. Sumir fanganna verða að gera sér að góðu að gista í tjöldum í þeim steikjandi hita sem geisar í landinu. Hafa mannréttindasam- tökin Amnesty skorað á írösk stjórnvöld að gera það að for- gangsverkefni að sleppa fólkinu úr haldi enda séu aðstæður oft ekki mönnum hæfar. ■ Starf þjóðleikhússtjóra: Átján hafa sótt um ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Átján manns hafa sótt um stöðu þjóðleikhússtjóra, en um- sóknarfrestur rann út í fyrradag. Ekki er útilokað að fleiri umsóknir berist mennta- málaráðuneytinu í pósti. Þeir átján sem sótt hafa um starfið eru: leik- skáldin og leik- stjórarnir Árni Ibsen og Benóný Ægisson, Bjarni Daníelsson óp- erustjóri, Hafliði A r n g r í m s s o n leikstjóri, Hall- dór E. Laxness leikstjóri, Hallur Helgason, sem stjórnaði Loftkastal- anum, Helga Hjörvar, forstöðumað- ur Norðurlandahússins í Færeyjum, Hlín Agnarsdóttir leikstjóri, Jóhann Sigurðarson leikari, Kolbrún Hall- dórsdóttir alþingismaður, Kjartan Ragnarsson leikstjóri, Kristín Jó- hannesdóttir leikstjóri, Ragnheiður Skúladóttir, deildarforseti leiklist- ardeildar Listaháskólans, Sigrún Valbergsdóttir leikstjóri, Tinna Gunnlaugsdóttir leikkona, Trausti Ólafsson, doktor í leiklistarfræðum, og þau Viðar Eggertsson og Þórhild- ur Þorleifsdóttir, sem bæði voru leikhússtjórar í Borgarleikhúsinu. Skipað verður í stöðuna til fimm ára frá 1. janúar næstkomandi. ■ STEFÁN BALDURSSON Stefán lætur af starfi þjóðleikhússtjóra um áramótin. 14-15 2.9.2004 21:31 Page 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.