Tíminn - 20.04.1975, Blaðsíða 34

Tíminn - 20.04.1975, Blaðsíða 34
34 TÍMINN Sunnudagur 20. aprll 1975. Timinn óskar þessum bruðhjónum til hamingju á þessum merku tímamótum i ævi þeirra. No 20: No 21: No 22: Þann 14. sept. voru gefin saman I hjónaband i Dóm- kirkjunni Guörún Jónsd.,Jóns Inga Guömundssonar sundkennara.og Jón Þór Guömundsson, Guömundar Georgs Jónssonar starfsmanns Loftleiöa I Kaup- mannahöfn. Heimili þeirra er á Holtsgötu 31 Ytri-Njarövlk. Stúdló Guömundar. Þann 5. apr. voru gefin saman af séra Grimi Grimss. Guörún Jónsd. og Asgeir Jóhannsson. Heimil þeirra er að Seljavegi 3A. Stúdló Guðmundar. Þann 22. febr. voru gefin saman i hjónaband I Bústaða- kirkju af séra ólafi Skúlasyni ungfr. Helga Ólena Eiriksd. og Albert Ómar Guðbrandss. Heimili þeirra er á Eskifirði. Stúdió Guðmundar. Aðalfundur Alþýðubankans: rinnlán einn milljarður rekstrarafgangur 22 milljónir AÐALFUNDUR Alþýðubankans var haldinn I Súlnasal Hótel Sögu laugardaginn 12. apríl s.l. Fundarstjóri var Hannibal Valdimarsson, fyrrverandi fé- lagsmálaráöherra, en fundarrit- arar þeir Snorri Jónsson varafor- seti Alþýðusambandsins og Þór- unn Valdimarsdóttir, formaður Verkakvennafélagsins Fram- sóknar. Formaöur bankaráðs Alþýðu- bankans, Hermann Guðmunds- son flutti skýrslu um starfsemi bankans á slðastliðnu ári. 1 skýrslunni kom fram að vöxtur bankansá þessu 4. starfsári hans var sem fyrr markviss og örugg- ur. Nema heildarinnlán bankans nú um 1 milljarði króna og hafa sjöfaldazt frá opnun bankans árið 1971. Þá kom og fram i skýrslu formanns, að rekstrarafkoma bankans hefur batnað mjög á s.l. ári. Rekstrarafgangur, fyrir af- skriftir, nam 22 millj. króna. Skýrt var frá þvi að bankaráð hefði ákveðið að nota heimild sið- asta aðalfundar um aukningu á hlutafé bankans, þannig, að nú hefi verið boðin út hlutaf járauki að fjárhæð 30 millj. kr. og gildir forgangsréttur hluthafa til 15. maln.k. Siðar verður ákveðið um útboð eftirstöðva hlutafjárauka að sömu fjárhæð, en stemmt er að þvi að auka hlutafé^ I heild úr 40 millj. króna I 100 millj. kr. A s.l. ári tók til starfa við Al- þýðubankann veðdeild sam- kvæmt breytingum, sem gerðar voru á samþykktum bankans árið 1973. Var veðdeildinni heimilað að gefa út bankavextabréf að fjárhæð 25 millj. kr. og liggja nú fyrir bókanir á þeirri fjárhæð allri. Hlutverk veðdeildarinnar er að styðja menningarlega og fé- lagslega starfsemi verkalýðs- hreyfingarinnar m.a. með lán- veitingum til stéttarfélaga og samtaka þeirra i sambandi við byggingu orlofsheimila og ann- arrar félagslegrar starfsemi. Hafa fyrstu lánin þegar verið af- greidd I þessu skyni. 1 skýrslu bankaráðs kom fram, að bankinn hefur leitað hófanna um leyfi tilaðopna útibú, bæði ut- an Reykjavikur svo og i hinum nýju borgarhverfum. Enn sem Leigjendur garða í Kópavogi Vinsamlegast greiðið gjöldin fyrir 1. mai. — Gjaldið er fyrir: 300 fermetra 1000 krónur, 150 fermetra 600 krónur, 100 fermetra 400 krónur. Gjöldunum veitt móttaka i bæjarskrifstof- unni, félagsheimilinu, suðurdyr, daglega kl. 9—12. Garðyrkjuráðunautur. komið er hafa yfirvöld ekki séð sér fært að heimila opnun útibús úti á landi. Hins vegar standa vonir til að Alþýðubankinn geti I náinni framtlð hafið starfrækslu útibús I Austurhluta Reykjavik- urborgar, en I því er orðin mikil nauðsyn m.a. vegna umferðar- þunga á Laugavegi, þar sem bankinn er nú til húsa. Jón Hallsson, bankastjóri, lagði fram endurskoðaða reikninga bankans, ásamt skýrslu banka- stjómar, og skýrði hvort tveggja. 1 skýrslu bankastjórnar er rak- in þróun efnahagsmála á árinu 1974 og gerð grein fyrir spám um horfur á árinu 1975 með sérstöku tilliti til áhrifa á kjör launafólks, og atvinnuöryggi hérlendis. Um hag og afkomu bankans kom þetta m.a. fram: Innborgaðhlutafé nam I árslok tæpum 37 millj. króna. Til afskrifta er varið 5,1 millj. kr., en til varasjóðs tæpum 13 millj. kr. Hcildarinnlán bankans námu I árslok 941 millj. kr. og höfðu auk- izt á árinu um 277 millj., eða um 41,7%. Spariinnlán námu 829 millj. og höfðu hækkað um 226 millj. kr. eða 37,5%. Veltiinnlán voru 83,6%. Heildarútlán voru I árslok 669 millj. kr. og höfðu vaxið á árinu — 204 millj. kr. eða um 43,9%. Bundin innstæða i Seðlabanka nam I árslok 192 millj. kr. og hafði vaxið á árinu um 54 millj. kr. Inn- stæða Alþýðubankans á við- skiptareikningi I Seðlabanka var i árslok 56 milljónir kr. Aðalfundurinn samþykkti þá tillögu bankaráðs að hluthöfum skuli greiddur 12% arður af hluta- fé sínu. Er það I fyrsta sinn, sem bankinn greiðir arð af hlutafé. í bankaráð voru einróma endurkjörin: Jóna Guðjónsdóttir, Hermann Guðmundsson, Einar Ögmundsson, Björn Þórhallsson og Markús Stefánsson. Til vara: Herdis ólafsdóttir, Hilmar Jóns- son, Hilmar Guðlaugsson, Óðinn Rögnvaldsson og Snorri Jónsson. Endurskoðendur bankans voru endurkjörnir: Björn Svanbergs- son og Steindór Ólafsson. Þriðji endurskoðandinn er skipaður af ráðherra. Aðalfundurinn var mjög fjöl- sóttur og rikti þar mikill hugur um frekari eflingu Alþýðubank- ans. w ! Rósin GLÆSIBÆ Flestir brúðarvendir eru frá Rósinni Sendum um allt land ^ Sími 8-48-20 BILAVARA- HLUTIR NOTAÐIR VARAHLUTiR FLESTAR GERÐIR ELDRI BÍLÁ Ódýrt: vélar qírkassar drif hásingar fjaðrir öxlar hentugir i aflanikerrur bretti hurðir húdd róður o.fl. BILAPARTASALAN Höföatúni 10, simi 11397. Opið frá kl. 9—7 alla virka daga og 9—5 laugardaga.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.