Tíminn - 20.04.1975, Qupperneq 4

Tíminn - 20.04.1975, Qupperneq 4
4 riVIINN Sunnudagur 20. april 1975. \ Járnbrautir á borðinu Aðaltómstundagaman verk- fræðingsins Nikolai Gundorov i Moskvueraðbúa til járnbrautir og járnbrautarstöðvar i ör- smárri. en þó nákvæmri mynd raunverulegra stöðva og brauta. Það getur tekið marga mánuði að búa til módel, sem er nákvæm eftiriiking einhverrar járnbrautarstöðvar, sem var i notkun fyrir fjöldamörgum ár- um. og er kannski ekki uppi- standandi lengur. Þessa stund- ina er Nikolai að gera eftirlík- ingu að stöð, og þar eiga járn- brautarvagnarnir að geta kom- ið þjótandi inn á stöðina og farið út úr henni aftur. Nikolai Gun- dorov er félagi i módelsmiða- klúbbi, og i þeim klúbbi eru fjöl- margir áhugamenn á þessu sviði. Þeir hafa gert nokkuð af þvi að sérhæfa sig, þannig að einn býr kannski einungis til járnbrautarvagna, annar helg- ar sig stöðvarhúsunum, og sá þriðji hefur valið sér að gera ótrúlega nákvæmar eftirllking- ar af trjám og runnum. Þegar allir hafa unnið sitt verk, er hlutunum raðað saman, og úr þessari samvinnu verður meistaraverk likt þvi, sem þið sjáið Nikolai veri að vinna að hér á myndinni. Klúbbfélagarn- ir hafa meira að segja náð svo langt á þessari braut sinni, að þeir hafa unnið til verðlauna á alþjóðavettvangi. f 19. alþjóð- legu samkeppninni, sem haldin var i Berlin og fjallaði einungis um lesta- og járnbrautarstöðv- armódel, hlaut Nikolai verð- laun. Hann hlaut öll greidd at- kvæði dómnefndar eða 100 stig. Bandarísk þátt- taka í sovézkum rannsóknum Sovézka hafrannsóknarskipið „Akademik Kurtjatov'’ kom ný- lega við i New York til að taka um borð bandariska haffræð- inga. Sovézkir visindamenn, sem fyrir eru um borð, munu ásamt hinum bandarisku fram- kvæma umfangsmiklar rann- sóknir, sem meðal annars eru fólgnar i könnun hafsbotnsins og jarðskjálftafhaeðitegum tilraun- um. Rannsóknirnar verða gerð- ar á leið, sem skipið fylgir, þvertyfir Atlantshafið til Dakar á vesturströnd Afriku. Leiðangurinn er liður i undir- búningi að sameiginlegum djúpsjávarrannsóknum, sem hefjast eiga árið 1977, Hlutu viður- kenningu fyrir útivistarsvæði t hjarta Munchen-borgar er ekki lengur gert ráð fyrir þvi að menn þjóti um á bflum, heldur er þar einungis ætlunin, að fót- gangandi fólk fari um og njóti útiverunnar. Hópur þýzkra arkitekta og skipulagsfræðinga sá um að skipuleggja þetta svæði, sem nær yfir 50 þúsund fermetra, og árangurinn er tal- inn mjög góður, og meira að segja svo góður, að þessum samvalda hóp hefur nú verið veitt 25 þúsund dollara viður- kenning frá Bandarikjunum. Bilaumferð var fyrstbönnuð um þetta svæði fyrir átta árum, og árið 1972 var fyrsti hluti þess fullfrágenginn og vigður, en nú hefur allt svæðið verið tekið i notkun. Það nær yfir Marien- platz, og við það eru tveir frægir tumar, Frauenkirche og Rat- haus, eða Frúarkirkjunnar og ráðhússins. # DENNI DÆMALAUSI Hvort þótti þér betra, söngur- inn, eða pianóleikurinn. Smá- kökurnar. Sunnudagur 20. april 1975 TÍMINN 5 Áfengisneysla — og afleiðingar hennar Kjölstad, yfirlæknir áfengis- varna i Noregi, leggur mikla áherzlu á, að leitað sé allra ráða til að koma i veg fyrir áfengis- neyzlu unglinga innan tvitugs. Hann telur rannsóknir sýna, að unglingadrykkja sé miklum mun skaðlegri en löngum hefur veriðhaldið. Kjölstad segir, að talið sé, að fullorðinn maður, sem neytir i óhófi, veröi drykkjusjúklingur á tíu árum. Táningur getur hins vegar orðið vesalingur á tiu mánuðum. 