Fréttablaðið - 14.01.2005, Page 4
4 14. janúar 2005 FÖSTUDAGUR
Landsvirkjun:
218 milljóna tap af fjarskiptum
FJARSKIPTI Í bréfi sem Friðrik
Sophusson, forstjóri Landsvirkj-
unar, sendi Steinunni Valdísi
Óskarsdóttur borgarstjóra fyrir
viku kemur fram að Landsvirkj-
un hefur tapað tæpum 218 millj-
ónum á fjarskiptarekstri frá því
Landsvirkjun fór að fjárfesta í
slíkum fyrirtækjum.
Mestu skiptir fjárfesting
Landsvirkjunar í Stiklu hf, sem
sameinað var tetrahluta Línu.
Nets undir nafninu Tetra Ísland.
Á árunum 2000 og 2001 lagði
Landsvirkjun til hlutafé upp á 65
milljónir í Stiklu hf. Við stofnun
Tetra Ísland var hlutafé aukið í
138 milljónir. Þetta hlutafé upp á
203 milljónir hefur nú verið af-
skrifað. Eftir stendur 50 milljóna
hlutur í Tetra Ísland sem greitt
var á árinu 2004 við endurskipu-
lagningu fyrirtækisins.
Í maí í fyrra afskrifaði Orku-
veita Reykjavíkur fjárfestingu
sína í Tetra Ísland og nam tap
Orkuveitunnar alls 428,2 milljón-
um króna.
Árið 2001 voru allar fjar-
skiptaeignir Landsvirkjunar
fluttar í sérstakt fyrirtæki,
Fjarska ehf. Í upphafi var hluta-
fé 250 milljónir. Samsafnað tap
af rekstrinum eru tæpar 15 millj-
ónir.
- ss
Tvöfalt morð:
Myrti ófríska
konu sína
NOREGUR Norskur karlmaður hef-
ur verið handtekinn fyrir morðið
á ófrískri eiginkonu sinni og
ófæddu barni sem hún hafði borið
undir belti í nær níu mánuði.
Maðurinn gaf sig sjálfur fram
við lögregluna í Stafangri og til-
kynnti um verknaðinn, að því er
fram kemur á vef blaðsins Aften-
posten. Þar segir að konan hafi
fundist helsærð í íbúð þeirra
skömmu síðar. Hún var flutt á
Háskólasjúkrahúsið í Stafangri en
starfsfólki þess tókst hvorki að
bjarga lífi hennar né barnsins.
Maðurinn verður ákærður
fyrir tvöfalt morð. ■
■ FLÓÐBYLGJAN
BÖRN Í VÍGASVEITIR Uppreisnar-
menn Tamíl-tígra hafa fengið börn
sem misstu foreldra sína í flóð-
bylgjunni til liðs við sig til að berj-
ast gegn stjórnvöldum á Srí Lanka.
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna
hefur staðfest dæmi um þrjú börn,
ellefu, tólf og fimmtán ára, sem
hafa gengið til liðs við þá og óttast
að fleiri hafi verið þvinguð í víga-
sveitir Tamíl-tígranna.
FERÐALÖG HEFJAST Á NÝ Norræn-
ar ferðaskrifstofur ætla að hefja
ferðir til Phuket í Taílandi aftur
snemma í næsta mánuði. Flogið
verður með fyrstu farþegana 8.
febrúar. Yfirvöld í Taílandi kepp-
ast við að hreinsa til eftir flóð-
bylgjuna og hvetja ferðamenn til
að snúa fljótt aftur.
BÍÐA MEÐ BROTTREKSTRA
Hollenska útlendingaeftirlitið til-
kynnti í gær að það myndi bíða
með það fram í mars að vísa úr
landi ríkisborgurum frá löndunum
sem urðu fyrir barðinu á flóð-
bylgjunni. Undanfarin ár hafa
Hollendingar vísað þúsundum
hælisleitenda frá ár hvert.
ALÞJÓÐLEGT VIÐBRAGÐSKERFI
Kofi Annan, aðalritari Sameinuðu
þjóðanna, sagði að ríki heims
þyrftu að koma upp viðvörunar-
kerfi á heimsvísu sem gæti varað
við hættu á flóðbylgjum og öðrum
náttúruhamförum.
SÖFNUN MEÐAL FANGA Fangar í
tékknesku fangelsi söfnuðu fé til
hjálparstarfs á hamfarasvæðunum
í Asíu og Afríku. 41 fangi í fang-
elsinu Bohunice í Brno gaf sam-
tals 28 þúsund krónur, hver og
einn frá tvennum mánaðarlaunum
sem hægt er að vinna sér inn í
fangelsinu upp í sexföld mánaðar-
laun.
Höfðabakka 1 - sími 587 50 70
TILBOÐ
Humar 1.290,-
Marlinsteikur 1.990,-
Ath: Opið laugardag frá
10.00 - 14.30
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
113,31 +0,14%
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
62,57 62,87
118,05 118,63
82,71 83,17
11,11 11,18
10,09 10,15
9,14 9,19
0,61 0,61
95,71 96,29
SALA
GENGI GJALDMIÐLA 13.01.2005
GENGIÐ
Heimild: Seðlabanki Íslands
HÚSHITUN Kostnaður vegna hús-
hitunar með rafmagni gæti aukist
um 30 þúsund krónur á ári í
þéttbýli og upp undir 40 þúsund
krónur í dreifbýli eftir gildis-
töku nýrra raforkulaga, að mati
Tryggva Þórs
Haraldssonar,
f o r s t j ó r a
RARIK. Þá telja
fiskeldisstöðvar
að aukinn raf-
magnskostnaður
geti numið tug-
um prósenta.
