Fréttablaðið - 09.12.2004, Síða 30
9. desember 2004 FIMMTUDAGUR
Ekkert fúsk í konfektgerðinni
Guðrún í Kokku lærði allt um rétta meðhöndlun á súkkulaði og hvernig á að gera konfektjólatré.
Guðrún var einbeitt á svip þar sem hún meðtók fróðleik meistarans um súkkulaði og spreytti sig svo sjálf í listinni.
„Við ákváðum að hrista saman hóp-
inn í vinnunni og gera eitthvað
skemmtilegt á aðventunni,“ segir
Guðrún Jóhannesdóttir, eigandi
verslunarinnar Kokku, en hún var
ein þeirra sem sátu einbeitt á svip
á námskeiði hjá Ásgeiri Sandholt í
Sandholtsbakaríi og Hafliða Ragn-
arssyni, þar sem viðfangsefnin
voru skreytt jólatré úr fylltu
súkkulaði, ásamt trufflum og köku-
skreytingum. „Þetta er rosalega
gaman. Ég hef nú oft verið að
fúskast í konfektgerð heima hjá
mér en aldrei vitað almennilega
hvað ég var að gera. Hér fáum við
ekki bara ómetanlegan fróðleik um
súkkulaði, eðli þess og meðhöndl-
un, heldur er maður í návígi við
meistarana og getur spurt í þaula.
Svo tekur maður auðvitað til hend-
inni sjálfur og lærir þetta þannig.
Við gerum öll eitt jólakonfekttré og
nokkrar trufflur og svo lærum við
sitthvað um kökuskreytingar og
hvernig á að gera súkkulaðiblæ-
vængi og mynstur sem maður
heldur að sé alveg rosalega flókið.
En auðvitað snýst þetta bara um að
læra réttu handtökin. Mótin að
jólatrénu fylgja námskeiðinu þan-
nig að maður gerir þetta ótrauður
heima hjá sér í framtíðinni.“
Guðrún hefur rekið verslunina
Kokku á fjórða ár og í desember
hefur allur hennar tími farið í
vinnu. „Fyrstu árin var ég að
strögglast þetta meira og minna
ein en nú er ég með frábært starfs-
fólk og hef þar af leiðandi meiri frí-
tíma. Hann nota ég til að undirbúa
jólin með börnunum mínum þrem-
ur. Það finnst mér ákaflega mikil-
vægt og ég bý enn að minningum
úr æsku þegar við systurnar vor-
um að búa til piparkökuhús og und-
irbúa jólin. Ég þríf ekkert sérstak-
lega fyrir jól, það er alveg nóg að
kveikja bara á kertum og hafa
daufa lýsingu,“ segir Guðrún og
hlær. Ég er svo heppin að eiga ynd-
islegan eiginmann sem er mjög lið-
tækur á heimilinu, þannig að á að-
fangadag loka ég versluninni á há-
degi, fer heim og legg mig og
vakna svo til að fara í freyðibaðið
og sparifötin. Að því búnu sest ég
að hátíðarborðinu sem hann Steini
minn hefur töfrað fram eins og
honum einum er lagið.“ ■
glerlist
leirlist
hreindýraskinn
lopapeysur
jólasveinar
Hafnarstræti 19 S.551-1122
Undirföt, náttföt, náttbuxur
dömu og Herra
Kringlunni 8-12 - sími 553 3600 - www.olympia.is
Calvin Klein
Hjálpa þér að halda öllu í skorðum í skúffum.Einning sjálflímandi filt til
að klæða skúffur og filt með verjandi efni svo ekki falli á silfur og silf-
urplett.Við eigum líka fægilög,fægiklúta og ídýfulög til að hreinsa.
SENDUM Í PÓSTKRÖFU.
SJÁLFLÍMANDI HNÍFAPARASKORÐUR
Gullkistan - Frakkastíg 10 - Sími: 551-3160.
Jólaföt á 0-4 ára
Saumagallerí JBJ
Laugavegi 8, s.552 5455
Súkkulaði, súkkulaði, súkkulaði. Ásgeir
Sandholt veit allt um súkkulaði og nýtur
þess að miðla kunnáttu sinni.
Ævaforn kínversk tækni
Í versluninni Allt í blóma á Laugavegi 61 fást handmálaðar jólakúlur frá Kína.
„Ég byrjaði að flytja þessar kúlur inn á síðasta ári og þær
seldust gjörsamlega upp. Strax þá var fólk farið að velta
fyrir sér að safna þessum kúlum enda svolítið dýrt að
kaupa margar í einu,“ segir Áslaug Jensdóttir, eigandi versl-
unarinnar.
„Þessar kúlur eru kínverskar og eru málaðar innan frá, í
gegnum gatið ofan á sem hankinn er á. Þetta er gert með
litlum bognum burstum en þetta er eldgömul kínversk
tækni. Kúlurnar eru úr sterku gleri. Þess vegna þola þær
aðeins meira og brotna til dæmis ekki þegar þær skellast
saman,“ segir Áslaug, sem hefur sjötíu tegundir af jólakúl-
um á boðstólum í ár og því ættu allir að finna eitthvað við
sitt hæfi. Hver kúla kostar 980 krónur. ■
Áslaug segir kúlurnar vera afar
vinsælar enda mjög sérstakar.
Sjötíu mismunandi tegundir er hægt að fá af kúlunum.
Starfsfólk Kokku horfði hugfangið á aðferðir Hafliða Ragnarssonar konditormeistara
við konfektgerðina.
SKARTHÚSIÐ
Laugavegi 12, s. 562 2466
Bómull:
svartir og rauðir
Satín blóma:
svartir, rauðir
og dökkbláir.
Flauel:
svartir og brúnir
(stærðir 35-41)
JÓLASKÓR
Einnig mikið úrval af
blómaskóm í mörgum
litum og stærðum
Sendum í póstkröfu.
Mikið úrval af kínaskóm
í barna- og fullorðins-
stærðum.
Tilboð
Eitt par kr. 1290,-
Tvö pör kr. 2000,-
Stærðir 27-41