Fréttablaðið - 12.01.2005, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 12.01.2005, Blaðsíða 10
MILTISBRANDUR Kýr frá bóndabæn- um Sunnuhvoli í Reykjavík, sem var á sinni tíð í hvilftinni þar sem Austurbæjarapótek er nú, veiktust af miltisbrandi og voru flestar grafnar einhvers staðar í námunda við býlið, að sögn Sig- urðar Sigurðssonar, dýralæknis sauðfjár- og nautgripasjúkdóma hjá yfirdýralæknisembættinu. „Það þótti alveg öruggt að þarna hefðu 4-5 kýr sýkst af miltisbrandi og þær voru settar í eina stóra gröf,“ sagði Sigurður. „Ein kýrin liggur undir Hlemmi sjálfum.“ F o r n l e i f a - fræðingar ræddu stöðu miltis- brandsmála á aðalfundi sínum nýverið. Stein- unn J. Kristins- dóttir fornleifa- f r æ ð i n g u r sagði að menn teldu vitneskj- una um stað- setningu miltis- brandssýktra svæða afar mikilvæga. Þá væri afar brýnt að fólk væri meðvitað um að miltisbrandur væri til staðar hér á landi og úr- ræði til að forðast hann. Kristín Huld Sigurðardóttir, forstöðumaður Fornleifaverndar ríkisins, sagði að Fornleifavernd, sem veitti leyfi til rannsókna og væri stjórnsýslustofnun sem gæti tekið afgerandi ákvarðanir, væri í nánu samstarfi við yfir- dýralækni og Sigurð Sigurðarson varðandi umsóknir um rann- sóknarstaði, svo og margþætta upplýsingamiðlun. „Samkvæmt þjóðminjalögum getum við stöðvað framkvæmdir ef eitthvað er að,“ sagði Kristín Huld. „Hingað til hefur þessu ákvæði verið beitt sé fólk að grafa í óleyfi og jafnvel hætta á því að fornminjum sé spillt. Telj- um við að grunur sé um miltis- brandsmengun getum við stöðv- að framkvæmir á því svæði, samkvæmt ákvæði laganna.“ Sigurður Sigurðarson sagði að tilkynnt hefði verið um grunuð miltisbrandssýkt svæði allt frá Hafnarfirði, til Reykjavíkur og út á Seltjarnarnes. „Það er margsinnis sagt frá tilfellum veikinnar sjálfrar í Reykjavík,“ sagði Sigurður, „en það þarf að fara betur ofan í þau gögn. Ég hef hug á að leita til Umhverfis- n e f n d a r Reykjavíkur til að athuga hvort þeir geti ekki komið inn í þá vinnu.“ Spurður um grunuð miltisbrandssvæði í Reykjavík kvaðst Sigurður ekki hafa heyrt um nema tvö til þrjú, þótt vafalaust væru þau miklu fleiri. jss@frettabladid.is 10 12. janúar 2005 MIÐVIKUDAGUR SKÍÐAKAPPI TEKST Á LOFT Ferð Bandaríkjamannsins niður svigbraut- ina í Adelboden í Sviss lauk öðruvísi en hann hafði hugsað sér þegar hann missti jafnvægið, tókst á loft og lenti harkalega. Hann slapp vel frá óhappinu, stóð upp og gekk í mark. Óhappið átti sér stað á Heimsmeistaramótinu í risasvigi. LANDBÚNAÐUR Síðustu fimm mán- uði hefur meðalverð á mjólkur- lítra í kvótaviðskiptum bænda hækkað um rúm 17 prósent. Fyrsta janúar síðastliðinn var meðalverð á lítra 308 krónur, en var í byrjun september 263 krón- ur. Verð í einstökum kaupum á kvóta getur þó verið töluvert hærra en meðalverðið segir til um. Í nóvember þótti kvótaverð hafa náð nýjum hæðum þegar greiddar voru 360 krónur fyrir kvóta, en í síðasta mánuði heyrð- ust þó enn hærri tölur, eða allt upp í 400 krónur á lítrann. „Ég er nú ekki farinn að sjá svoleiðis tölur á neinum pappírum,“ sagði Erna Bjarnadóttir, sviðsstjóri hjá Bændasamtökunum, en hún held- ur utan um birtingu meðalverðs á greiðslumarki mjólkur á vef sam- takanna. Hún bendir á að ákveð- inn fyrirvara verði að setja við tölurnar því mismunandi geti verið til hvaða tímabils greiðslu- markið nái