Fréttablaðið - 12.01.2005, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 12. janúar 2005
Innritun fyrir vorönn 7. - 17. janúar á www.fa.is
Fjarnám allt árið - þitt nám þegar þér hentar
Skólameistari
Sund er íþrótt fyrir alla aldurshópa – er bæði
hóp- og einstaklingsíþrótt, styrkir sál og líkama,
er góð leið til sjálfsaga og er síðast en ekki síst
góður félagsskapur.
Sunddeild Ármanns
Sund fyrir byrjendur
Sundnámskeið fyrir byrjendur 5 – 10 ára
hefjast í Árbæjaskóla og Sundhöll Reykjavíkur.
Upplýsingar eru gefnar upp í síma 847-2359 (Þórunn)
Hægt er að skrá sig á thorunng@internet.is og fribbi@simnet.is
Allar almennar upplýsingar eru á http://www.armenningar.is/sund
Alfanámskeið hafa rutt sér til
rúms innan kirkju og félaga-
samtaka á síðustu árum.
„Námskeiðin eru fyrir almenning
og fjalla um ýmis grundvallar-
atriði í kristindómnum. Þar er
áhersla lögð á afslappað og þægi-
legt andrúmsloft og eðlilegt málfar
en guðfræðileg hugtök eru lögð til
hliðar,“ segir Ragnar Snær Karls-
son hjá KFUM og K þegar hann er
spurður um hvað Alfanámskeið
snúist en eitt slíkt hefst 17. janúar
kl. 19 í húsakynnum KFUM og K
við Holtaveg. Ragnar segir hvert
kvöld byggjast upp á fyrirlestri en
ávallt sé samt byrjað á að borða
saman og spjalla. „Máltíðin hefur
samfélagslegt gildi. Fólk kynnist
þar og talar saman um daginn og
veginn. Svo er fyrirlestur í 40 mín-
útur og síðan kemur fólk saman í
hópum til frjálsra umræðna. Þar er
enginn knúinn til að tjá sig en
menn mega varpa fram spurning-
um og hugmyndum hvort sem er út
frá fyrirlestrinum, kristindómnum
eða almennum siðferðilegum hugs-
unum.
Ragnar segir námskeiðin mjög
ódýr og telur þau nýtast öllum
hvort sem þeir hafi mikla eða litla
þekkingu á viðfangsefninu fyrir.
Þau standa í 10 kvöld og eru
einu sinni í viku. Eftir 5. til 6. skipti
er farið í Vindáshlíð eina helgi og
þar er talað um ýmislegt sem er
ofar hversdagslegum hlutum. ■
Alfanámskeiðin hjá KFUM og K eru annars vegar fyrir 20 ára og eldri og hins vegar
fyrir 16 til 20 ára. Þessi mynd var tekin á unglinganámskeiði.
Gildi lífsins rædd í
afslöppuðu andrúmslofti
Tónlistarskóli Þorsteins Gauta
Grensásvegi 5
Píanónám. Einkatímar eða hóptímar.
Óskum eftir að ráða píanókennara og gítarkennara sem
geta kennt í einkatímum og/eða hóptímum.
Uppl. í símum 5516751 og 6916980
pianoskolinn@pianoskolinn.is
Full ökuréttindi og vinnuvélaréttindi eru hagnýt fjárfesting fyrir marga.
„Meiraprófið skapar mörgum
atvinnu,“ segir Svavar Svavars-
son hjá Nýja ökuskólanum og
er bjartsýnn á nýja árið. Hann
segir ávallt mikla aðsókn að
skólanum, meðal annars
svokölluðum meiraprófsnám-
skeiðum en þau þarf að taka
til að aka leigubíl og vörubíl
svo dæmi sé tekið. „Flestir
þeirra sem sækja um aukin
ökuréttindi eru ekki með fram-
haldsskólapróf en þeir eru líka
til sem eru í háskólanámi og
vinna fyrir sér á sumrin á vöru-
bílum eða fólksflutningabílum. Þeir sem tóku bílpróf eftir 1992 eru með svo lítil
ökuréttindi. Þeir mega til dæmis ekki aka amerískum pallbílum. Við sem tókum
prófið fyrir þann tíma megum hins vegar keyra bíl með fimm smálesta burðar-
getu þó bíllinn sjálfur sé 100 tonn.“ Að sögn Svavars kosta full ökuréttindi um
148 þúsund krónur. Hann segir öll ökupróf hafa hækkað um þúsund krónur í
fyrradag og hafi það komið flatt upp á prófdómara og ökukennara. „Skýringin
sem við fáum er sú að þetta sé gjald vegna Umferðarstofu,“ segir hann.
Meiraprófið skapar mörgum atvinnu