Fréttablaðið - 09.12.2004, Blaðsíða 25
25FIMMTUDAGUR 9. desember 2004
Til :
Viðskiptavina okkar
• • taktu
fleiri bita
• • Allir á 8 Mb/s hraða um jólin!
Það er sama í hvaða áskriftarflokk þú ert í hjá BTnet
-þú verður á 8 Mb/s hraða til 1. janúar 2005.
• • Á fullum hraða
um jólin!
V12
• • 3Mb/s tenging.
• • Niðurhal innlands frítt.
• • Niðurhal erlendis allt að 100MB frítt.
• • 3 póstföng innifalin.
• • Frír beinir
• • Fyrsti mánuðurinn frítt
Frítt á frídögum allt að 2GB frítt erlent niðurhal*
Mánaðargjald 3.699,- kr.
Verðdæm
i 8Mb/s til
1. janúar!
Kynntu þér málið á www.btnet.is eða hafðu beint samband í síma 558-1234. BTnet fæst í verslunum BT
* Viðskiptavinir fá 500Mb af erlendu niðurhali frítt um helgar. * * Gegn 12 mánaða áskrift á kreditkort.
„Stjórnmálamenn hlustuðu á okkur
fiskifræðinga eftir hentisemi; á
meðan á landhelgisdeilunni stóð
tóku stjórnvöld fullt mark á okkur
en ef málið sneri að innlendum
veiðum snérust stjórnvöld öndverð
við. Mér fannst þetta hentistefna,“
segir Jakob Jakobsson, fiskifræðing-
ur og fyrrverandi forstjóri Hafrann-
sóknarstofnunarinnar. „Ég hefði
vilja sjá kerfið öðru vísi úr garði
gert, til dæmis að veiddu menn
ekki allan fiskinn ættu þeir að skila
kvótanum og honum yrði svo end-
urúthlutað. Þeir sem stóðu nær
hagfræðinni sögðu það ekki koma
til greina.“ Hann rifjar líka upp að
kvótakerfi á rækju og síld höfðu
skilað góðum árangri. „Við björguð-
um síldarstofninum með kvótakerfi
og horfðum mjög til þess þegar við
lögðum til að þorskurinn yrði settur
í kvóta.“ Frjálsa framsalið hefur alla
tíð verið umdeilt enda áhrif þess
mikil. „Ég var aldrei var við að
menn gerðu sér grein fyrir að
frjálsa framsalið hefði jafnmikil fjár-
hagsleg áhrif og það hafði. Ég gerði
það að minnsta kosti ekki. Við
hugsuðum um það eitt að koma á
kerfi sem gæti hamið sóknina.“ Jak-
ob segir Halldór Ásgrímsson hafa
gert gæfumuninn, hann hafi hlust-
að á fiskifræðingana öfugt við
flesta aðra sjávarútvegsráðherra.
„Það var reyndar þægilegt að vinna
með Kjartani Jóhannssyni en Lúð-
vík Jósepsson vildi togara á hvert
heimili.“
Jakob segir nauðsynlegt að meta
gagnsemi kvótakerfisins með hlið-
sjón af öðrum kerfum. „Hverju
hefðu önnur kerfi skilað okkur?
Kvótakerfið skilaði ekki því sem
okkar björtustu vonir stóðu til en
eigi að síður eru fiskistofnarnir við
Ísland í mun skárra ástandi en ann-
ars staðar og sjávarútvegurinn hér
er ekki rekinn með jafnmiklum
vandræðum og víða erlendis. Það
hefði hins vegar munað öllu ef
stjórnvöld hefðu tekið málin traust-
um tökum strax í lok landhelgis-
deilunnar. Sóknin datt niður þegar
Englendingarnir fóru en síðan
blússaði hún upp aftur þegar Lúð-
vík flutti inn alla skuttogarana. Þeir
voru náttúrulega nauðsynlegir, þeir
bara þurftu ekki að vera svona
margir.“
Hentistefna
pólitíkusa
Jakob Jakobsson:
„Ég hafði ekki sterkar skoðanir á málinu
þegar ég tók við embætti. Ég var vanur
því að menn gætu gengið til veiða eftir
því sem þeir vildu og vandist því að þeir
sem sóttu fastast sjóinn stóðu sig best.
Þess vegna mat ég sjómennskuna eftir
dugnaði og hörku þeirra sem þar börðust
um,“ segir Halldór Ásgrímsson sem varð
sjávarútvegsráðherra í maí 1983 og er,
öðrum stjórnmálamönnum fremur,
ábyrgur fyrir kvótakerfinu. „Eftir að ég
kom í sjávarútvegsráðuneytið áttaði ég
mig á því að þeir tímar voru liðnir. Tækn-
inni hafði fleygt mikið fram og það hafði
verið gengið nærri ýmsum stofnum.“
Þó að Halldór hafi framan af staðið fyrir
lagasetningu um kvótakerfið til eins og
tveggja ára í senn vissi hann innst inni að
kerfið væri komið til að vera. „Menn
vildu trúa því að þetta væri tímabundið
en sannleikurinn var sá að þegar menn
hugsuðu dýpra var svo ekki. Ég man að
ég viðhafði þau ummæli einhvern tíma á
þessum tíma að kvótakerfið væri komið
til að vera og það vakti upp umræður og
mótmæli.“
Hann viðurkennir að hafa ekki séð í upp-
hafi þau áhrif sem kerfið myndi hafa. „Í
fyrstu vorum við fyrst og fremst uppteknir
af því að skipta aflaheimildunum milli
skipa með skynsamlegum og réttmætum
hætti og reyna að draga úr kostnaðinum
við sóknina og gera sem mest verðmæti
úr aflanum. Það var hugsunin en menn
sáu ekki strax fyrir verðmæti þess að fara
út í breytinguna og sölu þessara rétt-
inda.“
Halldór Ásgrímsson efast ekki um ágæti
kvótakerfisins og telur það hafa skipt
sköpum í þjóðlífinu. „Ég tel að kvótakerf-
ið hafi bjargað því sem bjargað varð á
þessum tíma og skapað stöðugleika, ekki
aðeins í sjávarútvegi heldur einnig í efna-
hagsmálum þjóðarinnar. Við hefðum
aldrei ráðið niðurlögum verðbólgunnar
án þess að taka upp fiskveiðistjórnunar-
kerfi, það gerði sjávarútveginn miklu öfl-
ugri á erlendum mörkuðum.“
Halldór veit vel af þeirri óánægju sem
víða ríkir með kvótakerfið og telur
ógjörning að haga málum þannig að allir
séu sáttir. „Ég held að aldrei náist algjör
sátt um svo ríka hagsmuni sem liggja í
þessu skipulagi. Það er búið að gera gíf-
urlegar breytingar á kerfinu frá því sem
fyrst var og reynt að miðla málum en full
sátt næst aldrei.“
Halldór Ásgrímsson
Kvótakerfið bjargaði því sem bjargað varð