og hvort það sé full- nýtt eða ekki. Þannig gerir hún síður ráð fyrir að verð haldi áfram að hækka nú þegar líður á vorið. - óká Miltisbrandur undir Hlemmi Nautgripur sem drapst af miltisbrandi er grafinn undir Hlemmi í Reykjavík. Hann var frá bóndabýlinu Sunnuhvoli í Reykjavík. Fornleifavernd ríkisins hyggst styðjast við gildandi lög um að stöðva fram- kvæmdir ef grunur leikur á miltisbrandsmengun. Skoda Fabia sameinar sportlegt útlit og einstakt notagildi. Bíllinn er búinn ríkulegum staðalbúnaði en fæst nú með veglegum aukahlutapakka á frábæru verði. Meðal aukabúnaðar má nefna rafmagn í framrúðu, geislaspilara, þokuljós í stuðara, leður á stýri, gírstöng og handbremsu. Síðast en ekki síst er bíllinn með sóllúgu og 14” álfelgum, sem gera hann enn glæsilegri. Svona búinn kostar Skoda Fabia Terno aðeins 1.490.000 kr. Það er vit í því. SkodaFabia 1.490.000 kr.Fabia Terno Fæst nú einnig sjálfskiptur í Combi–útgáfu Afborgun á mánuði er aðeins 14.615 kr.* Í FJÓSINU AÐ MIKLAHOLTI Í bændastétt finnast þeir sem óttast verðþróun mjólkurlítra í kvótaviðskiptum þar sem hátt lítraverð þýði skuldsettari bú í fjármagnsfrekum rekstri. Mikil eftirspurn er eftir mjólk- urkvóta og framboð lítið, vegna mikillar sölu undangenginna ára.VERÐÞRÓUN MJÓLKURKVÓTA: Dagsetning Lítraverð 1. september 263 kr. 1. október 268 kr. 1. nóvember 265 kr. 1. desember 295 kr. 1. janúar 308 kr. Heimild: Bændasamtök Íslands Heilbrigðisútgjöld: Aldrei meiri vestanhafs BANDARÍKIN Bandaríkjamenn hafa aldrei varið hærra hlutfalli af þjóð- artekjum í heilbrigðismál en árið 2003. Alls vörðu þeir 1,7 billjónum dollara, andvirði um 108 billjóna (með tólf núllum) króna. Þetta nemur 15,3 prósentum af vergri þjóðarframleiðslu Bandaríkjanna og er það í fyrsta skipti sem út- gjöld til heilbrigðismála fara yfir fimmtán prósent af vergri þjóðar- framleiðslu. Dagblaðið New York Times greinir frá þessu í gær, en þar kem- ur jafnframt fram að dregið hefur úr útgjaldaaukningu til heilbrigðis- mála þrátt fyrir að hún sé meiri en vöxtur efnahagslífsins í heild. ■ GEORGE W. BUSH Fleiri eru ánægðir með frammistöðu for- setans nú en fyrir mánuði. Skoðanakönnun vestra: Helftin sátt við Bush BANDARÍKIN Naumur meirihluti Bandaríkjamanna er sáttur við frammistöðu George W. Bush Bandaríkjaforseta samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem Gallup gerði fyrir CNN og dagblaðið USA Today. 52 prósent eru ánægð með frammi- stöðu hans en 44 prósent óánægð. Svarendur lýstu mestri ánægju með hvernig hann hefði brugðist við náttúruhamförunum í Asíu (75 prósent ánægð) en minnstri ánægju með áform hans um að breyta almannatryggingakerfinu (41 pró- sent). ■ HLEMMUR Fullvíst þykir að nautgripur frá þáverandi bóndabýlinu Sunnuhvoli í Reykjavík hafi drepist úr miltisbrandi og verið huslaður á Hlemmi. ,,Ein kýrin liggur undir Hlemmi sjálfum.“ Áhyggjur kúabænda: Mjólkurdropinn að verða æ dýrari SIGÐURÐUR SIGURÐARSON Safnar upplýsingum um miltisbrands- sýkt svæði á Íslandi. SUNNUHVOLL Var býli suðvestan í Rauðarárholti, stofnað 1891, að því er segir í bók Páls Líndal, Reykjavík, sögustaður við Sund. Á myndinni sem tekin var 1912 er Sunnuhvoll, sem stóð á sömu slóðum og Austurbæjarapótek er nú. Grunuð milt- isbrands- svæði í Reykjavík eru tvö til þrjú, þótt vafalaust séu þau miklu fleiri.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.