Fréttablaðið - 12.01.2005, Qupperneq 40
28 12. janúar 2005 MIÐVIKUDAGUR
EKKI MISSA AF…
Ný íslensk myndlist; um veru-
leikann, manninn og ímyndina,
sýningu á verkum 20 íslenskra
listamanna í Listasafni Íslands.
Sýningunni lýkur á sunnudaginn...
Sýningu Sigrúnar Guðmunds-
dóttur, listamanns mánaðarins í
Hafnarborg. Sýning er liður í
kynningu á félögum Myndhöggv-
arafélagsins í Reykjavík...
Helenu af Tróju, kl. 22.00 á
Skjá 1. Magnaðir þættir um eina
stórkostlegustu kvenhetju allra
tíma.
Leikrit Braga Ólafssonar, Belgíska
Kongó, sem frumsýnt var síðastliðið
vor í Borgarleikhúsinu, hefur notið
mikilla vinsælda meðal áhorfenda. Til
stóð að hafa örfáar sýningar á verkinu í
haust, en vegna mikilla vinsælda hefur
verið bætt við sýningum og nú eru
þær fyrirhugaðar til febrúarloka. Eggert
Þorleifsson, sem á einstakan hátt túlk-
ar hina fjörgömlu Rósalind í sýning-
unni og hlaut Grímuverðlaunin fyrir,
ætlaði í hálfs árs frí frá og með ára-
mótum en hefur frestað fríinu vegna
vinsælda verksins. Hins vegar hefur nú
nýr leikari tekinn við hlutverki Hilmars,
langömmubarns Rósalindar. Það er
Davíð Guðbrandsson sem leysir
Gunnar Hansson af hólmi. Davíð út-
skrifaðist úr Leiklistardeild Listaháskóla
Íslands vorið 2003 og er þetta hans
fyrsta hlutverk í Borgarleikhúsinu.
Kl. 12.15
Regnhlífarnar í New York. Nýr þáttur um bókmenntir
í Sjónvarpinu í umsjón Þorsteins J. Vilhjálmssonar.
menning@frettabladid.is
Nýtt langömmubarn
JÓNAS INGIMUNDARSON Það sækja allir söngvarar í að syngja lög eftir Sigvalda Kaldalóns.
Tónleikar í tilefni af útgáfu
tveggja geisladiska með tón-
list Sigvalda Kaldalóns verða
fluttir í Salnum á morgun.
Svanasöngur á heiði er yfirskrift
tónleika sem haldnir verða í Salnum
í Kópavogi á morgun, fimmtudag.
Tónleikarnir eru haldnir í tilefni af
útkomu hljómdisksins Svanasöngur
á heiði sem hefur að geyma sönglög
tónskáldsins Sigvalda Kaldalóns. Á
disknum er að finna margar af
þekktustu perlum tónskáldsins sem
og lög sem sjaldan eða aldrei hafa
verið flutt áður. Jónas Ingimundar-
son píanóleikari hafði umsjón með
útgáfunni, vali á flytjendum og
lögum og þegar hann er spurður
hvað geri Kaldalóns svo merkilegan
sönglagasmið, segir hann:
„Sigvaldi Kaldalóns var sjálfur
söngvari af Guðs náð. Hann samdi
mikinn fjölda af lögum sem hittu
fólk í hjartastað. Ótrúlega mörg af
hans lögum eru í kransæðum þjóð-
arinnar – en þó ekki nærri öll. Fyrir
nokkrum árum gaf fjölskylda hans
út allt safnið á nótum, þannig að
æviverk hans hefur verið gert mjög
aðgengilegt.
Í kjölfarið kom upp sú hugmynd
að taka allt safnið hans upp og gefa
út á geisludiskum. Fyrir jólin kom
út fyrsti hlutinn í því safni. Tónleik-
arnir á fimmtudaginn eru í tilefni af
útgáfu diskanna og vel til fundið að
halda tónleikana 13. janúar vegna
þess að þann dag fæddist Sigvaldi
Kaldalóns, árið 1881. Á tónleikunum
koma fram þeir sex söngvarar sem
syngja á tveimur fyrstu diskunum.
