Fréttablaðið - 09.12.2004, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
FIMMTUDAGUR
STAÐA HÁSKÓLA ÍSLANDS
Málfundur um háskólastigið og stöðu Há-
skóla Íslands verður haldinn í hátíðarsal
skólans. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra flytur erindi, meðal
annarra. Fundurinn hefst klukkan 13.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
9. desember 2004 – 336. tölublað – 4. árgangur
NAUÐGANIR VOPN Í STRÍÐSÁ-
TÖKUM Friðargæsluliðar og hjálparstarfs-
menn hafa misnotað konur og stúlkur sem
þeir áttu að vernda segir meðal annars í
skýrslu Amnesty International. Sjá síðu 2
SKULDIR EIGA AÐ LÆKKA Í fjár-
hagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir næsta ár
er gert ráð fyrir lækkun skulda borgarsjóðs
og engum nýjum langtímalánum. Ósk-
hyggja segja sjálfstæðismenn. Sjá síðu 4
UNNIÐ AÐ SKIPULAGI VATNS-
MÝRAR Vinna að heildarskipulagi Vatns-
mýrar er að hefjast aftur eftir um tveggja
ára hlé. Skipulagsnefnd Reykjavíkur hefur
skipað stýrihóp til að halda utan um skipu-
lagið. Sjá síðu 2
VILJA VEIÐILEYFAGJALD Sveitar-
stjórar vilja að veiðileyfagjald renni til sjáv-
arbyggða sem hafa komið illa út úr upp-
töku kvótakerfisins. Sjá síðu 6
Kvikmyndir 46
Tónlist 38
Leikhús 42
Myndlist 42
Íþróttir 34
Sjónvarp 48
● jólin koma ● heimili ● tíska ● ferðir
Sækir hitann
í heimilistækin
Ilmur Stefánsdóttir:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
● skattaparadís ● hrokagikkir
Svaðilfarir í
Mið-Ameríku
Erpur Eyvindarson:
▲
INNI Í FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Jólalest
kemur eftir
daga
2
BJARTVIÐRI NORÐAUSTAN til,
slydduél eða él sunnan- og vestanlands.
Heldur kólnandi veður. Sjá síðu 4
Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
www.postur.is
13.12.
Síðasti öruggi skiladagur
á jólapökkum
til Evrópu!
Nýtt Hagkaupsblað
fylgir Fréttablaðinu í dag
SJÁVARÚTVEGUR Tuttugu ár eru síðan
kvótakerfi í sjávarútvegi var komið
á. Í fyrstu var kerfið hugsað til
bráðabirgða og samþykkt til eins og
tveggja ára í senn. Árið 1990 var
það endanlega fest í sessi og þá var
frjálst framsal kvóta einnig heimil-
að. Fyrstu árin ríkti nokkur sátt um
kerfið en með frjálsa framsalinu
hefur óánægjan aukist og afleiðing-
ar þess oft nefndar mesta löglega
eignatilfærsla Íslandssögunnar.
Í dag og næstu daga birtir
Fréttablaðið úttekt á kvótakerfinu
þar sem helstu sjónarmið eru dreg-
in fram.
Jakob Jakobsson, fyrrverandi
forstjóri Hafrannsóknastofnunar-
innar, segir að fiskifræðingar hafi
bent á slælega stöðu þorskstofns-
ins í nokkur ár en stjórnmálamenn
jafnan skellt skollaeyrum við.
„Ástandið var orðið það alvarlegt
að það rann upp fyrir mönnum að
það var ekki hægt að standa hjá að-
gerðalaus,“ segir Jakob.
„Ég tel að kvótakerfið hafi
bjargað því sem bjargað varð á
þessum tíma,“ segir Halldór Ás-
grímsson. Sjá síðu 24
Úttekt Fréttablaðsins:
Kvótakerfið í tuttugu ár
Netháskóli:
Köttur fékk
MBA-gráðu
BANDARÍKIN, AP Colan Nolby er kom-
inn með MBA-gráðu án þess að hafa
nokkurn tíma gengið í skóla. Colan
er sex ára köttur í eigu rannsóknar-
lögreglumanns í Harrisburg í
Pennsylvaníu.
Yfirvöld í Pennsylvaníu grunaði
að lítið stæði á bak við gráður sem
Trinity Southern-háskólinn í Texas
gæfi út. Lögreglumaðurinn setti sig
því í samband við skólann og keypti
gráðu á átján þúsund krónur. Hann
sagði Colan Nolby hafa reynslu af
barnagæslu og innkaupastjórnun en
tók ekki fram að Colan væri köttur.
