Fréttablaðið - 12.01.2005, Side 6
6 12. janúar 2005 MIÐVIKUDAGUR
Farsímanotkun samkvæmt breskri rannsókn:
Sögð hættuleg heilsu barna
HEILBRIGÐISMÁL Börn yngri en átta
ára eiga ekki að nota farsíma að
mati William Stewart, formanns
breskrar nefndar sem fjallar um
geislavarnir. Að hans mati stafar
börnum hætta af geislun frá
símunum þrátt fyrir að það hafi
ekki verið sannað.
William sagði í viðtali við Sky-
fréttastofuna að börn verði fyrir
mun meiri áhrifum af völdum
geislunar en fullorðnir. Því sé
nauðsynlegt að benda foreldrum
á að gefa ungum börnum ekki
farsíma.
Drífa Hjartardóttir, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins, hefur
þrisvar sinnum lagt fram þingsá-
lyktunartillögu um að heilbrigðis-
ráðherra verði falið að standa
fyrir rannsókn á áhrifum há-
spennulína, spennistöðva og fjar-
skiptamastra á mannslíkamann,
sérstaklega með tilliti til krabba-
meins. Drífa segir ummæli breska
vísindamannsins sýna fram á að
huga þurfi betur að þessum mál-
um hér á landi. „Við eigum að
skoða þetta fordæmalaust og án
allrar hræðslu.“ Hún segir svo
stutt síðan notkun farsíma hófst
að áhrif hennar á heilsu fólks séu
enn ókunnar. „Við vitum ekki hvað
við erum að gera heilsu okkar.“
Tillagan verður aftur lögð fram á
komandi þingi. – ghg
Geðsjúkir rifnir
upp með rótum
Arnarholti verður lokað um næstu mánaðarmót. Aðstandandi sjúklings þar
segir það ómannúðlegt að fólkið skuli rifið upp með rótum og flutt annað, í
sparnaðarskyni, jafnvel til bráðabirgða. Enn er eftir að flytja 18 manns af 30.
HEILBRIGÐISMÁL Ingveldur B.
Thoroddsen, aðstandandi sjúk-
lings sem fluttur hefur verið frá
Arnarholti á Klepp segir það
„hörmulegt, að þetta litla samfé-
lag, sem verið hefur um árabil í
Arnarholti skuli leyst upp.“ Þarna
hafi skapast náin vinátta milli
fólks, sem síðan sé „rifið upp með
rótum“ og sett niður á öðrum
stofnunum.
Samkvæmt upplýsingum Erlu
Bjarkar Sverrisdóttur deildar-
stjóra í Arnarholti verður því lok-
að um næstu mánaðarmót. Um 30
sjúklingar voru þar áramótin 2003
– 2004, en nú eru 18 eftir. Þá voru
vistmenn í Gunnarsholti fluttir á
sérdeild í Arnarholti þegar fyrr-
nefnda staðnum var lokað. Þeir
hafa nú verið fluttir þaðan og á
aðra staði.
Erla Björk sagði, að sjúkling-
arnir sem verið hafi og séu enn í
Arnarholti hafi farið eða fari á
stofnanir á geðsviði Landspítala
háskólasjúkrahúss, svo sem
Klepp og á sambýli eða á hjúkrun-
arheimili. Þá sé verið að stand-
setja tvö sambýli, annað á Teigi á
Flókagötu þar sem áfengismeð-
ferð LSH var áður og hitt í Esju-
grund á Kjalarnesi. Hið síðar-
nefnda verði tilbúið innan
skamms. Einnig verði opnuð deild
á Landakoti fyrir fólk sem er í bið
eftir öðrum búsetuúrræðum.
Þangað fari þrír sjúklingar.
Spurð hvernig flutningarnir
frá Arnarholti hefðu lagst í sjúk-
lingana sagði Erla Björk að þeir
hefðu tekið þeim af æðruleysi,
enda hefðu þeir haft sinn undir-
búningstíma.
