Fréttablaðið - 12.01.2005, Blaðsíða 12
12 12. janúar 2005 MIÐVIKUDAGUR
GRÁTIÐ Á INDLANDI
Naggammal grét á staðnum þar sem
heimili hennar stóð áður en flóðbylgjan
reið yfir Nagappattinam á sunnanverðu
Indlandi. Í bakgrunni má sjá dóttur hennar
Thalaiamma leita að munum til að selja.
Landssöfnun vegna hamfaranna í Asíu:
Íslendingar þekkja hamfarir
SÖFNUN Neyðarhjálp úr norðri nefn-
ist sameiginlegt átak í landssöfnun
sem formlega hófst í gær vegna
hamfaranna í Asíu. Vigdís Finn-
bogadóttir, fyrrum forseti Íslands,
er verndari söfnunarinnar.
Vigdís segir Íslendinga geta á
ýmsan hátt sett sig í spor þeirra
sem hafa orðið fyrir barðinu á ham-
förunum og sé skemmst að minnast
snjóflóðanna á Flateyri og Súðavík.
Þá er líka að minnast eldgossins í
Vestmannaeyjum og þess hversu
marga hafið hefur tekið. Vigdís
segist finna mikið til með þeim sem
eiga um sárt að binda vegna ham-
faranna, ekki síst börnunum sem
þurfa að lifa með minningunum um
langan tíma. Mörg þeirra hafa misst
foreldra sína og eiga ekki í nein hús
að vernda til að hlúa að tilfinningum
sínum.
Að söfnuninni koma þrjár sjón-
varpsstöðvar, þrjár verslunarmið-
stöðvar, níu útvarpsstöðvar, þrjú
dagblöð, listamenn, fyrirtæki og al-
menningur. Söfnunarfénu verður
varið til neyðaraðstoðar nú og upp-
byggingar á næstu árum.
- hrs
Veit ekkert um afdrif
fjölda ættingja og vina
Renuka Perera frá Sri Lanka hefur ekkert heyrt frá mörgum vinum og ættingjum og veit ekki hvort
þeir eru lífs eða liðnir. Hún sendir systur sinni og vinkonu peninga þeim til aðstoðar.
SÖFNUN Renuka Perera, starfs-
maður Alþjóðahússins, er frá Sri
Lanka en hún hefur enn ekki
heyrt um afdrif margra ættingja
sinna. Systir Renuku og nánasti
ættingi á Sri Lanka er á lífi en
heimili hennar eyðilagðist í flóð-
bylgjunni.
Renuka reynir hvað hún getur
að senda peninga út til systur
sinnar og vinkonu til að hjálpa
þeim að komast af. Hún hefur
ekki heyrt frá mörgum vinum
sínum og frændfólki og veit ekki
hvort þau eru lífs eða liðin. Hún
hefur reynt að hringja til þeirra
síðan hamfarirnar urðu en enginn
svarar símanum og hún veit ekki
hvar þau eru niðurkomin. Systir
Renuku býr nú ásamt eiginmanni
sínum og tveimur börnum hjá
tengdafólki sínu.
Renuka kemur frá Kólombó
sem er höfuðborg Sri Lanka. Vin-
kona hennar býr í bæ skammt frá
þar sem eyðileggingin var mun
meiri en í höfuðborginni. Vinkon-
an lýsti ástandinu sem hræðilegu
en 23 þúsund manns hafa látist á
Sri Lanka í hamförunum og fer
talan enn hækkandi. Mörg börn
eru foreldralaus, fjöldi hefur
misst maka sína og heimili eru
stórskemmd ef ekki ónýt.
„Venjulega eru áramótunum
fagnað af miklum krafti á Sri
Lanka eins og á Íslandi. Enginn
fagnaði áramótunum að þessu
sinni. Vinkona mín sagði ekkert í
umhverfinu hafa borið vitni um að
nýtt ár hefði gengið í garð, þar
ríkir bara sorg,“ segir Renuka.
Hún segir mörg lík hafa verið graf-
in án þess að kennsl hafi verið
borin á þau en hiti veldur því að
líkin byrja fljótt að rotna. Renuka
segir að ef hún væri ekki ófrísk
færi hún til Sri Lanka til að leggja
sitt af mörkum við hjálparstarfið.
