Fréttablaðið - 12.01.2005, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 12.01.2005, Blaðsíða 14
DÝRALÍF Mikil vinátta hefur tekist með barnungum flóðhesti og hundrað ára gamalli risaskjald- böku á dýraverndunarsvæði nokkru í Keníu. Ársgamall flóð- hesturinn fannst á dögunum aleinn á reiki, ofþornaður og illa á sig kom- inn skammt frá ströndum Indlands- hafs. Honum var komið í hendur skógarvarða á dýraverndunarsvæði nálægt Mombasa þar sem honum var gefið nafnið Owen. Ekki leið á löngu þar til að risaskjaldbakan Mzee, sem á svahílí þýðir „gamall maður“, tók að gefa sig að flóðhestinum og síðan þá hafa þeir félagarnir verið óaðskiljanlegir þrátt fyrir um hundrað ára aldursmun. Skógarvörður sagði í samtali við BBC að skepn- urnar eyddu öllum stundum saman, í svefni og vöku. „Flóðhesturinn eltir skjaldbökuna um allt og sleikir hana í framan.“ Ef þessi 300 kílógramma snáði held- ur áfram að braggast verða vinirnir til sýnis í einhvern tíma áður en Owen verður komið í fé- lagsskap annars flóðhests, Cleo að nafni. Vinátta dýra þvert á teg- undir er langt í frá óþekkt á þessum slóðum. Árið 2002 tók ljónynja í Keníu hóp ungra antílópa að sér en algengara er að slík klaufdýr endi í gini ljón- anna en í faðmi þeirra. - shg 14 VEGABRÉF Vegabréf fyrir fullorðinn Íslending kostar 5.100 krónur. Börn, eldri borgarar og ör- yrkjar greiða 1.900 krónur. Vegabréf barna gilda í fimm ár, fullorðinna tvöfalt lengur. HVAÐ KOSTAR ÞAÐ? Verkalýðshreyfinguna og Impregilo hefur greint harkalega á að undan- förnu. Gunnlaugur Ástgeirsson segir, að þarna séu Íslendingar í fyrsta sinn að komast í kast við stórt, alþjóðlegt fyrir- tæki, sem kæri sig kollótt um aðstæður á Íslandi, þær hefðir og reglur sem hér séu í gildi. „Þegar rifjuð er upp sú umræða sem átti sér stað þegar verið var að semja við þetta fyrirtæki, þá voru þar uppi ýmis varnaðarorð um að það hefði ekki gott orð á sér, rökstudd með ýmsu sem Landsvirkjun, sem samdi við þá, mætti vel hafa vitað. Menn hljóta að spyrja sig, þegar fyrirtæki býður lægst í verk, hvort það reynist á endanum vera lægsta boð, þegar allt kemur til alls. Í þessu tilviki virðist Impregilo ekki geta staðið við þá samninga sem það gerði á þeim forsendum sem menn héldu að þeir væru að ganga út frá. Ábyrgð Landsvirkjunar er auðvitað mjög mikil í þessu máli.“ Gunnlaugur sagði óhjákvæmilegt fyrir íslensku verkalýðshreyfinguna að standa mjög fast á því að þau réttindi sem hér væru við lýði, bæði sem hluti af íslenskri menningu og „vinnukúltúr“ væru virt. Þar mætti ekkert gefa eftir. GUNNLAUGUR ÁSTGEIRSSON Ábyrgð Lands- virkjunar mikil ÁREKSTRAR VERKALÝÐS- HREYFINGAR OG IMPREGILO SJÓNARHÓLL Bygging stálpípuverksmiðju í Helguvík á Reykjanesi hefur verið í burðarliðnum síðan árið 2002 en dregist verulega. í maí í fyrra sagði Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, að hann vonaðist til þess að málin væru farin að skýrast í júní. Strandar á opnum samningum „Forsvarsmenn stálpípuverksmiðjunnar segjast vera í fullum gangi við fjármögnun verkefnisins og það er ástæða til að trúa því en þetta hefur dregist töluvert og við erum svo sem ekkert að bíða eftir þessu verkefni sérstaklega,“ segir Árni. Hann seg- ist telja að fjármögnunin hafi strandað á því að forsvarsmenn verksmiðjunnar hafa ekki lagt fram sölusamninga, eins og gildir á til dæmis álmarkaði heldur viljað hafa samninga opna sem hafi gert að verkum að fjármögnunarfyrirtæki hafi haldið að sér höndum. „Ég þykist vita að þetta hafi verið stærsta hindrunin í fjármögnun.