Fréttablaðið - 12.01.2005, Blaðsíða 46
34 12. janúar 2005 MIÐVIKUDAGUR
Kvikmyndin Hrafninn flýgur eftir
Hrafn Gunnlaugsson gengur nú
frítt manna á milli á vefsvæðinu
PirateBay.org. Á vefsvæðinu er
hægt að nálgast svokallaðar sjó-
ræningjaútgáfur, eða ólöglegar út-
gáfur, af hinum ýmsu kvikmynd-
um, þar á meðal Korpen flyger eða
Hrafninn flýgur.
„Mig óraði ekki fyrir því að
myndin væri þetta eftirsóknar-
verð. Það segir mér bara að ein-
hver vill horfa á myndina og það er
ánægjulegt að einhver hafi áhuga
á henni,“ segir Hrafn.
Notendur vefsvæðisins Pira-
teBay.org eru mishrifnir af kvik-
myndinni. Á spjallsvæði notenda
segjast sumir hafa leitað lengi að
myndinni og að hún sé „költ“ á
meðan aðrir segjast ekki skilja
hvernig fólk geti hrifist af henni;
leikurinn, tónlistin, kvikmyndatak-
an og fleira séu arfaslök.
„Ég er skíthræddur að kvali-
tetið og formið á myndinni fari til
spillis í sjóræningjaútgáfunni. Það
fer meðal annars úr köntunum á
henni. Þetta er eins og með boot-
leg-tökur af lögum, þú færð aldrei
sömu gæðin,“ segir Hrafn. „Mynd-
in virðist klassísk að því leyti að
hún er alltaf að skjóta upp kollin-
um á furðulegustu stöðum.“
Hrafn vinnur nú sjálfur að út-
gáfu myndarinnar á DVD-disk
fyrir alþjóðlegan markað. Á ensku
ber myndin nafnið When the
Raven Flies. „Ég ætla að semja um
að hún komi út á sem flestum
tungumálum. Ég er búinn að semja
um að hún komi út með spænsku,
ensku og frönsku tali, allt eftir vali
áhorfenda, auk þess sem hægt
verður að kalla fram texta á kín-
versku, sænsku, þýsku og ara-
bísku. Það er skemmtilegast þegar
myndin er döbbuð (talsett). Hún
var döbbuð á þýsku á sínum tíma
en ég finn þá útgáfu því miður
ekki.“
Á DVD-diskinum, sem er vænt-
anlegur um páska, verður einnig
að finna ýtarefni, þar á meðal upp-
runalegu tónlistina og viðtöl við
leikara um gerð myndarinnar.
Hrafn óttast ekki samkeppnina
við sjóræningjamarkaðinn: „Ég
býst við að þeir sem tryggi sér sjó-
ræningjaútgáfuna muni einnig fá
sér DVD-diskinn þegar hann kem-
ur út.“
kristjan@frettabladid.is
Bandaríski leikarinn og uppistands-
grínarinn Jamie Kennedy kemur
við sögu í Ópinu í Sjónvarpinu í
kvöld. Þóra Tómasdóttir tók á móti
Kennedy daginn áður en hann flaug
heim eftir vel heppnaða Íslands-
heimsókn og leysti hann út með göf
sem hitti heldur betur í mark hjá
kappanum.
„Við gáfum honum innrammað-
an dóm sem sýningin hans á Broad-
way fékk í Morgunblaðinu en dóm-
urinn var vægast sagt neikvæður,“
segir Þóra sem hafði jafnframt látið
snara því allra harkalegasta úr um-
sögninni yfir á ensku svo það færi
ekkert fyrir ofan garð og neðan hjá
Kennedy hvað gagnrýnandanum
fannst um sýninguna.
„Honum fannst þetta mjög
fyndið og fullyrti að hann myndi
hengja hann upp á vegg heima hjá
sér í Los Angeles.“
Ísleifur Þórhallsson, sem flutti
Kennedy til landsins, var ekki jafn
hress með Moggadóminn og hyggst
svara honum á prenti, ekki síst
þar sem upplifun gagnrýnandans
virðist alveg á skjön við meirihluta
áhorfenda sem hlóu dátt að Íslands-
gríni Kennedys. Ísleifur staðfestir
þó að Kennedy hafi þótt þetta uppá-
tæki svo sniðugt að hann hafi ekki
skilið rammann við sig og hafi haft
hann undir hendinni þegar hann fór
um borð í flugvélina sem flutti hann
heim til Bandaríkjanna. ■
Jamie hló að vondum dómi
JAMIE KENNEDY Hafði gaman af því að láta sjá sig í þættinum Óp og fannst það vel við
hæfi þegar honum var sagt hvað nafn þáttarins þýðir á ensku, ekki síst þar sem hann
vakti á sínum tíma athygli fyrir leik sinn í Scream hryllingsmyndunum þannig að tengingar
hans við óp og öskur eru sterkar.
