Fréttablaðið - 09.12.2004, Page 28

Fréttablaðið - 09.12.2004, Page 28
Hvíld Þó að jólin séu yndislegur tími eru þau samt svolítið stressandi. Fáðu nógan svefn dagana fyrir jól svo þú getir notið sjálfra jólanna í botn.[ Úrvalið breytilegt dag frá degi Jólamarkaður Sólheima er í kjallaranum í verslunarhúsinu Iðu í Lækjargötu 2a. Sveinbjörn að afgreiða á markaðinum. Fyrir aftan hann er mynd af Sesselju Sigmundsdóttur en hún stofnaði Sólheima og á næsta ári, nánar tiltekið 5. júlí, fagna Sólheimar 75 ára afmæli sínu. „Allir hlutirnir eru framleiddir á Sólheimum en þar eru sex vinnu- stofur. Þetta eru mikið til einstak- ir hlutir og má segja að úrvalið í versluninni sé breytilegt frá degi til dags,“ segir Sveinbjörn Péturs- son hjá jólamarkaðinum. „Þessi markaður hefur verið í mörg, mörg ár á mismunandi stöðum í gegnum tíðina. Nú erum við í kjallaranum á Iðu og vil ég koma sérstökum þökkum til Arn- dísar Bjargar Sigurgeirsdóttur fyrir að bjóða okkur að vera hér. Og auðvitað eigum við fastakúnna sem hafa heimsótt markaðinn á hverju ári og eru farnir að kíkja núna eftir jólagjöfum,“ segir Sveinbjörn og hvetur fólk til að koma snemma í jólagjafainnkaup. „Í síðustu vikunni fyrir jól er alltaf löng biðröð og engum finnst gaman að bíða í biðröð.“ Jólamarkaðurinn er opinn alla daga til jóla til klukkan 22 á kvöld- in. Á Sólheimum er kertagerð, smíðastofa, leirgerð, listasmiðja, jurtastofa, vefstofa og garðyrkju- stöðin Sunna og má kaupa allar vörur á markaðinum sem þar eru framleiddar. „Svo er þetta líka ódýrt. Við erum með margt undir fimm hundruð eða þúsund krón- um,“ segir Sigurbjörn og bætir við að hér sé um gott málefni að ræða þar sem allur ágóði rennur til starfsins á Sólheimum. Lykilatriði á Sólheimum er endurvinnsla en allt sem hendi er næst er endurnýtt ef það nýtist ekki í daglegu amstri. Til dæmis er að finna óróa úr hjólaumgjörð, arinkubba úr dagblöðum og lampa úr hrútshorni. Því miður er líf- rænt ræktaða grænmetið búið en seldar eru niðursuðuvörur og hamingjuegg úr frjálsum hænum á Sólheimum. ■ Sími 587 3400 burek@burek.is www.burek.is HEILDSÖLUDREIFING: Ljósakross Það er ódýrara að kaupa ljósakross en að leigja hann Fást um land allt! Hvítu plastkrossarnir frá Búrek henta þeim sem vilja annast lýsinguna fremur en að leigja sér kross. Þeir eru með innbyggðu ljósi og tengjast rafmagnsleiðslu í görðunum eða rafhlöðu sem endist í allt að 20 daga. Jólagjafir jólaföt Gott úrval Opið laugard. frá 10-18 • sunnud. frá 13-18 Laugavegi 51 • s: 552 2201 silkislæður og treflar velúrgallar Sparitoppar og bolir GULLBRÁ, Nóatún 17 s. 562-4217 Gamaldags hillur í miklu úrvali!! Verð frá 7.500, -kr Mikið úrval af gamaldags og fallegri gjafavöru. Munið heimasíðuna www.virka.is Skólavörðustíg 21 • Sími 551 4050 • Reykjavík Rúmföt í miklu úrvali Silki - damansk ] Skemmtilegar skálar úr pappamassa – litríkar og fínar. Litlar á 300 krónur, mið- stærðin á 600 krónur og bátalaga á 1.200 krónur. Kertagerð er mikil á Sólheimum en Olís- stöðvarnar safna kertastubbum fyrir gerðina. Rauða kertið er á 250 krónur, það græna á 350 krónur og háa píramídakertið á 410 krónur. Öðruvísi jólakort á 250 krónur stykkið.Sniðugar jólagjafir í smápakka. Fjallagrasasápa og kaffisápa á 490 krónur stykkið. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N Fallegir og skemmtilegir merkimiðar á 150 krónur stykkið.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.