Fréttablaðið - 12.01.2005, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 12.01.2005, Blaðsíða 22
Áhersla lögð á sjálfstyrkingu Guðbjörg Ósk Friðriksdóttir opnar í Hafnarfirði fyrstu Rope Yoga-stöðina á Íslandi þar sem námskeiðin eru sér- sniðin að þörfum einstakl- inga. „Í boði verða námskeið sem eru 5 vikna löng en fólk getur hagað tíma sínum eins og það vill. Það velur einfaldlega hversu oft það vill vera í viku og á hvaða tím- um það vill mæta og borgar svo námskeiðsgjaldið samkvæmt því, „ segir Guðbjörg Ósk eig- andi nýja Rope Yoga-stúdíósins og eini kennari þess. „Markmið mitt er að leigja öðrum Rope Yoga-kennurum aðstöðu hérna þannig að fólk geta valið á milli ólíkra tíma,“ segir Guðbjörg og tekur fram að hver kennari sé með mismunandi áherslur. „Ég legg mikla áherslu á sjálfstyrkingu og andlegan þátt Rope Yoga í mínum tímum en sjálf hef ég sótt mér fróðleik á námskeið á þeim sviðum,“ segir Guðbjörg Ósk sem mun gefa nemendum sínum kost á að spjalla við hana eftir hvern tíma ef einhverjar spurningar vakna, eða til að dýpka skilning þeirra á Rope Yoga. Auk þess býður Guðbjörg upp á aðstöðu í stöð- inni þar sem fólk getur sest nið- ur og gluggað í bækur og blöð sem tengjast andlegum efnum. „Ég mun einnig bjóða fólki einkatíma og geta jafnvel hópar keypt sérnámskeið sem er sér- sniðið að þeirra þörfum,“ segir Guðbjörg sem jafnframt ætlar að bjóða upp á lokað 8 vikna námskeið þar sem farið er sé- staklega í kenningar Rope Yoga og þau 7 þrep sem fólk getur farið í gegnum. Rope Yoga- stöðin hóf starfsemi sína um síð- ustu helgi að Bæjarhrauni 22 og hægt er að nálgast frekari upp- lýsingar í síma 555 3536 eða 695 0089. ■ Með Fréttablaðinu alla fimmtudaga Vi› segjum fréttir Einföld, mjúk og áhrifarík meðferð sem farið hefur sigurför um Evrópu. Virkar vel á hverskonar vandamál. Kennt á Íslandi 21. nóv - 24. nóv 2003 á AKUREYRI. Íslenskt námsefni og íslenskur kennari. Námskeið í Bowen Tækni Upplýsingar og skráning: Margeir s. 897-7469 og 421-4569 jmsig@simnet.is www.thebowentechnique.com Einföld, mjúk og áhrifarík meðferð sem farið hefur sigurför um Evrópu. Virkar vel á hverskonar vandamál. Kennt í Reykjavík 25.-28. feb. 2005 Íslenskt námsefni og íslenskur kennari. Uppl. og skráning • símar 421 4569 og 897 7469 • Margeir www.bowentaekni.com • jmsig@simnet.is HNETUOFNÆMI getur verið alvarlegt og er því nauðsynlegt að ganga úr skugga um að engar hnetur séu í matnum ef von er á gesti með slíkt ofnæmi. Sumar súkkulaði- tegundir geta innihaldið hnetur þó svo það sé hreint og því mikilvægt að lesa alltaf innihaldslýsingar. Áhöld sem hnetur hafa snert má ekki heldur nota við matargerðina.[ ] „Ég mun einnig bjóða fólki einkatíma og geta jafnvel hópar keypt sérnámskeið sem er sérsniðið að þeirra þörfum,“ segir Guðbjörg Ósk Friðriksdóttir. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /P JE TU R

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.