„Það var verra þegar óvissa
ríkti um hvert þeir ættu að fara,“
sagði Erla Björk, sem fylgir hluta
hópsins á sambýli, alla vega til að
byrja með. „Eftir að það varð ljóst
finnst mér fólkið bara taka þessu
vel. En það vantar fleiri sambýli í
þjóðfélagið.“
Ingveldur sagði, að sér fyndist
það ómannúðlegt að skáka þessu
sjúka fólki á milli staða í sparnað-
arskyni. „Ég kynntist samfélag-
inu í Arnarholti mjög vel og það
er þetta fólk sem þar hefur dvalið
sem knýr mig til að tala um
þetta,“ sagði hún.“Þarna hafa
menn tengst sterkum vináttu og
tryggðarböndum og stutt hver
annan í gegnum tíðina. Þetta hef-
ur verið heimili þessa fólks, sem
nú er rifið upp með rótum og
dreift á aðrar stofnanir, sumum
jafnvel til bráðabirgða. Mig hefur
sviðið í hjartað þegar mér verður
hugsað til alls þessa fólks þarna.
Ég skil ekki hver meiningin á bak
við þetta er, en það er virkilega
særandi að vita til þess að fólkinu
skuli ýtt út í þessa flutninga og
allt það rask sem þeim fylgir.
Geðsjúkir þurfa umfram allt
festu og öryggi til þess að þeim
líði vel.“ jss@frettabladid.is
1,3 milljarðasti Kínverjinn:
Baðaður
athygli
KÍNA Kínverjar eru orðnir 1,3
milljarðar talsins og upphófst
mikið fjölmiðlafár þegar tíma-
mótabarnið, Zhang Yichi, fæddist
síðasta fimmtudag. Í kjölfarið
buðu fyrirtæki foreldrum hans
gull og græna skóga fyrir að láta
hann koma fram í auglýsingum,
svo sem fyrir bleyjur og þurr-
mjólk, að því er BBC greinir frá.
Foreldrum hans líst hins vegar
ekkert á frægðina. „Zhang Yichi
er of ungur og of miklar athafnir
vegna auglýsinga hafa skaðleg
áhrif á vöxt hans,“ sagði Zhang
Tong, faðir hans, í viðtali við kín-
verskt dagblað. ■
■ DVALARHEIMILI
ÞVEGIÐ FRÍTT Á HRAFNISTU
Heimilisfólk Hrafnistu fær þvott
sinn þveginn því að kostnaðar-
lausu. Engin áform eru uppi um
að breyta því, samkvæmt til-
kynningu Sveins H. Skúlasonar
forstjóra. Nefnir hann þetta
vegna umræðu sem hafi verið
uppi um gjaldtöku af þvotti heim-
ilisfólks á heimilum aldraða.
Í HAFNARFIRÐI
Álagning fasteignaskatts í Hafnarfirði mun
lækka. Tekjur bæjarsjóðs vegna skattsins
munu samt sem áður aukast.
Hafnarfjörður:
Álagning
lækkar
SVEITARSTJÓRNARMÁL Á fundi bæjar-
stjórnar Hafnarfjarðar í gær
var ákveðið að halda aukafund
á mánudag til að ræða lækkun
álagningar fasteignaskatts.
Lúðvík Geirsson bæjarstjóri segir
að bæjarstjórn sé sammála um að
lækka álagningu, en nú eigi að
fara hversu mikið á að lækka.
Fyrir fundinn lá fyrir tillaga
meirihluta bæjarstjórnar um að
lækka álagningu fasteignaskatts
úr 0,36 í 0,345 prósent. Lúðvík
segir að í fjárhagsáætlun hafi
verið reiknað með um 13 prósenta
hækkun á tekjum bæjarsjóðs á
árinu vegna fasteignaskatts. Að
óbreyttu hefðu tekjurnar aukist
um 18 prósent með breyttum fast-
eignagrunni. Hefði lækkunin
verið samþykkt hefðu tekjur bæj-
arsjóðs vegna fasteignaskatts
aukist um 15 prósent. - ss
Kolmunnaveiðar:
Stóraukinn
afli við Ísland
FISKVEIÐAR Í samantekt Fiskistofu
um kolmunnaafla eftir veiði-
svæðum kemur fram að hlutfall
kolmunnaaflans sem veiddur var í
íslenskri lögsögu óx verulega í
fyrra samanborið við árið 2003.
