Fréttablaðið - 12.01.2005, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 12.01.2005, Blaðsíða 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is Dreifing: 515 7520 Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 – fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000 LEIKUR SMS 99kr.bíómiðar2 Sendu SMS skeytið JA OBF á númerið 1900 og þú gætir unnið 99 kr/skeytið ÍS LE N SK A A U G L† SI N G A ST O FA N /S IA .I S T O Y 26 85 8 01 /2 00 5 Avensis SD, 1,8 l, Í Avensis upplifir þú framúrskarandi afköst og nýtur gríðarlega mikils staðalbúnaðar. Innri hönnun bílsins einkennist af miklu rými og þægindum fyrir ökumann og farþega. Avensis hefur sjálfvirkan regnskynjara á þurrkum, tölvustýrða loftræstingu í miðstöð, hágæða hljómflutningstæki og afar fullkominn hemlunar- og öryggisbúnað. *Bílasamningur Glitnis með 10% út og eftirstöðvar í 84 mánuði. 50% erlend/50% íslensk mynt, 29.900 kr. www.toyota.is Yaris 1,0 Terra, 5 dyra Frumleiki endurspeglast í allri hönnun Yaris, hvort heldur sem litið er til straumlínulögunar, þægilega hárrar sætisstöðu, mismunandi sætastillinga eða snjallrar geymsluhönnunar. Yaris er hagkvæmur bíll sem hentar annasömu borgarlífi einstaklega vel. Þess vegna er Yaris hrein unun að horfa á, eiga og aka. *Bílasamningur Glitnis með 10% út og eftirstöðvar í 84 mánuði. 50% erlend/50% íslensk mynt, 16.850 kr. Í DAG, Á MORGUN OG ALLAN JANÚAR EKKI MISSA AF ÞESSU TÆKIFÆRI Tilboðsverð 2.220.000 kr. Þessi tilboð eiga enga sína líka. Núna eignast þú nýjan Toyota! Í samstarfi við Tilboðsverð 1.269.000 kr. RAV4, 2,0 l RAV4 er fáanlegur í fimm dyra útfærslu, 2,0 l 4WD og í svokallaðri EXE-útfærslu. Báðar eru ríkulega búnar staðalbúnaði og má þar nefna ABS-hemlakerfi með EBD, hemlunarhjálp (BA), útvarpsfjarstýringu í stýri, geislaspilara, hita í sætum, SRS-hliðarloftpúða og loftpúðatjöld til viðbótar við SRS- loftpúðana í framsætunum. *Bílasamningur Glitnis með 10% út og eftirstöðvar í 84 mánuði. 50% erlend/50% íslensk mynt, 34.200 kr. Corolla Sedan, 1,4 l Corolla er ríkulega hlaðinn staðalbúnaði og má þar nefna fjóra loftpúða fyrir ökumann og farþega, ABS-hemlakerfi, krumpu- svæði, Optitron-mæla í mælaborði og útvarpsfjarstýringu í stýri, svo fátt eitt sé nefnt. Það er sama hvaða gerð Corolla höfðar til þín, falleg hönnun, öryggi, framúrskarandi aksturs- eiginleikar og frábært verð einkenna þær allar. *Bílasamningur Glitnis með 10% út og eftirstöðvar í 84 mánuði. 50% erlend/50% íslensk mynt, 22.600 kr. Tilboðsverð 2.590.000 kr. Tilboðsverð 1.709.000 kr. Toyota Nýbýlavegi KÓPAVOGUR Sími 570-5070 Bílaleiga Húsavíkur Garðarsbraut 66 HÚSAVÍK Sími: 464-1888 Toyota Akureyri Baldursnesi 1 AKUREYRI Sími: 460-4300 Bílatangi hf. Suðurgötu 9 ÍSAFJÖRÐUR Sími: 456-4580 Bifreiðaverkstæði Borgþórs Miðási 2 EGILSSTAÐIR Sími: 471-1436 Hraun sf. Hafnarbraut 40 HÖFN Sími: 478-1991 Kristján Ólafsson Höfðavegi 33 VESTMANNAEYJAR Sími: 481-2323 Toyotasalurinn Njarðarbraut 19 260 REYKJANESBÆR Sími: 421-4888 Toyotasalurinn Fossnesi 14 SELFOSS Sími: 480-8000 NÝR TOYOTA Á TILBOÐI 29 .90 0 k r. á m ánu ði me ð bíla sam nin gi Gli tni s* 16 .85 0 k r. á m ánu ði me ð bíla sam nin gi Gli tni s* 34 .20 0 k r. á m ánu ði me ð bíla sam nin gi Gli tni s* 22 .60 0 k r. á m ánu ði me ð bíla sam nin gi Gli tni s* Hefndar- skyldan BAKÞANKAR ÞRÁINS BERTELSSONAR Meðan íslenska þjóðin var og hétskipti það meginmáli að menn héldu virðingu sinni með því að hefna grimmilega fyrir allar mis- gerðir. Hefndarskyldan var hverj- um sönnum Íslendingi í blóð borin og þessi heilaga skylda á sér því miklu eldri og sögulegri hefð heldur en það „barn síns tíma“ sem á að stjórna hegðun okkar nú um stundir og við köllum „stjórnarskrá“. NÚ ERU AÐ VÍSU runnir upp aðrir tímar og mýkri og þess er ekki lengur beinlínis krafist að menn brenni andstæðinga sína inni eða liggi fyrir þeim í leyni í misjöfnu veðri við reiðgötur til að stúta þeim. Engu að síður verða menn að vera vandir að virðingu sinni og með lagi er lafhægt að hefna sín snoturlega enn þann dag í dag, til dæmis með því að gera óþægilega menn at- vinnulausa eða leggja niður stofnan- ir eða svelta til hlýðni. HEFNDARSKYLDAN er heilög enn í dag, því að hvernig ætti ann- ars að vera hægt að halda uppi vald- stjórn sem sér um að almenningur borgi skattana sína einu sinni í mán- uði og fái að velja sér stjórnmála- flokk á fjögurra ári fresti? Vald byggist á virðingu og undirstaða virðingar er óttinn. Ef einhver efast um þá staðhæfingu er sá hinn sami beðinn um að bera saman friðinn í skólastofu fyrir og eftir þá byltingu sem varð þegar kennurum var bannað að bera vopn eins og hrís- vendi eða reglustikur til að halda uppi nauðsynlegum aga. LANDIÐ er orðið eins og stór skólastofa þar sem hávaðabelgir og afturhaldskommatittir vaða uppi með frekju og kjafthátt og vitna í stjórnarskrána ef lærifaðirinn ætlar að áminna þá með því að lemja þá leiftursnöggt í hausinn með reglu- stiku (það er ekki eins og maður sé að tala um öxina Rimmugýgi). Þjóð- in (nemandinn) setur sig á háan hest og telur sig ekki lengur þurfa að bera virðingu fyrir kennurunum (al- þingismönnum) og ekki einu sinni skólastjóra (utanríkisherra) eða yf- irkennurum (ráðherrum). Ef reglu- stikunni er brugðið á loft er kallað í umboðsmann barna (forsetann). Þetta kann ekki góðri lukku að stýra. Þess vegna verðum við að breyta stjórnarskránni. Agi verður að vera í hernum, sagði góði dátinn Svejk. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.