Fréttablaðið - 03.09.2004, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 03.09.2004, Blaðsíða 40
Ásktkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi Kristján Einarsson Útför fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík Mánudaginn 6. September kl. 13.30. Margrét Matthildur Björnsdóttir, Guðmundur Einar Kristjánsson, Björn Ingi Kristjánsson, Róbert Kristjánsson, Friðrik Bergmann Kristjánsson, Kristinn Rúnar Kristjánsson, tengdadætur og barnabörn. Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu vegna fráfalls okkar ástkæra Árna Ragnars Árnasonar, alþingismanns Sérstakar þakkir til allra sem önnuðust hann af alúð og hlýju í veikindum hans. Guð blessi ykkur öll. Guðlaug P. Eiríksdóttir, Guðrún Árnadóttir, Brynjar Harðarson, Hildur Árnadóttir, Ragnar Þ. Guðgeirsson, Björn Árnason, Kristbjörg K. Sólmundsdóttir, Árni Árnason, Kolbrún H. Pétursdóttir og barnabörn. Ragnhildur Ólafsdóttir, Jófríður Helgadóttir og systur hins látna. „Ég held ég fari og kaupi af- mælisgjafir handa sjálfum mér á afmælisdaginn. Ég á mikið plötu- safn sem ég hef ekki getað hlust- að á því ég hef ekki átt plötuspil- ara svo lengi. Það hefur nú yfir- leitt verið lítið um hátíðahöld á afmælisdaginn minn því iðulega hefur hann borið upp á mánudegi eða þriðjudegi en þar sem hann er á föstudegi núna er aldrei að vita nema maður geri eitthvad skemmtilegt,“ segir Úlfur. Úlfur hefur verið að semja tónlist fyrir leikrit sem sett verð- ur upp í Borgarleikhúsinu fljót- lega sem ber nafnið Geitin auk þess hefur hann verið að þýða leikrit sem hefur fengið íslensku þýðinguna Pakkið á móti sem sett verður upp af Leikfélagi Akur- eyrar eftir áramótin. „Það leikrit er óvenjuleg útfærsla á atburðun- um eftir 11. september, ég hlakka mikið til að geta einbeitt mér meira að því,“ segir Úlfur og bætir við að leikritið sé stór- skemmtilegt. „Þar fyrir utan hef ég verið að æfa með hljómsveitinni Apparat en við ætlum að halda tónleika í Klink og Bank þann 17. septem- ber. Við höfum ekki spilað svo lengi á Íslandi fyrir utan að við spiluðum einu sinni í Neskaup- stað í sumar og ég held að tónleik- arnir verði þeir einu í borginni það sem eftir lifir árs. Síðan verðum við bara að spila í útlönd- um í slagtogi við Ghost Digital og Mugison, höldum út í október og spilum í Frakklandi og Belgíu og svo höldum við í Apparat áfram niður til Ítalíu, „ segir Úlfur. „Ég hef mjög gaman að af- mælisdeginum mínum segir Úlfur en þessi aldur sem ég er á, milli 25 og 30 ára, er svo skrítinn að maður gleymir því oft hvað maður er gamall. Ég var spurður að því um daginn hvað ég væri gamall en ég gat bara ekki munað það, ég held ég hafi sagt 26. Þetta er eitthvað svo ómerki- legur aldur, „ segir Úlfur sem vonast til að geta prófað plötu- spilarann nýja um helgina auk þess sem hann verður á æfing- um með Apparat. ■ 32 3. september 2004 FÖSTUDAGUR CHARLIE SHEEN Leikarinn og vandræðagemlingurinn er 39 ára í dag. ANDLÁT Jón Tómasson, Álftamýri 67, lést þriðju- daginn 31. ágúst. Stefán Jóhannsson, Eyjahrauni 11, (áður Norðurgarði), Vestmannaeyjum, lést þriðjudaginn 31. ágúst. Unnur Stefánsdóttir bókhaldari, elli- og hjúkrunarheimilinu Grund, áður til heimilis í Grjótagötu 4, lést mánudaginn 30. ágúst. JARÐARFARIR 13.30 Anne F. Kristinsson, Reynimel 90, verður jarðsungin frá Neskirkju. 13.30 Árni Stefánsson bifreiðastjóri, Víðinesi, áður til heimilis á Hring- braut 109, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík. 13.30 Eiríkur Baldvinsson verður jarð- sunginn frá Fossvogskapellu. 13.30 Ingólfur Árnason, fyrrverandi raf- veitustjóri Norðurlandi eystra, verð- ur jarðsunginn frá Akureyrarkirkju. 13.30 Magnús Guðmundsson, Strand- götu 3, Patreksfirði, verður jarð- sunginn frá Fossvogskirkju. 