Það eru þau Sigrún Hjálmtýsdóttir
sópran, Sesselja Kristjánsdóttir
mezzósópran, Sigríður Aðalsteins-
dóttir mezzósópran, Jóhann Frið-
geir Valdimarsson tenór, Snorri
Wium tenór og Ólafur Kjartan Sig-
urðarson bariton.“
Jónas segir diskana tvo hafa að
geyma um það bil helminginn af
einsöngslögum Sigvalda. „Þetta er
þverskurður,“ segir hann. „Þarna er
að finna lög sem allir elska og dá
en þarna er líka að finna lög sem
heyrast sjaldnar.
Það sem einkennir tónlist Sig-
valda Kaldalóns segir Jónas vera
þessa sterku tilfinningu fyrir söng-
línunni. „Línan spinnur sig áfram
eins og ekkert sé sjálfsagðara. Hái
tónninn er alltaf á hárréttum stað.
Þetta er tónlist sem þú syngur í baði
heima hjá þér þegar þér líður vel.
Hún er svo klæðileg fyrir röddina.
Hluti af vinsældum laga Sigvalda er
sá að þau fara svo vel í röddina. Og
það sækja allir söngvarar í að
syngja lög Sigvalda Kaldalóns.
Nú var hann læknir í Grindavík
og við Ísafjarðardjúp, menntaður í
Danmörku. En það eru einhver
merkileg tengsl við Ítalíu í þessum
línum. Ég er ekki að segja að það sé
O sole mio – en það hreyfist einhver
strengur í manni svipaður þeim
sem hreyfist við að hlusta á ítalska
sólskinstónlist. Það er einhver innri
gleði, innri glóð í lögum hans. Síðan
eru lög eins og Á Sprengisandi – svo
samofið okkur að við höldum jafn-
vel að það sé þjóðlag. Eða Hamra-
borgin – sem er tónklætt ljóð. Ef þú
ferð yfir ljóðið kemstu að því að
tónklæðið – það er að segja, hvernig
ljóðinu er komið fyrir í tónlistinni –
verður ekkert betur gert. Það er
dansað, setið á hestbaki og norður-
ljósin sindra í laglínunum.“
Jónas viðurkennir að víst megi
finna ítalskan streng í okkur Íslend-
ingum. „Að minnsta kosti höfum við
þessa söngelsku. Við eigum það
sameiginlegt með Walesbúum,
Ítölum og Lettum. Þetta liggur dá-
lítið í æðum.
Það er mikil gleði fyrir mig að fá
tækifæri til þess að skoða þessi lög
í þessu ljósi og vinna þau með þeim
söngvurum sem taka þátt í flutn-
ingnum – og ég vil bæta því við að
mér finnst þáttur Gerðubergs í út-
gáfunni unninn af stakri alúð með
fallegri uppsetningu og vönduðum
greinum um tónskáldið. ■
Lög sem hitta í hjartastað
!
Frumsýning 11. feb. kl.20.00 – UPPSELT – 2. sýning 13.feb. kl. 19.00
3. sýning 18.feb. kl 20.00 – 4. sýning 20. feb. kl. 19.00 – FÁAR SÝNINGAR
Námskeið um Toscu og Puccini hjá Endurmenntun Háskóla Íslands
Skráning í síma: 525 4444 – endurmenntun@hi.is
Miðasala á netinu: www. opera.is
Miðasalan er opin kl. 14-18 virka daga, kl. 13-18 lau. og sun. og fram að sýningu sýningardaga. Símasala kl. 10-18 virka daga.