Elvar Árni
Lund, sveitar-
stjóri í Öxar-
fjarðarhreppi ,
segist hafa þungar áhyggjur af því
hvaða áhrif breytt rekstrarskilyrði
Silfurstjörnunnar geti haft á sveit-
arfélagið. „Þetta er stór vinnustað-
ur og snertir okkur mikið,“ sagði
hann.
Þá telur Guðný Hrund Karls-
dóttir, sveitarstjóri í Raufarhöfn,
að ný raforkulög kunni að setja
verulegt strik í rekstur sveitarfé-
laga þar sem ekki sé hitaveita.
„Mér sýnist hægt að búast við um
25 prósenta hækkun á rafmagns-
kostnaði þar sem engrar niður-
greiðslu nýtur,“ sagði hún en
áréttaði að enn væri verið að
skoða málið og útreikningar ekki
endanlegir. „Þessir rekstrarörð-
ugleikar virðast hins vegar engan
endi ætla að taka,“ segir hún.
Elvar Árni segir áhrif nýju raf-
orkulaganna hafa verið rædd á
fundi með þingmönnum kjördæm-
isins í haust, en þá hafi hækkunin
verið fyrirséð, sem og áhrif á af-
komu fiskeldisins. „En það hefur
ekkert svar borist frá þeim enn
þá,“ sagði hann og taldi kostnaðar-
auka vegna nýrra raforkulaga
koma niður þar sem síst skyldi, á
svæðum sem ekki hefðu notið þess
að vera með hitaveitu. „En svo
felast vonandi í þessu tækifæri
líka,“ bætti hann við og sagði vonir
standa til að virkja mætti lághita-
svæði í sveitinni með sömu tækni
og beitt hafi verið hjá Orkuveitu
Húsavíkur. „Þannig gætum við selt
rafmagn inn á Landsnetið.“
Forstjóri RARIK segir aukn-
ingu húshitunarkostnaðar ráðast
af því að ekki megi lengur færa á
milli kostnað eftir notkun raf-
magnsins og gefa þannig afslátt
til húshitunar. „Ríkið hefur hins
vegar greitt niður rafhitun og eru
til þess um 900 milljónir á fjárlög-
um,“ segir Tryggvi, en Orkustofn-
un hefur umsjón með greiðslun-
um. „Hækkunin er nokkuð mikil,
en á móti kemur lækkun hjá al-
mennum notendum og atvinnulíf-
inu,“ sagði hann og benti á að
stjórnvöld gætu einnig ákveðið
auknar niðurgreiðslur og jafnað
þannig kostnað. „En það er
nokkuð sem við ráðum ekki við.“
olikr@frettabladid.is
Kostnaðarauki þar
sem síst skyldi
Húshitunarkostnaður eykst til muna á svæðum þar sem kynt hefur verið með rafmagni eftir
gildistöku nýrra raforkulaga um áramót. Þá óttast fiskeldisfyrirtæki að kostnaður stóraukist.
Sveitarfélög sem ekki njóta jarðhita sjá fram á stóraukinn kostnað.
HLUTI SVEITARFÉLAGA SEM
EKKI BÚA VIÐ HITAVEITU:
Kjósarhreppur
Borgarfjarðarsveit
Grundarfjarðarbær
Snæfellsbær
Skagafjörður (utan þéttbýlis)
Blönduós
Ólafsfjörður (utan þéttbýlis)
Dalvíkurbyggð (utan þéttbýlis)
Eyjafjarðarsveit (innan Hrafnagils)
Skútustaðahreppur (utan þéttbýlis)
Þingeyjarsveit (utan þéttbýlis við Lauga)
Raufarhafnarhreppur
Þórshafnarhreppur
Seyðisfjörður
Fjarðabyggð
Reyðarfjörður
Vopnafjarðarhreppur
Fljótsdalshreppur
Borgarfjarðarhreppur
Mjóafjarðarhreppur
Fáskrúðsfjarðarhreppur
Breiðdalshreppur
Djúpavogshreppur
Austurbyggð
Fljótsdalshérað (utan Egilsstaða)
Hornafjörður
Vestmannaeyjar
Árborg (utan þéttbýlis)
Mýrdalshreppur
Rangárþing
Gaulverjabæjarhreppur
Sveitarfélagið Ölfus
Bláskógabyggð
Ísafjörður
Bolungarvík
Súðavík
Suðureyri
Flateyri
Þingeyri
Bíldudalur
Patreksfjörður
Árneshreppur
GUÐNÝ HRUND
KARLSDÓTTIR
RAUFARHÖFN
Orkustofnun heldur utan um niðurgreiðslur vegna rafhitunar íbúðarhúsnæðis, en hægt er að sækja um þær á svæðum þar sem ekki er
hitaveita. Bróðurpartur rafhitunar húsnæðis er hjá RARIK og Orkubúi Vestfjarða.
FRIÐRIK SOPHUSSON
Forstjóri Landsvirkjunar segir tap
fyrirtækisins vegna fjárfestingar í Tetra
Ísland vera 203 milljónir.