1 Ontariofylki i Kanada var áfengiskaupaaldur lækkaður úr 21 ári i 18 ár i júli 1971. Sagt var, þegar breytingin var ákveðin, að unglingar á aldrinum 18—20 ára, og jafnvel enn yngri, drykkju, og betra væri að þeir gerðu það löglega en ólöglega. Afleiðingarnar urðu þær, að drykkja unglinga jókst mjög, bæði þeirra, sem orðnir voru 18 ára, og hinna,sem yngri voru. Astæðurnar telja visindamenn vestra augljósar. Ólögleg drykkja minnkar ekki við lækk- un aldursmarks, heldur færist hún neðar með markinu. Ári eftir lækkunina hafði umferðar- slysum vegna ölvunar, þar sem 16—17 ára unglingar komu við' sögu, fjölgað úm 162%, slysum, þar sem 18 ára unglingar áttu hlut að máli, hafði fjölgað um 339%, og umferðarslysum, sem ölvaðir 19 ára unglingar lentu i, hafði fjölgað um 346%. Til samanburðar má geta þess, að fjölgun umferðarslysa, þar sem 24 ára fólk kom við sögu, nam einungis 20%. jtjL* Hljóðfæri frá steinöld 1 fornum hellabyggðum, ekki langtfrá oliubænum Nebit Dag i sovétlýðveldinu Turkmenia við austurströnd Kaspiahafsins, hafa fuúdizt merkileg hljóðfæri frá steinöld. Fornminjafræðingarnir héldu fyrst, að þetta væri venjulegar perlufestar og armbönd, sem aðeins hefði verið notað til skrauts, en við nánari rannsókn kom i ljós, að þessir hlutir höfðu verið notaðar til að framleiða tónlist. Þetta er lika eina skýr- ingin á þvi, hversu útbreiddir þeir eru á mjög stóru svæði um- hverfis Kaspiahafið. Við þessar rannsóknir hafa lika fundizt stór bein með merkilegum útskurði. Visinda- mennimir telja, að steinaldar- menn, sem bjuggu við Kaspia- hafið fyrir 12.000 árum, hafi not- að þessi dýrabein sem ásláttar- hljóðfæri. Skemmtun haldin í góðum tilgangi hún hér á mynd, falleg kona með mikið ljóst hár og dýrindis perlúfesti um háls. Hún stendur þarna brosmild og fin hjá manninum sfnum, sem auðvitað heitir Guilford Dudley Jr. Einnig er hér með mynd af Bob Hope og stúlku, sem nefnist Tammy Grimes, en hvort hún er að skemmta með honum, eða var borðdaman hansjvitum við ekki. Einnig sjáum við herra og frú Douglas Fairbanks Jr. koma i samkvæmið, en hann var eins og flestir vita frægur leikari, en hefur i seinni tið dregið sig i hié. Vic Damone og Arlene Dahl (leikarar bæði tvö) virðast hrifin af frammistöðu Bob Hope, þau horfa hugfangin á hann. Þarna var margt fleira frægt fólk, og sagt er að það hafi heldur betur hækkað i peningakassanum hjá Sam- bandi bandariskra krabba- meinsfélaga. Það er viðar en á fslandi, sem konur eru duglegar að safna til liknarmála. Mary Sanford heitir kona ein i Bandarikjun- um, og hefur hún mikið beitt sér I baráttunni gegn krabbameini. Hún var heiðursgestur i sam- kvæmi einu miklu, sem haldið var i Poinciana Club á Palm Beach i Florida. Á myndinni sjáum við hana, þegar verið er að fagna henni, en hún setti skemmtunina . Þar skemmti Bob Hope, og var hinn sprækasti, en hann hefur siðast- iiðin 5 ár skemmt á þessum samkomum, án þess að taka nokkuð fyrir það, og þar að auki verið óspar á að greiða sjálfur fyrir sig veitingar og annað (kvöldverður kostar þarna á þessum samkomum um 20 þús. isl. krónur!). Formaður skemmtinefndar þeirrar er sá um þessa fjársöfnun „heitir” frú Guilford Dudley Jr. og sést M

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.