Fréttablaðið - 14.01.2005, Síða 1
SÍÐA 28
● gæti endað í hryllingsmynd
Auðunn Blöndal:
▲
SÍÐA 42
Hitti Eli Roth
um áramótin
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
FÖSTUDAGUR
SAMSTARF Í SMEKKLEYSU
Perculator, samstarfsverkefni þeirra Sig-
tryggs Baldurssonar, Gísla Galdurs, Davíðs
Þórs Jónssonar og Helga Svavars Helga-
sonar, ætlar að spila í Smekkleysu Plötu-
búð klukkan 17 í dag.
DAGURINN Í DAG
14. janúar 2005 – 12. tölublað – 5. árgangur
FRAMKVÆMDIR RASKAST EKKI
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur um að
Fjarðaál verði að gangast undir umhverfis-
mat kemur forstjóra fyrirtækisins á óvart.
Náttúruverndarsinnar segja dóminn stað-
festa að umhverfisráðherra hafi farið offari
við afgreiðslu málsins. Sjá síðu 2
KOSTNAÐARAUKI ÞAR SEM SÍST
SKYLDI Húshitunarkostnaður eykst til
muna á svæðum þar sem kynt hefur verið
með rafmagni, eftir gildistöku nýrra raf-
orkulaga um áramót. Þá óttast fiskeldisfyrir-
tæki að kostnaður stóraukist. Sveitarfélög
sem ekki njóta jarðhita sjá fram á stórauk-
inn kostnað. Sjá síðu 4
IMPREGILO ÆTLAR AÐ SANNA
SITT MÁL Forystumenn Impregilo útskýrðu
sín sjónarmið á fundi með félagsmálaráð-
herra í gær. Þeir telja sig fara fullkomlega eftir
Virkjanasamningnum og ætla að leggja sann-
anir sínar fyrir ráðherra. Sjá síðu 6
Kvikmyndir 38
Tónlist 34
Leikhús 34
Myndlist 34
Íþróttir 28
Sjónvarp 40
Sigurveig Káradóttir:
▲
Í miðju blaðsins
Gaman að
elda fyrir aðra
● matur ● tilboð
Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
DAGAR EFTIR AF
JANÚARTILBOÐI TOYOTA
18
Corolla Sedan, 1,4 l
Tilboðsverð
1.709.000 kr.
Me›allestur dagblaða
Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallups nóvember 2004
MorgunblaðiðFréttablaðið
69%
49%
VEÐRIÐ Í DAG
ALLHVASST FYRIR AUSTAN Víða
rigning eða skúrir síst þó á Norðausturlandi.
Hiti 2-7 stig í dag. Sjá síðu 4
Á
FER
Ð
O
G
FLU
G
I
tónlist fólk tíska matur trend heilsa leikhús
SJÓ
NV
AR
PS
DA
GS
KR
ÁI
N
14
. ja
n –
20
. ja
n
Kristín
Ólafs »
skoðar heiminn
Kona sem skoðar
heiminn
Kristín Ólafs:
▲
Fylgir Fréttablaðinu í dag
● dr. gillian ● skautar
Hefur trú á
sér og liðinu
● hvergi smeykur fyrir hm í túnis
▲
Viggó Sigurðsson, landsliðsþjálfari:
DÓMSMÁL Maður sem er þekktur
af líkamsmeiðingum og hótun-
um gengur nú laus vegna mis-
taka lögreglu. Í janúar í fyrra
var manninum gert að sæta
nálgunarbanni og honum bannað
að koma í námunda við heimili
fólks sem hann hafði sýnt ógn-
andi tilburði.
Maðurinn var úrskurðaður í
gæsluvarðhald til klukkan tólf
þann 3. janúar vegna brota á
nálgunarbanninu. Embætti lög-
reglunnar í Reykjavík fór fram
á það að morgni þess dags að
gæsluvarðhaldið yrði framlengt
og var lögreglunni á Selfossi
falið að sækja manninn á Litla-
Hraun og færa hann fyrir hér-
aðsdóm í Reykjavík. Hún tafðist
hins vegar vegna færðar
og fangaverðir á Litla-Hrauni
höfðu ekki aðra úrkosti en að
láta manninn lausan á hádegi
þrátt fyrir að lögreglan væri
ekki komin á staðinn. Skömmu
síðar handtók lögreglan mann-
inn þar sem hann var á gangi
skammt frá Litla-Hrauni og
færði hann fyrir héraðsdóm um
klukkan hálf tvö þar sem hann
var úrskurðaður í áframhald-
andi gæsluvarðhald. Maðurinn
kærði þessa niðurstöðu til
Hæstaréttar sem komst að
þeirri niðurstöðu að krafa um
áframhaldandi gæsluvarðhald
hafi verið kynnt manninum eftir
að eldri gæsluvarðhaldsúr-
skurður var útrunninn. Því var
málinu vísað frá dómi og maður-
inn látinn laus.