Hlutfall kolmunnaafla í íslenskri
lögsögu 2003 var u.þ.b. 53% af
kolmunnaafla íslenskra skipa
sama ár en á tímabilinu janúar til
nóvember 2004 jókst hlutfallið í
rúmlega 76%. - kk
FISKVINNSLA
Í viðræðum Íslands og Færeyja í byrjun
vikunnar var rædd staðan sem upp kemur
þegar væntanlegur fríverslunarsamningur
landanna hefur verið staðfestur.
Ísland og Færeyjar:
Óbreyttar
veiðiheimildir
SJÁVARÚTVEGUR Botnfiskveiðar Fær-
eyinga við Ísland verða óbreyttar á
þessu ári frá því sem verið hefur.
Þetta var meðal niðurstaðna
viðræðna landstjórnarmannsins
Björns Kalsös, sem fer með sjávar-
útvegsmál í Færeyjum og Árna M.
Mathiesens sjávarútvegsráðherra
á mánudag, en þeir funduðu í
Reykjavík til að ræða fiskveiði-
samning Færeyja og Íslands.
Þá verða í gildi sömu ákvæði og
á nýliðnu ári um veiðar á uppsjáv-
arfiski, auk þess sem óbreyttar
verða heimildir íslenskra og fær-
eyskra skipa til veiða á norsk-
íslenskri síld og kolmunna innan
lögsagna landanna. - óká
Á að nota andvirði Símans í
að byggja nýtt sjúkrahús?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Horfðir þú á þátt The Amazing
Race, sem tekinn var upp á Íslandi?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
29.82%
70.18%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
„Einstaklega falleg bók og
frábært að sjá hversu
sterkan heim texti og
myndir geta skapað saman
þegar vel er gert ... Það er
óhætt að mæla með bókum
Madonnu.“
Ragna Sigurðardóttir, Mbl.
30%
afsláttur
Fjórða bók Madonnu fyrir
börn á öllum aldri.
Falleg og skemmtileg
ARNARHOLT
Verður lokað um næstu mánaðarmót. Harðlega er gagnrýnt að sjúklingum þar skuli
skákað milli staða í sparnaðarskyni.
FARSÍMANOTKUN
Breskur prófessor telur að hún hafi áhrif á
heilsu fólks, sérstaklega barna.
SVEITARSTJÓRNARMÁL Neslistinn á
Seltjarnarnesi segir fjárhags-
áætlun bæjarins fyrir þetta ár
vera í uppnámi vegna athuga-
semda Skipulagsstofnunar við
tillögu bæjarstjórnar að aðal-
skipulagi Seltjarnarness. Þar er
gert ráð fyrir að selja land
Hrólfsskálamels og Suðurstrand-
ar og er áætlað söluverð 350
milljónir króna.
Neslistinn segir ekki geta orð-
ið að sölu þessara landsvæða
fyrr en aðal- og deiliskipulag
hefur verið samþykkt og vilja
íbúafund um skipulagsmál. Í at-
hugasemd Skipulagsstofnunar
segir að skýra þurfi frá öðrum
uppbyggingakostum í sveitarfé-
laginu, auk þess sem bregðast
þurfi við athugasemdum frá 1100
bæjarbúum sem mótmæltu til-
lögunni.
Í tilkynningu frá bæjarfull-
trúum Sjálfstæðisflokks á Sel-
tjarnarnesi segir að afgreiða
megi athugasemdir Skipulags-
stofnunar með nánari greinar-
gerð um uppbyggingakosti. Bæj-
arfulltrúar Sjálfstæðisflokks
telji hins vegar að niðurstaðan
gefi tilefni til að efna til frekara
samráðs við íbúa um skipulagsá-
formin og mögulega framtíðar-
uppbyggingu á Seltjarnarnesi. Þá
á skipulagsnefnd að koma á fót
sérstökum rýnihópi bæjarbúa
sem hafi það hlutverk að vera
nefndinni til ráðgjafar og sam-
ráðs um endanlega mótun skipu-
lagsstefnunnar. - ss
Neslistinn á Seltjarnarnesi:
Segir fjármálin í uppnámi
FYRIRHUGUÐ HÁHÚSABYGGÐ
Neslistinn segir bæjarstjórn Seltjarnarness
ekki geta selt landsvæðið, þar sem fyrir-
hugað er að reisa háhúsabyggð.