Hún á erfitt með að sofna á kvöldin
vegna allra hugsananna um hörm-
ungarnar sem reika um hugann.
Renuka kom fyrst til Íslands
árið 1996 sem au-pair. Eftir eitt ár
var hún þess fullviss að hér vildi
hún búa, landið væri friðsælt og
lífsskilyrðin góð.
hrs@frettabladid.is
BARIST Í ACEH Uppreisnarmenn
og hermenn í Aceh-héraði í
Indónesíu börðust í bænum
Gauntaut þrátt fyrir að hvort
tveggja Indónesíustjórn og upp-
reisnarmenn hafi heitið því að
virða vopnahlé sem var lýst yfir
eftir að flóðbylgjan reið yfir.
Óttast er að átök hamli hjálpar-
starfi.
SÁTTAHÖND FORSETANS
Chandrika Kumaratunga, forseti
Sri Lanka, sagðist í gær ætla að
ættleiða tamílskt barn sem hefði
misst foreldra sína í flóðbylgj-
unni. Yfirlýsingin kom mjög á
óvart enda Kumaratunga í for-
svari stjórnar sem hefur um ára-
tugaskeið barist við tamílska
uppreisnarmenn og þykir yfirlýs-
ingin sáttaboð til uppreisnar-
manna.
HUNDAR SÆKJA Í LÍK Hungraðir
hundar hafa reynt að komast í lík
víða á hamfarasvæðunum og
orðið ágengt í nokkrum tilfellum.
Brugðist hefur verið við þessu
með ýmsum hætti. Í Búddamu-
steri í Phang Nga, sem hefur
verið breytt í líkhús, eru hundar
skotnir með svefnlyfjum en
víðast hvar eru þeir drepnir.
TVÆR VIKUR Í HAFI 21 árs manni
var, á sunnudag, bjargað af fleka
sem hann hafði hafst við á frá því
flóðbylgjan hreif hann á sjó út á
annan í jólum. Hann sagðist hafa
lifað á vatni í flöskum sem hann
fann á fleka og kókoshnetum.
Hann sagði mörg skip hafa siglt
framhjá sér áður en honum var
bjargað.
Glæsilegur fjölskyldubíll með aldrif og einstaka
aksturseiginleika. Hefur reynst frábærlega við
íslenskar aðstæður. Bíllinn er sérlega rúmgóður
og sagt er að hann geti flutt fjöll ... nánast.
SkodaOctavia Combi 4x4
Octavia Combi 4x4 2.030.000 kr. Afborgun á mánuði er aðeins 19.913 kr.*
Skoda Octavia Combi 4x4 með 2 lítra vél kostar aðeins 2.030.000 kr.
FYRIRKOMULAG SÖFNUNAR KYNNT
Frá vinstri: Steinunn Valdís Óskarsdóttir,
Jónas Þ. Þórisson, Vigdís Finnbogadóttir,
Elín Þorsteinsdóttir, Björgólfur Guð-
mundsson og Renuka Perera.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
■ FLÓÐBYLGJAN
SRI LANKABÚAR Í RÚSTUM
HEIMILIS SÍNS
Þessir íbúar hafnarborgarinnar Galle
misstu heimili sitt þegar flóðbylgjan skall á
Sri Lanka. Þeir hafa komið sér fyrir í rúst-
um hússins. Forseti Sri Lanka hvatti lands-
menn í gær til þess að endurreisa heimili
sín ekki of nærri sjónum.
SRI LANKA
Perera er frá Colombo, höfuðborg Sri
Lanka, sem liggur á vesturströnd eyjunn-
ar. Flóðbylgjan hafði minni áhrif þar en
víða annars staðar á eyjunni, einkum á
austurströndinni sem var berskjölduð fyrir
flóðbylgjunni.
RENUKA PERERA
Vill skila þakklæti til allra þeirra sem hafa lagt söfnuninni lið og láta sig málið varða. Hún
segir aðrar eins hörmungar aldrei áður hafa dunið á heimalandi sínu og ástandið sé
skelfilegt þar sem 23 þúsund af 300 þúsund íbúum létust.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA