Fréttablaðið - 12.01.2005, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 12.01.2005, Blaðsíða 34
Síðasta aftaka á Íslandi fór fram við Þrístapa í Vatnsdalshólum í Húnavatnssýslu 12. janúar 1830. Þá voru tekin af lífi Agnes Magn- úsdóttir vinnukona á Illugastöð- um og Friðrik Sigurðsson frá Katadal. Þau höfðu verið dæmd til dauða fyrir morð á tveimur mönnum aðfaranótt 14. mars 1828, Natans Ketilssonar bónda á Illugastöðum og Péturs Jónsson- ar frá Geitaskarði. Sá sem beitti öxinni var bróðir Natans, Guð- mundur. Næsta aftaka á undan var 1790 en Bjarni og Steinunn frá Sjöundá, sem dæmd voru fyr- ir morð, voru ekki tekin af lífi á Íslandi. Bjarni var tekinn af í Noregi en Steinunn dó áður en til aftöku kæmi í hegningarhúsinu í Reykjavík. Hún var urðuð utan- garðs á Skólavörðuholti og hét þar Steinkudys. Hún mun hafa verið skammt þar frá sem nú er listasafn Einars Jónssonar, Hnit- björg, en grjótið var tekið og nýtt snemma á 20. öld og bein Stein- unnar hlutu leg í kirkjugarði. Friðrik Sigurðsson kom að Ill- ugastöðum að kvöldi 13. mars 1828 og fékk tvær vinnukonur á bænum, Agnesi og Sigríði Guð- mundsdóttur, til að leyna sér úti í fjósi þangað til karlmennirnir væru sofnaðir, Natan og Pétur Jónsson, sem var næturgestur. Þá fóru Friðrik og Agnes inn í baðstofu og drap Friðrik þá Nat- an og Pétur með hnífi. Ekki kem- ur fram í samtímafrásögnum að Sigríður hafi tekið þátt í morð- inu, en hún hirti það sem fémætt var í baðstofunni, áður en Frið- rik og Agnes kveiktu í henni. Frásögn Agnesar og Sigríðar af brunanum var ekki trúað og komst glæpurinn upp. Málið gekk sinn gang í héraðsdómi, Landsyfirrétti í Reykjavík og Hæstarétti í Kaupmannahöfn og voru þau Agnes, Friðrik og Sig- ríður öll dæmd til dauða. Kon- ungur náðaði Sigríði en Agnes og Friðrik voru hálshöggvin. Þorgeir Þorgeirson skrifaði skáldsögu, Yfirvaldið, um at- burðinn. Kvikmyndin Agnes sem Egill Eðvarðsson leikstýrði (1996) er byggð á sömu atburð- um en þar er vikið mjög frá stað- reyndum. Fjórum árum eftir af- tökuna í Vatnsdalshólum var síð- asti Íslendingurinn tekinn af lífi í Kaupmannahöfn. Það var Sig- urður Gottsveinsson, einn Kambránsmanna. Hann var dæmdur til ævilangrar vistar í fangelsi í Kaupmannahöfn. Þar réðst hann á fangavörð með hnífi og var líflátinn fyrir. Eftir 1830 mun tugur Íslend- inga hafa verið dæmdur til dauða í Hæstarétti Dana. Konungur mildaði refsingu allra svo að eng- inn var tekinn af lífi samkvæmt dómi. Dauðarefsing var síðar af- numin í tveimur áföngum. Árið 1869 voru sett ný hegningarlög, í aðalatriðum eins og ný dönsk lög, og var þá felld úr lögum dauða- refsing fyrir dulsmál og blóð- skömm. Seinasti dauðadómurinn á Íslandi var kveðinn upp í upp- hafi 20. aldar yfir konu sem drap bróður sinn á eitri í Dúkskoti í Reykjavík. Hún var seinna náðuð. Með breytingum á hegningarlög- um árið 1928 var dauðarefsing af- numin.. Ekki er vitað hve margir menn voru líflátnir á Íslandi á fyrri öld- um en talið er að þeir hafi verið um eða innan við tvö hundruð. Flestir voru drepnir á Þingvöllum og þar eru örnefni sem vitna um þetta: Drekkingarhylur, Brennu- gjá og Gálgaklettar. Víða um land eru líka örnefni sem benda til vá- legrar sögu: Gálgaklettar eru á Álftanesi og sögur fara af drekk- ingum sekra í hyljum í Elliðaán- um. ■ 22 12. janúar 2005 MIÐVIKUDAGUR JACK LONDON (1876-1916) fæddist þennan dag. Síðasta aftakan á Íslandi AGNES OG FRIÐRIK: HÁLSHÖGGVIN Í VATNSDALSHÓLUM “Ég vil heldur vera aska en ryk.“ Þetta rættist. Hann var logandi umdeildur alla tíð og er enn. timamot@frettabladid.is AFMÆLI Bent Scheving Thorsteinsson hagfræð- ingur er 83 ára í dag. Kristján Benediktsson, fyrrverandi borgarfulltrúi, er 82 ára Jón Rúnar Ragnarsson akstursíþrótta- maður er sextugur í dag. Heimir Ólafsson pípulagningameist- ari er fimmtugur í dag. Ingi Bogi Bogason cand. mag. er fimm- tugur í dag. Elísabet Þorgeirsdóttir rithöfundur er fimmtug í dag. Hlynur Halldórsson, tréskurðarmeistari í Miðhúsum, er 55 ára. Dorrit Moussaieff, hús- móðir á Bessastöðum, er 55 ára. JARÐARFARIR 13.00 Eiríkur Bjarnason verður jarð- sunginn frá Kópavogskirkju. 13.00 Þórður Jónsson, Norðurbrún 1, verður jarðsunginn frá Grafar- vogskirkju. 