Banki allra landsmanna
Rauð tónleikaröð #3 HÁSKÓLABÍÓI, FIMMTUDAGINN 13. JANÚAR KL. 19.30
György Ligeti ::: San Francisco Polyphony
Joseph Haydn ::: Sjö síðustu orð Krists
Hljómsveitarstjóri ::: Ilan Volkov
Upplestur ::: Pétur Gunnarsson
Háskólabíó vi› Hagatorg I Sími 545 2500 I sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is
Tvö ólík og afar
spennandi verk
„Volkov færði sig yfir í aðra vídd og tók hljómsveitina með
sér. Hann mótaði einhvern magnaðasta tónlistarviðburð sem ég
hef upplifað.“ (the herald í glasgow). Betri umsögn getur
stjórnandi vart óskað sér. Volkov heimsækir Íslendinga í annað
sinn, nú með tvö spennandi en ólík verk í farteskinu.
Pétur Gunnarsson rithöfundur les valda kafla úr
Passíusálmum Hallgríms Péturssonar á milli þátta
DAVÍÐ GUÐBRANDSSON
Leikfélag Reykjavíkur • Listabraut 3, 103 Reykjavík
Miðasalan í Borgarleikhúsinu er opin:
10-18 mánudaga og þriðjudaga,
10-20 miðviku-, fimmtu- og föstudaga
12-20 laugardaga og sunnudaga
Miðasölusími 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is
Börn 12 ára og yngri fá frítt
í Borgarleikhúsið í fylgd fullorðinna
LEIKHÚSVEISLA FYRIR HÓPA
- UPPSKRIFT AÐ SKEMMTILEGU KVÖLDI -
Kl 18:00 Gleðistund í forsal - veitingasalan opin
Kl 18:30 Kynnisferð um leikhúsið
- kynning á verki kvöldsins
Kl 19:00 Matseðill kvöldsins
Kl 20:00 Leiksýning kvöldsins
NÆRING FYRIR SÁL OG LÍKAMA - BÓKIÐ Í TÍMA
STÓRA SVIÐ
HÍBÝLI VINDANNA
leikgerð Bjarna Jónssonar á vesturfara-
sögu Böðvars Guðmundssonar
Lau 15/1 kl 20 - rauð kort - UPPSELT
Su 16/1 kl 20 - græn kort - UPPSELT
Fö 21/1 kl 20 - blá kort - UPPSELT
Lau 22/1 kl 20 - UPPSELT
Lau 27/1 kl 20 - Aukasýning
Lau 29/1 kl 20 - UPPSELT, Su 30/1 kl 20
Fi 3/2 kl 20 - UPPSELT
Lau 5/2 kl. 20, Sun 6/2 kl 20
Fö 11/2 kl 20, Lau 12/2 kl 20
HÉRI HÉRASON
e. Coline Serreau
Fö 14/1 kl 20, Su 23/1 kl 20, Fö 28/1 kl 20
LÍNA LANGSOKKUR
e. Astrid Lindgren
Su 16/1 kl 14, Su 23/1 kl 14, Su 30/1 kl 14,
Su 6/2 kl 14, Su 13/2 kl 14 Síðustu sýningar
ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN
Fjölskyldusýning
THE MATCH, ÆFING Í PARADÍS, BOLTI
Lau, 15/1 kl 14, Lau 22/1 kl 14
kNÝJA SVIÐ/LITLA SVIÐ
BELGÍSKA KONGÓ
e. Braga Ólafsson
Gríman fyrir besta leik í aðalhlutverki
Fö 14/1 kl 20, Su 16/1 kl 20
Fi 20/1 kl 10, Su 23/1 kl 20
Su 30/1 Sýningum lýkur í febrúar
AUSA eftir Lee Hall og
STÓLARNIR eftir Ionesco
Í samstarfi við LA
Fi 13/1 kl 20, Lau 15/1 kl 20
Síðustu sýningar
SVIK
eftir Harold Pinter
Samstarf: Á SENUNNI,SÖGN ehf. og LA
Fö 14/1 kl 20, Fi 20/1 kl 20, Fö 28/1 kl 20
SAUMASTOFAN 30 ÁRUM SÍÐAR
eftir Agnar Jón Egilsson
Í samstarfi við TÓBÍAS
Frumsýning Su 16/1 kl 20 - UPPSELT
Lau 22/1 kl 20, Fi 27/1 kl 20, Su 30/1 kl 20
ATH: Bönnuð yngri en 12 ára