Fréttablaðið - 09.12.2004, Síða 71
Enn buslað í Kleifarvatni
hann djúpur að fara niður í kjallara,
ég mundi ekkert eftir meindýrun-
um. En upp rifjaðist að ég bjó á
þriðju hæð og vissi lítt um undir-
djúpin. Einhvern veginn varð Arn-
aldur að nefna skófluna til sögu.
Ekki vil ég blanda mér í myndar-
mál Eysteins og Árna Snævarr,
finnst að vísu fúlt að ekki var valin
mynd með mér á. En annað í grein
Árna (Fréttablaðið 26.11) gefur til-
efni, sú fullyrðing að við félagar
hefðum í áratugi leynt eða reynt að
leyna fyrir þjóðinni reynslu okkar
af ástandi mála þar eystra. Ég játa
ódugnað við að skrifa um þessi mál
sem og við fjölmargt sem ég ætlaði
að iðja mannkyni til heilla. Ein-
hvern veginn finnst mér það vera
mitt mál, sé ekki ástæðu til að biðja
þjóð mína afsökunar, enda hefur
hún ekki tekið eftir neinum missi
og slík sjálfsgagnrýni er ekki til
siðs í þessu landi. Hins vegar hef ég
oft rætt þessi mál á samkomum og
í fjömiðlum, m.a. við Árna Snævarr,
og hvergi dregið af því sem ég þótt-
ist vita. Enn er um meinta leynd
mína að segja að allt sem máli
skiptir kom fram í Morgunblaðinu
vorið 1962. Hefur Árni Snævarr
ekki frétt af því? Þar kemur það
fram á þann hátt sem ekki verður
betri, beint af skepnunni, hrátt og
óslípað, með bæði fylliríi og
kvennafari. Eins og þetta gerðist,
þá vissi öll þjóðin um okkar frá-
sagnir, einnig „skoðanabræður“
sem við reyndum skv. Árna að
„leiða... á villigötur með þögn“. Mér
finnst stundum Árni muna þetta í
öðru orðinu en gleyma í hinu. Árni
segir Eystein ekki hafa talað um
þessi mál áratugum saman „ótil-
neyddur“. Hann virðist meina að
Eysteinn hafi verið neyddur til að
tala þegar Árni tók viðtölin við
hann vegna bókarinnar Liðsmenn
Moskvu. Hann tók reyndar einnig
viðtöl við mig á sama róli, ekki
fannst mér ég vera þar tilneyddur,
hafði heldur gaman af að tala við
Árna og þá félaga, fann aldrei fyrir
þumalskrúfum. Eitt fannst mér
einna ógeðfelldast í mínum skóla
þar eystra. Ef ekki tókst í umræð-
um að nappa þá sem grunaðir voru
um andstöðuhugsun, sökum þess að
þeir vörðu sig með þögninni, þá var
sagt að eitthvað væri bogið við
þessa aðila þar eð þeir færu aldrei
með lofgjörð um hin „blessuðu“
yfirvöld. Þessu lýsum við félagar í
SÍA-skýrslunum. Mér finnst þessi
klifan hjá Árna minna svolítið á
þessa sömu kröfu: af hverju þegir
mannhelvítið alltaf? Samt held ég
ekki að Árni vilji koma hér upp
þeim Stasi-sið að tukta til menn
fyrir það sem þeir sögðu ekki. Ann-
að mál væri, og ekki mitt einkamál,
hefði ég framið morð, ég tala nú
ekki um með skóflu. Verð þó að
bæta við, svo að ég verði ekki sak-
aður um undandrátt, að ég er bráð-
flínkur að moka með skóflu. Hefði
ég verið að reyna að leyna manns-
morði, þá vita allir að það tekst
aldrei, þökk sé Erlendi Sveinssyni
og Arnaldi. ■
27FIMMTUDAGUR 9. desember 2004
Ábyrgðin er
ráðherrans
Valgerður Sverrisdóttir við-
skiptaráðherra kaus að svara
sjónarmiðum mínum sem birt-
ust í Fréttablaðinu á mánudag
með grein sem birtist í gær.
Grein Valgerðar einkennist af
nokkurri vanstillingu og læt ég
hjá líða að
svara þeim
þætti grein-
arinnar sem
sprottinn er
af vanhugs-
aðri reiði.
Þar verður
hver að
fljúga eins
og hann er
fiðraður.
Valgerður gerir mikið úr því
að ég hefði átt að ræða við hana
áður en ég setti fram skoðanir
um ummæli hennar. Það hefði
ég gert ef um vinnslu fréttar
hefði verið að ræða. Hins vegar
beindist gagnrýni mín að sinnu-
leysi ráðherrans við alvarlegri
umræðu um íslenskt fjármála-
kerfi. Ekki rengi ég ráðherrann
um það að misskilnings hafi
gætt milli hennar og frétta-
manns og ummælin ekki rétt
fram sett. Það breytir þó engu
um kjarna gagnrýninnar sem
sett var fram í sjónarmiðunum.