14.00 Ágúst Hallmann Matthíasson verður jarðsunginn frá Keflavíkur- kirkju. 15.00 Hallfríður Guðmundsdóttir verð- ur jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík. 15.00 Þorsteinn Th. Bjarnason, Laugar- nesvegi 102, verður jarðsunginn frá Laugarneskirkju. Bretar og Frakkar brugðust við innrás Þjóðverja í Pólland á þessum degi árið 1939 með því að lýsa stríði á hendur Þjóðverjum. Breska hafskipið Athenia varð svo fyrsta skotmark þessa stríðs en þýskur kafbátur sökkti því þar sem talið var að skipið væri vopnum búið. Rúmlega 1100 manns voru um borð og 112 þeirra fórust í árásinni. Þar af voru 28 Bandaríkjamenn en Roosevelt Bandaríkjaforseti lét það ekki hafa áhrif á sig og tók ekki í mál að senda bandaríska hermenn til að berjast í Evrópu. Bandaríkin skyldu vera hlutlaus. Bretar gerði í framhaldinu lítið annað en að varpa 13 tonnum af dreifibréfum með andnasískum áróðri yfir Þýskaland og gerðu síðan atlögur að þýskum skipum þann 4. sept- ember. Frakkar hófu síðan sókn í vestur gegn þjóðverjum tveimur vikum síðar. Krafturinn í þeirri sókn fjaraði þó hratt út þar sem 90 mílna sóknarsvæði þeirra var á milli Lúxemborgar og Belgíu, tveggja hlutlausra landa. ■ ÞETTA GERÐIST SEINNI HEIMSSTYRJÖLDIN BYRJAR 3. september 1939 „Ég hef aldrei reynt að átta mig á því, en ef þú vilt að ég reyni að giska þá geri ég ráð fyrir að ég hafi sofið hjá eitthvað í kringum 5000 konum. - Afmælisbarnið Charlie Sheen er afskaplega meðvitaður um hvað hann er mikill töffari. Bretar og Frakkar fara í stríð Gleymir stundum aldri sínum AFMÆLI: ÚLFUR ELDJÁRN TÓNLISTARMAÐUR ER 28 ÁRA Í DAG Söng- og leiklistarskólinn Sönglist hefur nú sitt 7. starfsár. Á síðasta ári var skólinn til húsa í Borgar- leikhúsinu og tóku um 250 nem- endur þátt í starfseminni. Gengið hefur verið frá samningum um aukið samstarf Sönglistar og Borgarleikhússins. Í framtíðinni er svo ætlunin að koma á fót barna- og unglingaleikhúsi þar sem öll hlutverk verða í höndum barna og unglinga. Slík barna- og unglingaleikhús hefur ekki verið rekið um árabil hér á landi en þekkjast víða um heim þar sem þau njóta mikilla vinsælda. „Þetta er gífurlega ánægjulegt fyrir okkur hjá Sönglist því núna getum við veitt nemendum okkar það tækifæri að stíga á svið í Borgarleikhúsinu. Hingað til höfum ekki haft aðgang að slíkri aðstöðu og það hlýtur að gefa nemendunum meira að vera innan álíka umgjarðar, nú höfum við meira rými til umráða, getum bætt við kennurum og aukið við stundatöfluna. Svo er auðvitað gaman fyrir krakkana að fá að hitta leikarana og verða að vitni að því hvernig alvöruleikhús gengur fyrir sig,“ segir Erla Rut Harðardóttir, einn af stofnendum Sönglistar. ■ Sönglist í Borgarleikhúsið Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, Haraldar Kristjánssonar fyrrv. Kaupmanns. Sérstakar þakkir til starfsfólks á deildum 13B og 14G á Landspítalanum við Hringbraut fyrir kærleiksríka umönnun. Gerða Herbertsdóttir, Herbert Haraldsson, Hallfríður Jakobsdóttir, Sigríður Haraldsdóttir, Gunnar þór Ólafsson, Jón Ingi Herbertsson, Laufey Elísabet Löve, Gerða Gunnarsdóttir, Guðmundur Arnar Jónsson, Lára Guðrún Gunnarsdóttir og barnabarnabörn. AFMÆLISBARNIÐ Úlfur ætlar kannski að kaupa sér plötuspilara í tilefni dagsins og jafnvel að lyfta sér upp þar sem afmæli hans ber nú upp á föstudegi. ADOLF HITLER Bretum og Frökkum var nóg boðið þegar hann stefndi herjum sínum inn í Pólland. Stjórnir landana lýstu í fram- haldinu yfir stríði á hendur Þjóðverjum og seinni heimstyrjöldin var þar með hafin. SAMSTARF Einn af nemendum söng- og leiklistarskólans Sönglistar þenur radd- böndin. Skólinn tekur upp aukið samstarf við Borgarleikhúsið. 40-41 (32-33) Tímamót 2.9.2004 16:29 Page 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.