Fréttablaðið - 09.12.2004, Síða 79

Fréttablaðið - 09.12.2004, Síða 79
FIMMTUDAGUR 9. desember 2004 35 Það er kannski ekki furða að einhverj- ir spyrji sig þessarar spurningar eftir að Knattspyrnusamband Íslands vildi ekki framlengja samninginn við Helenu Ólafsdóttur, þjálfara kvennalandsliðs- ins í knattspyrnu. Helenu var tjáð að ástæðurnar hefðu verið þær að hún hefði misst virðingu leikmanna auk þess sem árangur á heimavelli hefði verið slakur á árinu. Það er auðvitað gott og blessað að hafa metnað fyrir hönd kvennalandsliðsins í knattspyrnu og ber að hrósa forystu KSÍ fyrir það en það skýtur skökku við að Helena skuli vera látin gjalda fyrir „lélegt“ gengi kvennalandsliðsins á meðan Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson sitja sem fastast sem þjálfarar karlalandsliðsins þrátt fyrir að hafa aðeins unnið einn leik af níu á árinu og hrapað um 32 sæti á styrkleika- lista Alþjóða knattspyrnusambandsins það sem af er árinu, nokkuð sem engin önnur þjóð í heiminum getur státað af. Ásgeir og Logi hafa flotið áfram á góðu gengi í kjölfar þess að þeir tóku við af Atla Eðvaldssyni og væru sjálfsagt varla í starfi nema vegna þess að tveir leikir gegn Færeyingum og einn gegn Litháum unnust og jafntefli náðist gegn Þjóð- verjum. Eftir þann leik hefur leiðin legið í frjálsu falli niður á við en forysta sam- bandsins hefur kosið að sitja aðgerðarlaus á meðan karlalandsliðið skipar sér á bekk með ekki „ómerkari“ þjóðum en Tógó og Túrkmenistan á styrkleikalista Al- þjóða knattspyrnusambandsins. Í Laugardalnum hafa menn engar áhyggjur heldur sitja með hendur í skauti, að- gerðarlausir, og vonast til að þetta blessist allt. Öðru máli gegnir með kvennalandsliðið. Þar var liðið tveimur leikjum frá því að komast í úr- slitakeppni Evrópumótsins en vegna slæmra úrslita gegn þremur stórþjóðum, Frakklandi, Rússlandi og Noregi, var ákveðið að grípa til að- gerða strax. Engu máli skiptir þótt Ásthildur Helgadóttir, sem er að öðrum ólöstuðum yfir- burðamaður í liðinu, væri meidd og fjarverandi. Úrslitin voru ekki ásættanleg fyrir forystu KSÍ. Fjarvera Ásthildar er svipuð og ef Eiður Smári Guðjohnsen væri ekki með karlalandsliðinu. Menn geta rétt ímyndað sér hversu gáfulegur leikur liðsins yrði ef hans nyti ekki við og þau væru ekki mörg mörkin sem við værum búnir að skora í undankeppni HM ef við hefðum hann ekki. Forysta KSÍ ætti að sjá sóma sinn í því að vera sjálfri sér samkvæm. Ísinn er brotinn, fyrsti þjálfarinn er farinn og það væri við hæfi og reyndar mjög eðlilegt að Eggert Magnússon, formaður KSÍ, gengi nú alla leið og hreinsaði til hjá karlaliðinu. Annars er það ljóst að kröfurnar til kvennalandsliðsins eru meiri en til karlalandsliðsins og menn geta spurt sjálfa sig hvort það sé eðlilegt og hvort jafnréttisbaráttan sé ekki kominn út í öfgar. oskar@frettabladid.is ÓSKAR HRAFN ÞORVALDSSON ÍÞRÓTTAFRÉTTAMAÐUR UTAN VALLAR KRÖFUR KSÍ Á KARLA- OG KVENNALANDSLIÐ ÍSLANDS Keflavík mætir Madeira í Portúgal í kvöld: Þrettán stig í forgjöf KÖRFUBOLTI Keflavík sækir portú- galska liðið CAB Madeira heim í bikarkeppni Evrópu í körfuknatt- leik í kvöld. Liðin mættust á heimavelli Keflvíkinga 10. nóv- ember sl. og unnu heimamenn ör- uggan sigur, 114-101. Madeira hefur ekki staðið undir vænting- um og aðeins unnið tvo leiki, tap- að þremur og vermir botnsæti rið- ilsins fyrir leikinn í kvöld. Liðið tapaði óvænt fyrir Reims í fyrra- kvöld og minnkaði þar með mögu- leika sína á að komast áfram. Ef Keflavíkurliðið ber sigur úr býtum tryggir það sér annað sæti riðilsins og er öruggt áfram. Madeira þarf hins vegar að leggja Keflavík með meira en 13 stiga mun til að næla sér í annað sætið. Tapi Keflvíkingar með meira en 13 stiga mun í kvöld á liðið engu að síður möguleika á að kom- ast áfram þar sem tvö bestu liðin í þriðja sæti riðlanna tryggja sér áframhaldandi þátttöku. ■ NICK BRADFORD Treður með tilþrifum. Hann náði sér ekki á strik í síðasta leik og skoraði aðeins 9 stig. Gerir KSÍ meiri kröfur til kvennalandsliðsins?
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.