Tíminn - 17.03.1974, Blaðsíða 30

Tíminn - 17.03.1974, Blaðsíða 30
30 TÍMINN Sunnudagur 17. marz 1974. Björg sést hér við höggmyndaiöju slna. — rætt við Björg ísaks- dóttur, móiara, mynd- höggvara og forstöðu- konu saumastofu Leik- félags Reykjavíkur búningasögu og fleira og fleira. Þegar Sigrún Sigurðardóttir kom frá Sviþjóð úr námi, auglýsti hún námskeið i fatateiknun og ég sló til. Siðar sótti ég einnig fram- haldsnámskeið hjá henni. Sagði Björg að saumaskapur- inn væri ekki hennar aðaláhuga- mál. Hún sagðist lita á hann sem sitt brauðstrit. — Neyðin kennir naktri konu að spinna, og ég get að nokkru tekið undir þau ágætu orð, þvi ég giftist ung og varð að vinna við saumaskap i igripum. — Hvernig likar þér að vinna i leikhúsi? — Ég hef alla tið haft ánægju og skemmtun af leiklist. Og þó saumakunnáttan verði að vera til staðar i minu starfi, þá býður það upp á annaö og meira. Ég fæ tækifæri til aö fylgjast meö þróun leikrita og hvernig það er unnið lið fyrir lið. Starfið er skemmti- legt og i leikhúsi byggist allt á samvinnu og samhjálp þeirra sem þar vinna. Björg gerir nú augnabliks hlé á máli sinu, hellir i bollana og kveiktir i nettum dömuvindli. — Almenningur gerir sér ekki grein fyrir öllum þeim mikla undirbúningi, sem þarf að ynna af hendi áður en frumsýning byrjar. Búningar, leiksvið og leikmunir, allt þarf þetta að falla inn i sömu myndina, þannig aö útkoman verði ein heild. Eilif leit — Ég hef teiknað frá barn- æsku, en þegar ég var i Kvenna- skólanum kenndi mér Vigdis innritaðist i Myndlistaskólann og hef verið þar nær óslitið siðan. t Myndlistaskólanum vann Björg mikið með vatnslitum og krit. Við stóðum upp frá kaffibollun- um, gengum um ibúðina og hún sýndi mér málverkin, stór og smá. Sagði Björg að fólki likaði bezt þau málverk. sem gætu kallazt draumkenndar hugdettur, eöa eitthvað i þá átt. Ekki er hægt að flokka myndir Bjargar undir neina ákveðna myndlistarstefnu. Hún leitar viða fanga, en á öllu má sjá, aö lit- næmi hefur hún til að bera. — Mér finnst allt leiðinlegt, sem er formfast og vani, segir hún með áherzluþunga. t einu horninu eru abstrakt myndir og ég segi henni, að mér finnist falleg sú bláa. Hún lætur hrósið sem vind um eyru þjóta og gengur fram i forstofu. Bendir mér á stórt málverk. — Sólarlagið er oft fallegt hérna á Nesinu. Þessa mynd mál- aði ég i baðherberginu, þegar litadýrðin var ómótstæðileg. Við settumst aítur. — t byrjun var málunin ein- göngu áhugamál, en núna er hún svolitið meira. Ég geri meiri kröfur til min en áður. Mér er ómögulegt að ganga að þessu. eins og að skúra gólf. Björg hélt sina fyrstu einkasýn- ingu i febrúar siðast liöinn á Mokkakaffi hér i borg. Áöur haföi hún tekið þátt i samsýningum Myndlistaklúbbs Seltjarnarness, en þær sýningar eru haldnar ár- lega. ff • • en í lcikhúsinu er nóg að starfa. Það eru leikararnir Pétur Einarsson og Helgi Skúlason sem á myndinni eru að ræöa við Björgu. þá lenti ég í öðrum skóla" Björg ísaksdóttir er ein af þess- um dugandi húsmæðrum, sem lúta bernskudrauma sína verða að verulcika, þegar börnin fljúga úr hrciðrinu. Núna er hún i Mynd- listarskólanum, málar af hjart- ans lyst, vinnur að höggmynda- gerð, og veitir forstöðu sauma- stofu Leikfélags Keykjavíkur. Björg tsaksdóttir er fædd 31. mai 1928 a’ Bjargi á Seltjarnar- nesi. Hún er fimm barna móðir og gift Vilhjálmi Jónassyni. Við Tfmamenn litum inn á heimili hennar um daginn. Vild- um fala af henni viðtal. Við rák- um strax augun i fjölda málverka og höggmynda, sem voru viðs vegar á heimilinu. Kaffi og meðlæti var borið á.borð. Neyðin kennir naktri konu að spinna — Haustið 1967 var augiýst eft- ir saumakonu til starfa hjá Þjóð- leikhúsinu og ég vann þar um nokkurt skeið. Þetta var lausráð- in staða og nokkuð ótrygg, hóf Björg til máls. Sagði hún, að á siöastliðnu hausti hefði hún ráðiö sig til Leik- félags Reykjavikur, en áður haföi hún meðal annars verið verk- stjóri hjá fyrirtækinu Dúkur h.f., auk þess sem hún rak verzlun i samvinnu við aðra konu. — Verzlunin seldi aðallega sniðinn fatnaö og við rákum hana i þrjú ár undir nafninu Bjargar- búð. — Hver er menntun þin á þessu sviði? Að mestu leyti er ég sjálf- menntuð. Ég las mikið erlendar bækur. blöö og timarit, sem lúta að saumaskap. Ég hef lesið Kristjánsdóttir og það var hrein gullnáma að nema undir hennar tilsögn. Sagði Björg, að hún hefði verið að hugsa um þaö i alvöru að leggja stund á myndlist, eftir nám i Kvennaskólanum... —.... en þá lenti ég i öðrum skóla, gifti mig og ekkert varð úr námi. Siðar, eöa 1966 gerði ég drauminn aö veruleika og — Geturðu ekki sagt mér eitt- hvað um þennan Myndlista- klúbb? — Það var i janúar 1971, sem fólk á Seltjarnarnesi með mynd- listaráhuga kom saman og stofn- aði þennan klúbb. Við sem búum hérna litum gjarnan á Nesið, sem smáþjóðfélag og samstaða er sennilega meiri hér en viða i einstökum borgarhlutum. ..Sólarlagið er oft fallegt hérna á Nesinu, þessa mynd málaði ég i baöherberginu, þegar litadýrðin var ómótstæðileg”. Timamyndir: Róbert /■

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.