Tíminn - 20.04.1975, Blaðsíða 6

Tíminn - 20.04.1975, Blaðsíða 6
6 TÍMINN Sunnudagur 20. apríl 1975, Ingólfur Davíðsson: Byggt og búið í gamla daga LXX Hermannabyssa (frá 1855?) Enn leitum við til „Bliks" um myndir og texta frá Vest- mannaeyjum. Árið 1853 gerðist danskur lautinant sýslumaður i Vest- mannaeyjum. Sá hét A.A. Kohl. Alltaf var hann nefndur Kaptein Kohl i daglegu máli Eyjafólks. Þessi danski sýslu- maður stofnaði herskóla i Eyj- um fljótlega eftir komu sina þangað. Fyrsti og einasti her- skóli á Islandi. Vopnin, sem hann kenndi hinum ungu Eyja- búum að bera, voru gerð úr tré fyrstu árin. Arið 1855 sendi hann beiðni til konungsins og mæltist til þess, að hann gæfi herskólan- um nokkrar byssur úr vopna- búri sinu. Þá fékk hann sendar til Eyja 30 byssur. Þetta voru framhlaðningar. Siðar fékk sýslumaður aðra byssu- sendingu frá kónginum eða danska dómsmálaráðuneytinu. Myndin er af einustu byssunni, sem vitað er, að enn er til. Byggðarsafn Vestmannaeyja á þennan framhlaðning. Húsið „Nöjsomhed” i Vest- mannaeyjum. Það var byggt árið 1833 og rifið 1911. Þetta var embættismannabústaður dönsku valdhafanna. Þarna bjuggu læknar, sýslumenn og prestar. 1 húsi þessu bjó t.d. séra Brynjólfur Jónsson, hinn merki klerkur Eyjamanna, þau árin, sem hann var aðstoðar- prestur sr. Jóns Austmanns, 1852-1858. Siðustu árin var hús þetta verbúð ,landmanna”, sem lágu við i Eyjum á vetrar- vertfðum. Teikningu þessa gjörði Engilbert Gislason, list- málari. Miðhús i Vestmannaeyjum. Hér bjó hinn kunni formaður og siðan hafnsögumaður Eyjanna, Hannes Jónsson. 1 Stakkagerði stóð lengi burstabær. Gamli bærinn á jörðinni Eystra-Stakkagerði i Vest- mannaeyjum. Hann var rifinn 1899. Byggingin með sex-rúðna gluggunum tveim er stofan. Austan við hana (hægra megin) eru bæjardyrnar og inn af þeim bæjargöngin. Kona stendur þar við dyr. Lengst til hægri er skemman. Undir súðum á þrem húsunum til hægri voru svefn- herbergi heimilisfólksins og svo sjómanna, sem unnu hjá bónda og húsfreyju á vertið. 1 þessum bæ bjuggu siðast Arni hreppstjóri Diðriksson, út- gerðarmaður, formaður og bóndi, og kona hans, frú Ásdis Jónsdóttir, amma séra Jes A. Gislasonar á Hóli, en hann var dóttursonur hennar af fyrra hjónabandi. 1 baksýn blasir við Heimaklettur, Miðklettur og Yztiklettur. Verzlunarhús Garðsverzlunarinnar, einokunarverzlunarinnar, gnæfa hæst norður við höfnina. Húsið I Eystra-Stakkagerði i Vestmannaeyjum var byggt 1899. Hér bjuggu hin merku hjón frú Jóhanna Arnadóttirog Gisli Lárusson frá Búastöðum i Eyjum, gullsmiður að iðn, en annars kaupfélagsstjóri, for- maður, bóndi og forustumaður i margs kyns menningarmálum byggðarlagsins. Frú Jóhanna húsfreyja er önnur frá hægri á myndinni. Lengst t.h. Ágústa Lárusdóttir systir Ólafs héraðs- læknis. Talið frá vinstri: Guðbjörg, kona Þorkels í Sand- prýði, Theodóra Gisladóttir, elzta 'barn Stakkagerðishjóna. .Nöjsomhed” (1880-1883). Eystra-Stakkagerði (byggt 1899) Miðhús Eystra-Stakkagerði (gamli bærinn)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.