Viðskiptaráðherra átti að svara
fréttamanni efnislega um ranga
umfjöllun danskra fjölmiðla um
íslenskt fjármálakerfi. Hafi hún
ekki haft tíma til að kynna sér
umfjöllunina er líklegt að ein-
hver af hátt í þrjátíu embættis-
mönnum ráðuneyta hennar
hefði getað kynnt sér þessi
skrif. Ummælin voru eftir henni
höfð og höfðu staðið óleiðrétt í
rúman sólarhring þegar um-
rædd sjónarmið fóru í prentun.
Vanrækslusyndir eru ekkert
betri en aðrar og gagnrýni á
ráðherrann beinist að því að hún
leyfði röngum fullyrðingum um
íslenskt fjármálakerfi að standa
óhögguðum þar til í viðtali við
Fréttablaðið í gær. Þá höfðu
fullyrðingarnar fengið að
sveima í fimm daga. Hins vegar
ber að fagna því að viðskipta-
ráðherra tók af skarið og lýsti
því að íslenskt fjármálakerfi
lúti sömu reglum og lögmálum
og fjármálakerfi í nágranna-
löndunum. Fjármálakerfið er
ein af stoðum samfélagsins.
Traust og trúverðugleiki eru
undirstaða þess. Þegar vegið er
að þeirri undirstöðu getur við-
skiptaráðherra ekki skotið sér
undan ábyrgð með því að hún
hafi ekki fylgst með. Henni bar
að fylgjast með. Það er ein af
þeim skyldum sem fylgja þessu
háa embætti.
ÞÓR VIGFÚSSON
FYRRVERANDI SKÓLAMEISTARI
UMRÆÐAN
SKÁLDSKAPUR OG
VERULEIKI
SENDIÐ OKKUR LÍNU
Við hvetjum lesendur til að senda okk-
ur línu og leggja orð í belg um málefni
líðandi stundar. Greinar og bréf skulu
vera stutt og gagnorð. Eingöngu er tek-
ið á móti efni sem sent er frá Skoðana-
síðunni á visir.is. Þar eru nánari leið-
beiningar. Ritstjórn ákveður hvort efni
birtist í Fréttablaðinu eða Vísi eða í
báðum miðlunum að hluta eða í heild.
Áskilinn er réttur til leiðréttinga og til
að stytta efni.
HAFLIÐI HELGASON
BLAÐAMAÐUR
Da Vinci Code spili›
N‡tt spil sem byggt er á
metsölubókinni Da Vinci
lyklinum eftir Dan Brown.
Íslenskar lei›beiningar fylgja.
2.490 kr.
Bókastóll
Bókastandur, t.d. til-
valinn í eldhúsi› undir
matrei›slubókina.
2.990 kr.
Rafhitu› gluggaskafa
Jólagjöf bíleigandans! fia› hefur
aldrei veri› jafn au›velt a› skafa
af bílnum, flú tengir sköfuna í
kveikjarann og ísinn brá›nar af...
1.995 kr.
Sturtuútvarp me› klukku
Vatnshelt sturtuútvarp me› klukku.
AM/FM, gó›ur félagi í sturtunni.
2.490 kr.
Lyklahaldari
fyrir hann og hana
Tilnefnd sem ein af bestu
gjafahugmyndum ársins í Bretlandi!
fiú t‡nir aldrei aftur lyklunum! fiú
setur lykilinn sem fylgir me› á
lyklakippuna flína og stingur honum
í haldarann sem er festur á vegg.
1.995 kr. stk. Vínflöskutappime› glasi
Í laginu eins og vínglas,
helltu flér í glas og
loka›u sí›an flöskunni.
2.495 kr.
Salt & pipar staukar
Skemmtun í hverju matarbo›i. Tvær
beygjanlegar slöngur: ein fyrir salt og
önnur fyrir pipar. Au›velt a› fylla á.
1.995 kr.
Allt ö›ruvísi
gjafir
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
1
3
8
0
Þökk Arnaldi Indriðasyni fyrir fína
bók. Leiktjöld eru litrík, andrými
og fólki lýst af nærfærni og innsæi.
Meður því ég hóf nám í Leipzig
1956 og bjó á sama garði og Ey-
steinn Þorvaldsson, reyndi ég að
máta mig við persónur Arnalds, ár-
angurslaust. En ég hef skelfing
gaman af svona bókum. Hvort hann
fer nógu djúpt? Ansi finnst mér