Egill Stephensen, saksóknari
hjá lögreglustjóranum í Reykja-
vík, segir að áhersla verði lögð á
að flýta málinu eins og mögu-
legt sé þar sem maðurinn gangi
laus þangað til að dómur gengur
í málinu. Egill vonast til þess að
það verði tekið fyrir í héraðs-
dómi í dag. Hann telur þetta mál
sýna vel fram á hversu óheppi-
legt það sé að hafa gæsluvarð-
haldsfangelsi austur á Litla-
Hrauni.
Ljóst er að maðurinn sem
gengur nú laus er hættulegur og
lögreglan taldi að það væri ein-
dreginn ásetningur mannsins að
skaða ákveðinn mann og jafnvel
myrða hann. Til vitnis um geð-
veilu mannsins eru tvö bréf sem
hann sendi lögreglunni þar
sem koma fram bollaleggingar
um alvarlegan glæp. Í bréfunum
segir meðal annars: „í hjarta
mínu ber ég svo mikla reiði í
garð ákveðins manns, að ég færi
létt með að fremja glæp sem ylli
því að ég fengi 16 ára fangelsis-
dóm ... ég hef líf þessa manns í
hendi mér.“
– ghg
Klór áfram
í Kópavogi
Um þrír mánuðir eru eftir af klórframleiðslu
Mjallar-Friggjar sem er nú án starfsleyfis. Heil-
brigðiseftirlit Kópavogs taldi framleiðslu lokið.
ATHAFNASVÆÐI MJALLAR-FRIGGJAR
Mjöll-Frigg hefur framleitt klór frá árinu 1974. Fyrirtækið flutti úr Reykjavík í Kópavog í
haust. Fram hefur komið að sleppi klórgas út í andrúmsloftið geti þurft að rýma íbúa-
byggð á allt að 2,7 kílómetra svæði í kringum fyrirtækið. Lítil hætta sé talin á að gat geti
komið á kútana innan fyrirtækisins. Hættan sé mest við flutning á þeim.
Gengur laus
fyrir mistök
Hættulegur maður gengur laus því lögregla var
of sein að færa manninn fyrir héraðsdóm.
Annar maður er talinn vera í hættu vegna þessa.
Verðbólga við þolmörk:
Kjarasamn-
ingum ógnað
EFNAHAGSMÁL Verðbólgan síðustu
tólf mánuði hefur ekki verið
hærri síðan í júlí 2002. Vísitala
neysluverðs hækkaði um 0.08
milli desember og janúar, en búist
var við lækkun.
„Þetta er háalvarlegt,“ segir
Ólafur Darri Andrason hagfræð-
ingur ASÍ og telur yfirgnæfandi
líkur á að forsendur kjarasamn-
inga bresti.
Verðbólgan nú er á þolmörkum
verðbólgumarkmiðs Seðlabankans
sem ber nú að skrifa ríkisstjórninni
bréf og benda á ástæður verðbólg-
unnar og leiðir til úrbóta. Ólafur
Darri segir sérkennilegt að opin-
berir aðilar hækki gjaldskrár sínar
við núverandi kringumstæður.
- hh / sjá síðu 26
KLÓRGAS Nægilegt klórgas er til
framleiðslu klórs næstu tvo til
þrjá mánuðina í húsi Mjallar-
Friggjar að Vesturvör í Kópavogi.
Eigandinn greindi frá því á fundi
bæjarráðs í gær.
Hansína Björgvinsdóttir, bæj-
arstjóri Kópavogs, segir umhugs-
unarvert að Heilbrigðiseftir-
lit Hafnarfjarðar- og Kópavogs-
svæðis hafi talið að búið væri að
vinna úr klórgasbirgðum Mjallar-
Friggjar.
Umhverfisráðuneytið hefur
óskað eftir því að Umhverfis-
stofnun skoði málið vegna mis-
vísandi upplýsinga sem borist
hafi frá heilbrigðiseftirlitinu.
Davíð Egilsson, forstjóri Um-
hverfisstofnunar, segir stofnun-
ina hafa vitað af málinu og kynni
sér málavöxtu þess.
Hansína segir upplýsingarnar
um áframhaldandi framleiðslu
klórs ekki breyta ákvörðun bæjar-
yfirvalda um að fyrirtækið fái
að klára klórgasbirgðirnar. Of
áhættusamt sé að flytja þær burt
af svæðinu.
Á fundi bæjarráðs felldi meiri-
hlutinn tillögu samfylkingar-
mannsins Flosa Eiríkssonar um að
framleiðslan yrði stöðvuð og
leitað yrði annarrar lóðar og ör-
uggari fyrir fyrirtækið. Hansína
segir meirihlutann ekki hafa
viljað vekja falskar vonir eiganda
Mjallar-Friggjar. Fyrirtækið geti
haldið annarri framleiðslu en
klórs áfram á lóðinni. - gag
EGILL STEPHENSEN
Saksóknari hjá lögreglustjóranum í Reykjavík
segir málið sýna hve óheppilegt það er að
hafa gæsluvarðhald á Litla-Hrauni.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.