13.30 Ólafur Kristjánsson (Óli frá Hraungerði), Bakkahlíð 39, Akur- eyri, verður jarðsunginn frá Akur- eyrarkirkju. ANDLÁT Jóhann Ásmundsson safnstjóri, Hnjóti, Örlygshöfn, lést 31. desember. Elinborg Sigurðardóttir frá Ísafirði, Unn- arbraut 4, Seltjarnarnesi, lést föstudag- inn 7. janúar. Jóhann Magnússon bifreiðaskoðunar- maður, Móholti 12, Ísafirði, lést föstu- daginn 7. janúar. Soffía Guðlaug Ásgrímsdóttir Kuczek, Southampton, New Jersey, lést föstu- daginn 7. janúar. Auðun Auðunsson skipstjóri, Valhúsa- braut 31, Seltjarnarnesi, andaðist laugar- daginn 8. janúar. Vilhjálmur Óskarsson frá Reiðholti, Lýt- ingsstaðahreppi, andaðist laugardaginn 8. janúar. Ólöf Björnsdóttir Garðvangi, Garði, áður Hringbraut 76, Keflavík, lést laugar- daginn 8. janúar. Inga Jónasína Pálmadóttir, Vestursíðu 2a, Akureyri, lést laugardaginn 8. janúar. HNITBJÖRG Á SKÓLAVÖRÐUHOLTI Var Steinkudys hér? Þennan dag 1943 tókst Rauða hernum loks að rjúfa umsátur Þjóðverja um Leníngrad, sem staðið hafði órofið í eitt og hálft ár. Þjóðverjar ákváðu fljót- lega eftir að þeir réðust inn í Sovétríkin að stefna til Leningrad, sem áður hét St. Pétursborg og var höfuðborg Rúss- lands. Þeir náðu ekki að hertaka borg- ina en settust um hana og hugðust jafna þetta djásn Péturs mikla við jörðu og afhenda landið bandamönnum sín- um Finnum, sem sóttu að borginni úr norðri. Finnar létu sér hins vegar nægja að leggja undir sig að nýju þau lönd í Karelíu sem Rússar tóku af þeim í vetr- arstríðinu. Með umsátri Þjóðverja var allt samband íbúa Leníngrad við aðra hluta Rússlands rofið. Íbúarnir liðu mikinn skort og veturinn 1942 er talið að 650.000 manns hafi látið lífið úr hungri og farsóttum eða farist í linnu- lausum loftárásum nasista á borgina. Fjöldi barna og gamalmenna, um ein milljón manns að talið er, var fluttur á brott, með sleðum sem tókst að koma yfir ísilagt Ladogavatnið eða stöku pramma sem tókst að komast sömu leið að sumarlagi. Dálítið af matvælum barst um vatnið inn í borgina þar sem tvær milljónir manna þraukuðu. Það var þó ekki fyrr en 27. janúar 1944 sem herjum Sovétmanna tóks loks að hrekja Þjóðverja burt frá borginni og rjúfa eitt mannskæðasta umsátur sög- unnar. Leníngrad heitir nú aftur sínu fornfræga nafni, St. Pétursborg. LENÍNGRAD 1942 ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR 1268 Gissur Þorvaldsson jarl deyr, um 60 ára gam- all.Hann var einn voldug- asti höfðingi 13. aldar á Íslandi. 1583 Hollendingar taka upp gregoríanska tímatalið. 1940 Einar Benediktsson skáld deyr, 75 ára gamall. 1953 Níu læknar af gyðingaætt- um handteknir í Moskvu sakaðir um samsæri. 1970 Bíafrastríðinu lýkur með uppgjöf Bíafra fyrir Níger- íu. 1989 Idi Amin, fyrrverandi ein- ræðisherra Úganda, rek- inn frá Zaír. 1993 Samningurinn um aðild Íslands að Evrópska efna- hagssvæðinu samþykktur á Alþingi. 1995 Réttarhöld hefjast yfir ruðningshetjunni OJ Simpson. Umsátrið um Leníngrad rofið Hamarshöfði 4, 110 Reykjavík, s: 587 1960, www.mosaik.is MOSAIK af legsteinum gegn staðgreiðslu í janúar og febrúar Sendum myndalista 15% afsláttur Magnús Eiríksson vörubílstjóri, Elskaður faðir minn, afi okkar, langafi, bróðir og frændi, lést að Hjúkrunarheimilinu Hverahlíð í Hveragerði sunnudaginn 2. janúar. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Guðný Edda Kristinsdóttir og aðrir ástvinir. Ástkær móðir okkar, tengadamóðir, amma og langamma Sigríður Sæmundsdóttir lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði 1. janúar 2005. Hún verður jarðsungin frá Þingeyrarkirkju laugardaginn 15. janúar kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Einar Karlsson, Birgir Thomsen Karlsson og Karl Þór Karlsson. Óli Jóhannes Ragnarsson frá Skálum á Langanesi, til heimilis að Gyðufelli 12, Reykjavík, Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, andaðist á gjörgæsludeild Landspítala Háskólasjúkrahúss Fossvogi 6. janúar 2005. Jarðarförin fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudag- inn 13. janúar kl. 13. Reynir Ö. Ólason, Jóhanna Stígsdóttir, Þórunn R. Óladóttir, Ernst Berndsen, Anna G. Óladóttir, Gústaf A. Ólafsson, Hörður H. Ólason, Hafdís Y. Ólason, Laufey Óladóttir, Sigurjón Gunnarsson, Hólmfríður Óladóttir, Randver Elísson, Helgi S. Ólason, Guðrún R. Valgeirsdóttir, Sölvi S. Ólason, Margrét Pálsdóttir, Linda B. Óladóttir, Bryan Baker og fjölskyldur þeirra.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.