HRAFNINN FLÝGUR Helgi Skúlason í hlutverki sínu í myndinni Hrafninn flýgur eftir Hrafn Gunnlaugsson. Myndin er væntanleg um páska og verður þá talsett á spænsku, ensku og frönsku.
Sigurður Kári Krist-
jánsson alþingismaður.
Ég er fyrst og fremst
þeirrar skoðunar að
ágóðinn eigi að fara í að
greiða upp skuldir ríkis-
sjóðs. Ég tel það vera
mikilvægt til þess að
tryggja að hér munum
við búa áfram við gott
efnahagslíf og hagsæld.
Með því er búið í haginn
fyrir enn frekari skatta-
lækkanir á fólk og fyrir-
tæki. Einnig tel ég skynsamlegt að leggja hluta
upphæðarinnar til hliðar til að mæta auknum líf-
eyrisskuldbindingum ríkisins vegna nýrra kjara-
samninga. Vegna þess að kauphækkanir á opin-
bera markaðinum auka lífeyrisskuldbindingar ríkis-
ins og þeim verður að mæta með einhverjum
hætti. Einnig er ég opinn fyrir því að hluti af ágóð-
anum renni til brýnna og sérstakra verkefna sem
gætu reynst landsmönnum vel.
Katrín júlíusdóttir,
þingmaður Sam-
fylkingarinnar.
Það er nú svo margt
sem þarf að gera og
margar stofnanir sem
þurfa peninga. Mér líst
vel á það sem Kristján
Möller lagði til um að
peningarnir færu í
sjúkrahúsin. Einnig
myndi ég vilja sjá hluta
fara í menntakerfið og
þá framhalds- og háskólastigið. Það er staður sem
þarf virkilega á peningum að halda og við stöndum
nágrannaþjóðum langt að baki í framlagi til há-
skólakerfisins. Ég gæti reyndar sett upp langan
óskalista.
Hjálmar Árnason,
þingflokksmaður
Framsóknarflokksins
Svar mitt er mjög stutt. Í
fyrsta lagi þarf að sjá hvert
verðið verður. Í annan
stað óttast ég ekki að
skortur sé á samfélags-
legum verkefnum sem
hægt væri að verja fénu
til. Gott væri að ljúka upp-
byggingu dreifikerfisins,
velferðarkerfið almennt gæti vel notað peninga. Auk
þess þarf að styrkja stoðir ríkissjóðs. Það er sko alls
enginn skortur á verkefnum.
HVAÐ Á AÐ GERA VIÐ ÁGÓÐANN AF SÖLU LANDSSÍMANS?
… fá sex nemendur við Viðskipta-
háskólann á Bifröst sem hafa
reiknað það út að hagkvæmara
sé að notast við loftfar í stað
Herjólfs til að ferja fólk og frakt
yfir til Vestmannaeyja.
HRÓSIÐ
– hefur þú séð DV í dag?
Flytur til
Indlands
með málsókn
á bakinu
Ásta í Eskimó
Með Fréttablaðinu
alla fimmtudaga
Lárétt: 1 forlög, 5 húsdýr, 6 skóli, 7 í röð, 8 stúlka,
9 nöldur, 10 komast, 12 duft, 13 ending, 15 við-
skeyti, 16 plat, 18 blaut.
Lóðrétt: 1 innritun, 2 vel, 3 píla, 4 öryggi, 6 lista-
maður, 8 þvaður, 11 stúlkunafn, 14 traust, 17
tveir eins
Lausn.
Lárétt: 1sköp,5kýr, 6mr,7rs,8mey, 9nagg,10
ná12sag,13ist,15si,16narr, 18úrug.
Lóðrétt: 1 skráning,2kýs,3ör, 4trygging, 6me-
gas,8mas,11ása,14trú,17rr.
HRAFNINN FLÝGUR Á
NOKKRUM TUNGUMÁLUM:
Á þýsku Flugt des Rabens
Á dönsku Ravnen flyver
Á spænsku Ojo por ojo
Á frönsku Vol du Corbeau
Á norsku Ravnen flyr
HRAFN GUNNLAUGSSON: VINNUR AÐ ALÞJÓÐLEGRI ÚTGÁFU DVD-DISKS
Hrafninn flýgur í sjóræningjaútgáfu
1
5 6
87
9
12
15
10
13
16 17
11
14
18
2 3 4
■ VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á bls. 6
1
3
2
Guðjón Ólafur Jónsson.
Tæpt kíló.
The Filth eftir Grant Morrison
og Chris Weston.