Fréttablaðið - 12.01.2005, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
MIÐVIKUDAGUR
KÖRFUBOLTALEIKUR 1. deildarlið
Njarðvíkur og Grindavíkur í körfuknattleik
kvenna eigast við í Njarðvík klukkan 19.15.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
12. janúar 2005 – 10. tölublað – 5. árgangur
STJÓRNVÖLD AÐHAFAST EKKI
VEGNA KLÓRVERKSMIÐJU
Umhverfisráðuneytið telur ekki ástæðu til
að aðhafast vegna vinnslu klórs í Kópavogi
án starfsleyfis á þessu stigi málsins. Ráðu-
neytisstjóri segir að treysta verði Heilbrigð-
iseftirliti bæjarins til að tryggja öryggi íbúa
svæðisins. Sjá síðu 2
SKATTSKYLDAN ER TVÍMÆLA-
LAUS Ríkisskattstjóri telur engan vafa
á því að portúgalskir leigustarfsmenn
eigi að borga skatta hér. Impregilo segist
hafa borgað 130 milljónir í skatt vegna
þessara starfsmanna og vill fá þá peninga
til baka. Fyrirtækið hefur áfrýjað til Yfir-
skattanefndar. Sjá síðu 4
GEÐSJÚKIR RIFNIR UPP MEÐ
RÓTUM Arnarholti verður lokað um
næstu mánaðamót. Aðstandandi sjúklings
þar segir það ómannúðlegt að fólkið skuli
rifið upp með rótum og flutt annað, í
sparnaðarskyni, jafnvel til bráðabirgða. Enn
er eftir að flytja 18 manns af 30. Sjá síðu 6
Kvikmyndir 30
Tónlist 28
Leikhús 28
Myndlist 28
Íþróttir 24
Sjónvarp 32
BJARTVIÐRI SUÐVESTAN TIL
Snjókoma eða él norðan og norð-austan til.
Frost 0-8 stig, kaldast til landsins. Sjá síðu 4
Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
KÁRAHNJÚKAR Fulltrúar ítölsku
verkalýðsfélaganna og Alþjóða
byggingasambandsins koma til
Íslands í næstu viku til að styðja
íslenska verkalýðshreyfingu og
kynna sér aðstæður og aðbúnað
starfsmanna á Kárahnjúkum. Al-
þjóðlega sendinefndin fer beint að
Kárahnjúkum og sest svo á fund
með fulltrúum íslensku verka-
lýðshreyfingarinnar á föstudag.
Tilgangur fundarins er að fá
„siðferðilegan stuðning, afla
skilnings Ítalanna á því hvað er í
gangi á Kárahnjúkum og hugsan-
lega reyna að ná alþjóðlegu sam-
komulagi við Impregilo því að
Impregilo starfar ekki bara hér á
landi. Þetta er alþjóðlegt fyrir-
tæki,“ segir Guðmundur Gunnars-
son, formaður Rafiðnaðarsam-
bandsins.
Rafiðnaðarsambandið, Samiðn
og Starfsgreinasambandið eru fé-
lagar í norrænu, evrópsku og al-
þjóðlegu byggingasamböndunum.
Í þessum samböndum eru líka
systurfélög þessara sambanda á
Ítalíu. Guðmundur er í stjórn evr-
ópska sambandsins og formaður
Samiðnar er í stjórn norræna
sambandsins og hafa þeir unnið að
þessum fundi.
„Í gegnum þessi sambönd
hefur starfsfólk sambandanna í
Sviss verið beðið um að ræða við
ítölsku systurfélögin og kanna
hvort hægt væri að komast í færi
við Impregilo á heimavelli og ná
samningi við það. Þá er verið að
velta fyrir sér samstarfssamningi
á alþjóðlegum grundvelli. Við
erum með svoleiðis samninga, t.d.
við Ikea og Skanska og ýmis
stærri fyrirtæki sem eru með al-
þjóðlega starfsemi. Við viljum
kanna hvort hægt sé að fá Impreg-
ilo til að ræða við okkur á þessum
nótum.“
Guðmundur segir að talsmenn
Impregilo hafi „látið líklega niðri
á Ítalíu en við ætlum að fá fulltrúa
verkalýðsfélaganna hingað til að
sjá með eigin augum hvað við
erum að tala um.“ Glíman við
Impregilo hafi verið heilmikil,
aðeins toppurinn á ísjakanum hafi
birst í fjölmiðlum.