Þetta dugði kettinum til prófgráðu
og einkunna.
Tveir bræður sem standa að
skólanum hafa verið ákærðir fyrir
svindl. ■
HRÆ GRAFIÐ UPP VIÐ EYÐIBÝLIÐ SJÓNARHÓL Eitt hrossanna sem búið var að urða í landi Sjónarhóls var grafið upp í gær. Hræið
verður brennt og svæðið sótthreinsað.
MILTISBRANDUR Eyðibýlið Sjónarhóll
á Vatnsleysuströnd er í einangrun
eftir að þrjú hross hafa á undan-
förnum dögum drepist úr miltis-
brandi þar, að sögn Sigurðar Arnar
Hanssonar aðstoðaryfirdýralækn-
is. Það blæddi úr vitum, ytri kyn-
færum og endaþarmi hrossanna.
Fyrsta hrossið drapst á fimmtudag,
tvö hross drápust á sunnudag og
fjórða hrossinu á bænum hefur
verið lógað.
Guðrún Sigmundsdóttir, yfir-
læknir á sóttvarnasviði Landlækn-
isembættisins, segir að níu manns
séu í forvarnarmeðferð gegn milt-
isbrandi þar sem fólkið hafi á einn
eða annan hátt komið nálægt hross-
unum sem drápust.
Landbúnaðarráðuneytið hefur
að tillögu yfirdýralæknis fyrirskip-
að bann við flutningi búfjár til og
frá bænum, brennslu hræjanna auk
sótthreinsunar á svæðinu. Í til-
kynningu frá embætti yfirdýra-
læknis og sóttvarnalæknis segir að
umferð fólks og dýra um svæðið sé
einnig takmörkuð um sinn.
Halldór Halldórsson, bóndi á
Narfakoti sem er næsti bær við
Sjónarhól, gagnrýnir starfshætti
yfirvalda. Halldór sem er búfjár-
eftirlitsmaður á svæðinu segir að
ekkert samband hafi verið haft við
hann vegna málsins. Hann hafi
sjálfur þurft að afla sér upplýs-
inga.
„Ég kom að fyrsta hrossinu
dauðu og snerti það en fékk bara
skilaboð frá bóndanum um að ég
ætti að fara til læknis og fá mér
sýklalyf,“ segir Halldór. „Ég sótti
það til heilsugæslulæknis og spurði
hvort ég ætti ekki að fara í ein-
hverja rannsókn en mér var sagt að
það væri óþarfi. Mér finnst þetta
voðalega skrítið allt saman. Svo er
talað um að þetta sé vel girt núna.
Eina girðingin er gulur borði þar
sem stendur að svæðið sé í sóttkví
og ég veit það að mín hross kunna
ekki lesa. Við erum að fara að senda
frá okkur hross í tamningu og vit-
um ekki hvort við megum það.“
Fréttablaðið hefur heimildir
fyrir því að grafa sem var notuð til
að urða eitt hrossanna í landi Sjón-
arhóls hafi verið seld út á land. Hún
mun nú vera austur í Þingvallasveit
og hefur ekkert samband verið haft
við nýjan eiganda hennar.
- th
- jss
Gagnrýnir viðbrögð
vegna miltisbrands
Bóndi á næsta bæ við Sjónarhól gagnrýnir starfshætti yfirvalda. Grafa
sem var notuð við að urða eitt hrossanna er nú austur í Þingvallasveit.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Skattkerfi tíu Evrópulanda:
Ísland eitt án
þrepaskatts
EFNAHAGSMÁL Hátekjufólk á Íslandi
greiðir lægri skatta og lágtekjufólk
hærri skatta en almennt tíðkast í
löndunum í kringum okkur og er
tekjuskattur á Íslandi almennt
lægri en gerist í þeim löndum, sam-
kvæmt niðurstöðum útreikninga
á tekjuskatti í tíu löndum í
Evrópu.
Flest önnur skattkerfi en hið ís-
lenska byggja á þrepakerfi þar sem
skattar fara stigvaxandi eftir tekj-
um, en eftir niðurfellingu hátekju-
skatts 2006 verður Ísland eina land-
ið með aðeins eitt skattþrep.
Ólafur Darri Andrason, hag-
fræðingur Alþýðusambands Ís-
lands, segir að með því að afnema
hátekjuskatt sé verið að draga úr
tekjujöfnunarhlutverki skattkerfis-
ins. - sda
Sjá F2 í miðju blaðsins
15 dagar til jóla
Opið
10-18.30 í dag
F2