Fréttablaðið - 12.01.2005, Blaðsíða 33
Við áramót doka menn gjarna við og
líta um öxl jafnframt því að horfa til
framtíðar. Hvernig er staðan í efna-
hagsmálunum hjá okkur almennt?
Við erum stödd í miðri uppsveiflu í
efnahagslífinu og það veltur mjög á
hagstjórn hvort það tekst að hafa
stjórn á þessari miklu uppsveiflu eða
hvort við förum yfir strikið og brot-
lendum við hinn endann á uppsveifl-
unni.
Hagvöxtur á nýliðnu ári er áætlaður
um 50%. Slíkur vöxtur er nokkuð
umfram framleiðslugetu þjóðarbús-
ins sem sést best á því að verðbólga
fór vaxandi í fyrra, og fór úr 2% í yfir
3% á sama tíma og viðskiptahalli
jókst úr 5% í 6Ω% af landsfram-
leiðslu. Þessar tölur fyrir árið 2004
eru byggðar á spá Seðlabankans.
Á þessu ári spáir Seðlabankinn að
sama þróun haldi áfram. Spáð er
hagvexti töluvert umfram fram-
leiðslugetu þjóðarbúsins, eða 6%.
Þetta þýðir að það ójafnvægi sem
þegar er í þjóðarbúinu mun aukast
enn meira á þessu ári. Sést það ekki
síst í því að spáð er viðskiptahalla
upp á yfir 10% af landsframleiðslu
og búist er við 3Ω% verðbólgu.
Hvernig er rétt að bregðast við
þessari stöðu? Seðlabankinn leggur
sitt af mörkum til að draga úr þensl-
unni með því að hækka stýrivexti og
hækkaði þá nýverið um 1% í 8,25%.
Ríkisstjórnin ákvað hins vegar að í
stað þess að vinna gegn þenslunni
skyldi hún gera sitt til að bæta á
þensluna með því að lækka tekju-
skatta. Í fjárlögum ársins 2005 eru
reyndar áform um aðhald í ríkisfjár-
málum, en eftir er að sjá hverjar
efndir verða á þessum áformum.
Ljóst er að á einhverjum tímapunkti
þarf að leiðrétta það ójafnvægi sem
hefur verið að myndast í þjóðarbú-
skapnum og aukast mun á þessu ári.
Eftir síðustu uppsveiflu leiðréttist
ójafnvægið í þjóðarbúinu að mestu
með því að gengið veiktist mjög hratt
í byrjun árs 2001. Því fylgdi verð-
bólguskot og dró hratt úr innflutn-
ingi. Leiðréttingin varð tiltölulega
sársaukalaus í það sinnið og gekk
fljótt yfir. Ekki er ljóst hvenær eða
hvernig leiðrétting myndi eiga sér
stað eftir þessa uppsveiflu. Hvað þá
að það sé vitað hversu sársaukafull
sú leiðrétting verður.
Á þessari stundu verðum við að vona
það besta. Að hagstjórnaraðilar, ríkis-
stjórn og Seðlabanki, geri sitt besta
til að tryggja að leiðréttingin gangi
vel fyrir sig og við verðum ekki fyrir
kollsteypu þegar núverandi upp-
sveiflu lýkur.
ÞJÓÐARBÚSKAPURINN
KATRÍN ÓLAFSDÓTTIR
Í upphafi árs
21MIÐVIKUDAGUR 12. janúar 2005
Átt þú
ungling
sem þarf …
... að vera einbeittari í námi?... að geta staðið sig vel í vinnu?... að vera jákvæðari?
... að eiga auðveldara með að eignast vini?... að vera sáttari við sjálfan sig?
Dale Carnegie
þjálfun fyrir ung
linga
Næsta kynslóð
er þjálfun sem
er ætluð öllum
unglingum sem
hafa áhuga á
að ná langt í lí
finu.