Sjá bls. 4.
- ghs
Alþjóðlegur þrýst-
ingur á Impregilo
Fulltrúar ítölsku verkalýðsfélaganna og Alþjóða byggingasambandsins koma til Íslands um
miðja næstu viku til að styðja íslenska verkalýðshreyfingu. Reynt verður að ná alþjóðlegu
samkomulagi við Impregilo líkt og dæmi eru fyrir við önnur alþjóðleg fyrirtæki.
● hrafninn flýgur í sjóræningjaútgáfu
Gefur út DVD-disk
á alþjóða vísu
Hrafn Gunnlaugsson:
▲
SÍÐA 36
● heilsa ● nám
Virkjar nýjar
heilastöðvar
Margrét Pétursdóttir:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Handteknir í Þýskalandi:
Fíkniefni á
leið til Íslands
FÍKNIEFNI Tveir íslenskir sjómenn
hafa verið úrskurðaðir í sex mán-
aða gæsluvarðhald í Þýskalandi. Í
klefum mannanna, sem eru skip-
verjar á Hauki ÍS, fundust þrjú og
hálft kíló af kókaíni og svipað
magn af hassi við fíkniefnaleit í
síðustu viku.
Mennirnir gætu átt allt að
fimmtán ára fangelsi yfir höfði
sér. Ljóst er að efnin áttu að fara á
markað hér á landi. Skipið var
rétt ófarið frá Bremerhaven í
Þýskalandi þegar leitin var gerð
og ekki stóð til að skipið myndi
hafa viðkomu í öðrum höfnum á
leið sinni til Íslands.
- hrs
Sjá nánar bls. 2
LÖGREGLAN GENGUR UM BORÐ Tveir skipverjar á Hauki ÍS hafa verið úrskurðaðir í sex mánaða gæsluvarðhald í Þýskalandi. Skipið
lagði að bryggju í Hafnarfirði á ellefta tímanum í gærkvöldi.
MIÐ-AUSTURLÖND Ariel Sharon,
forsætisráðherra Ísraels, og
Mahmoud Abbas, nýkjörinn for-
seti heimastjórnar Palestínu,
ræddust við í síma í gær og sam-
þykktu að funda saman innan
skamms. Þó engin dagsetning hafi
verið ákveðin er búist við því að
fundur þeirra verði haldinn innan
hálfs mánaðar.
Sharon hringdi í Abbas í gær til
að óska honum til hamingju með
sigurinn í kosningunum á sunnu-
dag. Fyrr um daginn hafði Sharon
sagt stjórn sinni að hann ætlaði
sér að hitta Abbas fljótlega og
sagði þeim að markmiðið væri að
flýta fyrir nokkrum málum, eink-
um því að Palestínumenn bindu
enda á hryðjuverk gegn Ísraelum.
Ný ríkisstjórn Sharons, með
þátttöku Verkamannaflokksins og
nokkurra flokka strangtrúaðra
gyðinga, hlaut samþykki þingsins
í gær, en með naumindum þó.
58 þingmenn lýstu stuðningi við
stjórnina en 56 andstöðu. Meðal
þeirra sem greiddu atkvæði gegn
stjórninni voru þrettán þingmenn
Likud-bandalags Sharons. ■
Ísraelska þingið veitir nýrri stjórn brautargengi:
Abbas og Sharon samþykkja að hittast
BYGGIR MEÐ ÞÉR
Janúartilboð
fylgir blaðinu í dag!
DAGAR EFTIR AF
JANÚARTILBOÐI TOYOTA
20
Yaris 1,0 Terra, 5 dyra
Tilboðsverð
1.269.000 kr.
AFTUR SAMAN Í STJÓRN
Ariel Sharon og Shimon Peres sátu ríkis-
stjórnarfund í gær. Þeir hafa áður setið
saman í stjórn en hún sprakk.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M