“ Önnur verkefni Árni segir að önnur verkefni séu í fullum undirbúningi í Reykjanesbæ. Búið sé að malbika og leggja vegi í Helguvík og undirbúa svæðið fyrir ýmiskonar iðn- svæði. Þá sjái hann fram á aukningu í flugstarfsemi og flugþjónustu og bærinn vilji taka þátt í því meðal annars í tengsl- um við ferðaþjónustu. Árni segist finna fyrir auknum áhuga sjáv- arútvegsfyrirtækja á að skoða tengingar við flugvöllinn og nokkur fyrirtæki séu að festast betur í sessi en áður. „Hér er líka allt á fullu við Reykjanesvirkjun sem verð- ur í landi Reykjanesbæjar og kominn í gagnið árið 2006. Ég veit að það eru einnig önnur iðnfyrirtæki í undirbúningi.“ Einbeitum okkur að öðrum verkefnum EFTIRMÁL: STÁLPÍPUVERKSMIÐJA Í HELGUVÍK 12. janúar 2005 MIÐVIKUDAGUR Mannlífið örvað með íslensku móti Sigrún Sumarliðadóttir, 24 ára nemi í arkitektúr, hannaði samkomumiðstöð í miðborg Rotterdam og sigraði fyrir vikið í hollenskri verðlaunasamkeppni. Hún telur þó ólíklegt að byggingin verði reist í raun og veru. „Byggingin er mjög fjölbreytileg. Þar er bæði kaffihús og bar og á efri hæðinni er veitingahús. Hægt yrði að ganga í gegnum þetta á daginn og þetta er mjög opið fyrir alla,“ segir Sigrún Sumarliðadótt- ir, 24 ára gamall arktitektúrnemi við Technische Universiteit í Delft í Hollandi. Hún gerði sér lítið fyrir á dögunum og sigraði í þarlendri verðlaunasamkeppni, Café Cultur Prijs 2004. Þetta er í þriðja sinn sem menningarsam- tökin Felix Meritis halda keppn- ina og tóku um 200 arkitektúr- nemar og nýútskrifaðir arkitektar þátt. Markmið keppendanna var að hanna samkomumiðstöð sem örvað gæti mannlíf í miðborg Rotterdam. „Það er svolítil óreiða þarna í miðbænum og ekkert vel skipulagt. Ég notaði því umhverf- ið, þessi neðanjarðargöng, lestar- kerfið og alla þessa óreiðu sem þar er í kring og leysti hana með þessari miðstöð“ segir Sigrún. Dómnefndin komst svo að orði í umsögn sinni að hönnun Sigrúnar væri raunhæf en frumleg og byði upp á raunverulega útfærslu. Sjálf býst Sigrún síður við að hug- myndin komist nokkurn tímann af teikniborðinu. „Maður veit samt aldrei,“ segir hún. Sigrún býr í Rotterdam og þekkir því svæðið vel . „Þetta þró- aðist smám saman, ég leit á um- hverfið og reyndi að meta hvað mig langar sjálfri að hafa þarna þegar ég fer út að skemmta mér og svoleiðis.“ Síðan hugmyndin kviknaði tók um sex vikur að koma henni fullunninni á blað. Í verðlaun fékk Sigrún tvö þús- und evrur, um 160.000 krónur. Vægi þess að geta sett slíka veg- semd í ferilskrána verður hins vegar ekki metið til fjár. „Ég held að þegar maður fer að sækja um vinnu eða skóla þá er þetta nátt- úrlega mjög gott,“ segir Sigrún sem hyggur á framhaldsnám í arkitektúr næsta vetur, þá helst í Lundúnum. Ekki er svo loku fyrir það skotið að hún muni starfa hérlendis í framtíðinni. sveinng@frettabladid.is SIGRÚN SUMARLIÐADÓTTIR Sigrún er hrifin af Þingholtunum í Reykja- vík en auk þess er Hnitbjörg, hús Einars Jónssonar á Skólavörðuholti í sérstöku uppáhaldi hjá henni. VERÐLAUNA- TILLAGAN Flóðhestur og skjaldbaka: Víkja ekki hvort frá öðru

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.