Fjóla Dögg Blo
msterberg 17 á
ra
www.naestakyn
slod.is
næsta
kynslóð
Kynningarfund
ir:
Miðvikudag 12
. jan. (18-22 ára
)
Mánudag 17. ja
n. (18-22 ára)
Þriðjudag 18. ja
n. (14-17 ára, æ
skilegt að fore
ldrar mæti með
)
kl.20.00 í Þrótta
raheimilinu í La
ugardal (við hl
iðina á gervigr
asinu)
Kíktu
á www
.naest
akyns
lod.is
og sjá
ðu hv
að
þáttta
kendu
r höfð
u að s
egja u
m þjá
lfunin
a.
Það er margt ó
metanlegt sem
ég hef fengið
út úr námskeið
inu. Getu til að
koma fram og
tala, meira sjálf
straust og tæk
ni til að komas
t
áfram í lífinu. É
g setti mér til d
æmis markmið
í skólanum og
hækkaði eink
unnirnar mínar
.
Svona námske
ið ættu allir að
fara á, sem
hafa áhuga á a
ð lifa góðu lífi.
Hafðu samban
d við skrifstofu
Dale Carnegie
í síma 555 708
0
eða 661 0998 o
g fáðu nánari
upplýsingar um
Næstu kynsló
ð.
KRISTJÁN AÐALSTEINSSON FRAM-
KVÆMDASTJÓRI NÝJA FÉLAGSINS
Áður var hann framkvæmdastjóri Harbour
Grace CS á Nýfundnalandi og þar áður sölu-
og markaðsstjóri Útgerðarfélags Akureyringa
og framkvæmdastjóri Sæplasts á Dalvík.
Norræn
samvinna
VIÐSKIPTI Sæplast á Dalvík og
dönsku fyrirtækin Neptun Plast
og Atlantic Trawl Floats hafa
ákveðið að sameina framleiðslu
sína á trollkúlum í eitt fyrirtæki.
Fyrirtækin þrjú eiga jafnan hlut í
nýja félaginu en það heitir Atl-
antic Floats og er skráð á Íslandi.
Ástæður sameiningarinnar má
rekja til mikillar hækkunar á hrá-
efnismörkuðum á síðasta ári og
óviðunandi afkomu í framleiðslu
trollkúla hjá öllum fyrirtækj-
unum þremur. - kk
Samskip opna
í Úkraínu
Ný þjónustuskrifstofa Samskipa
tók til starfa í Úkraínu um áramót-
in og heyrir rekstur hennar undir
dótturfyrirtæki félagsins í Þýska-
landi.
Úkraínuskrifstofan er staðsett
í höfuðborginni Kiev og er henni
ætlað að sinna ört vaxandi starf-
semi félagsins á þessu markaðs-
svæði, sérstaklega ýmiss konar
stórflutningum frá höfnum í
Vestur- og Norður-Evrópu til
Úkraínu og hafna við Kaspíahaf
og Svartahaf, að sögn Haralds
Dönselmanns, framkvæmdastjóra
Samskipa í Þýskalandi.
Einnig skapist fjölmörg ný
viðskiptatækifæri með tilkomu
Úkraínuskrifstofunnar því mikill
uppgangur sé í landinu, sem sjá-
ist best á því að verg landsfram-
leiðsla jókst um 9,4% árið 2003
og áætlaður vöxtur í fyrra var
12,4%. ■
Á þessari stundu verðum við að vona það besta. Að hagstjórnaraðilar, ríkisstjórn og
Seðlabanki, geri sitt besta til að tryggja að leiðréttingin gangi vel fyrir sig og við verðum
ekki fyrir kollsteypu þegar núverandi uppsveiflu lýkur.
Ný höfn
í Hollandi
Skip Atlantsskipa munu gera
Vlissingen í Hollandi að áfanga-
stað frá og með 15. janúar nk.
Í frétt frá félaginu segir að
ástæður breytinganna séu þær að
í Vlissingen fái félagið betri þjón-
ustu við skipakost, siglingaleið sé
skemmri og afgreiðslutími við
losun og lestun sé styttri. Þá segir
félagið að nýja höfnin bjóði upp á
betri tengingu við flutningaleiðir
inn á meginland Evrópu en áður
hafi staðið viðskiptavinum til
boða. - þk