Tíminn - 20.04.1975, Side 7
Sunnudagur 20. apríl 1975.
TÍMINN
7
Fy rir daga
námsleiðans
Magnús Sveinsson:
HVÍTARBAKKASKÓLINN
190S-1931
178 bls. Prentun: Prent-
smiðja
Arna Valdemarssonar h.f.
Reykjavik 1974.
ARIÐ 1905 voru skóla- og
fræðslumál Islendinga mjög
með öðrum hætti en siðar varð.
Þá var skölaganga hamingja,
sem ungt fólk dreymdi um,
orðið námsleiði var ekki komið
inn I Islenzka tungu, og yfir-
gnæfandi meirihluti þeirra, sem
brutust menntaveginn, gerði
það vegna þess, að þá hungraði
og þyrsti eftir fróðleik. Þótt sú
skoðun væri þá enn útbreidd i
landinu, að bókvitið yrði ekki i
askana látið, fer ekki á milli
mála, að einmitt þess- eldmóður
og óslökkvandi menntaþrá
ungs fólks hefur verið ein helzta
lyftistöng og hvatning margra
þeirra frumherja Islenzkra
skólamála, sem ruddu brautina
og lyftu Grettistökum, oft við
hinar fátæklegustu ytri að-
stæður.
Einn slikra afbragðsmanna
var Sigurður Þórólfsson, sá er
stofnaði Hvítárbakkaskólann i
Borgarfirði árið 1905, en eins og
mörgum mun kunnugt, varð
hann undanfari héraðsskólans
að Reykholti, þótt auðvitað sé
nú margt orðið ólikt þvi sem var
fyrir sjötiu árum.
Nú hefur Magnús Sveinsson
kennari, einn af nemendum
Hvitárbakkaskólans, skrifað
bók um þessa gagnmerku
menntastofnun, tilurð hennar og
sögu, og um þá starfshætti, sem
þar riktu. Þetta er stórfróðleg
bók og einkar læsilega skrifuð.
Fyrsti þáttur bókarinnar
heitir Drög aö sögu Hvitár-
bakkaskólans, upphaf skóla-
seturs. Þessi bókarhluti skiptist
svo f margar smærri einingar,
og veita kaflafyrirsagnir strax
nokkra hugmynd um innihaldið.
Hér kemur langt nafn á stuttri
grein (og hefði greinin gjarnan
mátt vera lengri, þvi að hún er
góð): „Sigurður Þórólfsson
skólastjóri Hvitárbakkaskólans
1905-’20. Brautryðjandi lýðhá-
skólastefnunnar.” Þá er grein
sem heitir „Stjórn skóla og dag-
legt lif ”, grein, sem heitir
„Félagslif”, o. m. fl. Nokkrir
fyrrverandi nemendur Hvitár-
bakkaskólans hafa skrifað um
hann greinar fyrr á árum, m.a.
Helgi Hjörvar, Jón Ivarsson og
Skúli Þorsteinsson, fyrrum
námsstjóri. Allar þessar
greinar eru birtar i bók
Magnúsar Sveinssonar, og er
að þeim hinn mesti fengur. En
meginefni bókarinnar hefur
Magnús sjálfur skrifað.
Þegar rakin er saga slikrar
menntastofnunar, hlýtur óhjá-
kvæmilega að kenna margra
grasa, og er auðvitað vonlaust
að tina það allt til i einni blaða-
grein.
Auðséð er á öllu, að Sigurður
Þórólfsson hefur verið frábær
skólamaður. Hann kenndi nær
eingöngu með fyrirlestrum, en
próf hafði hann engin (og trú-
lega hefði honum seint dottið i
hugaðkrefjaststúdentsprófs af
ungu fólki, áður en það fengi
leyfi til þess að læra barna-
gæzlu).Hitt er vist, að Sigurður
Þórólfsson hefur reynt að koma
hverjum manni, sem með hon-
um var, til nokkurs þroska, eins
og sagt var um annan ágætis-
mann,sem uppi var öldum fyrr.
Og það þykist undirritaður hafa
eftir bæði mörgum heimildum
og traustum, að sérhver
nemandi Hvitárbakkaskólans
hafi minnzt hans með óskoraðri
virðingu og þökk, og er bók
Magnúsar Sveinssonar
reyndar þar einn ljósasti vottur-
inn. Hún angar öll af slikum
tilfinningum til þessarar merku
menntastofnunar.
Næst ber að nefna nemenda-
talið, sem eðlilega tekur veru-
legt rúm i þessari bók. Eðli sinu
samkvæmt er þar mest megnis
um þurra upptalningu manna-
nafna og ártala að ræða, þótt
æviatriða nemenda sé að
nokkru getið. Mun mörgum
þykja ekki ófróðlegt að sjá,
hverjir af þjóðkunnum Is-
lendingum hafa stundað nám að
Hvitárbakka. Hér að framan
var minnzt á Helga Hjörvar,
Jón Ivarsson og Skúla Þor-
steinsson, en þegar lengur er
lesið, bætast i hópinn nöfn eins
og Stefán Jónsson, fyrrum
námsstjóri, Hallgrimur Jónas-
son, kennari og rithöfundur. og
Asgeir Asgeirsson, skrifstofu-
stjóri Vegamálaskrifstofunnar.
— Mér þykir liklegt, aö margir
sem gaman hafa af þvi að
grúska i æviatriðum samferða-
manna sinna, eigi oft eftir að
fletta upp i þessum kafla
bókarinnar um Hvitárbakka-
skólann.
Þá er komið að þeim kafla
þessa rits, sem ber nafnið Hvit-
bekkingar á ritvelli. 1 Hvitár-
bakkaskólanum var jafnan
gefið út handskrifað skólablað.
A dögum Sigurðar Þórólfssonar
hét það Loki, siðar var nafninu
breytt, og hét blaðið þá Mimir,
en haustið 1929 kom til sögunnar
blað, sem hét „Bláu augun”, og
skyldi eingöngu helgað skrýtl-
um og grinkyæöum.
Það, sem Magnús Sveinsson
tinir saman úr þessum gömlu
skólablöðum, er að sjálfsögðu
ærið misjafnt að gæðum frá
sjónarmiði listarinnar, en
óneitanlega er harla gaman að
lesa það sem þetta unga fólk
(sem nú er flest orðið gamalt)
hefur að segja, og bera það
siöan saman við andlegar af-
urðir þess fólks, sem nú er að
vaxa úr grasi. En hér skal
enginn mannjöfnuður uppi
hafður, og „I öngva urð farið til
að kasta steinum
Sá er ljóður á ritmennsku
hvitbekkinga, að flestir skrifa
þeir undir dulnefnum. Þó eru
þarna birt tvö kvæði, sem ekki
er svo ástatt um. Þorgeir
Sveinbjarnarson á þar langt
kvæði, kveðið á skemmti-
samkomu á Hvitárbakka vet-
urlnn 1929-’30, og er það ekki
tekið úr blöðum skólans, og
bókin endar á ljóöi eftir
Halldóru B. Björnsson.Nefnist
það Hvitárbakki-Reykholt, og
er ort 20. júni 1930. Námsmey i
Hvitárbakkaskóla, sem kallar
sig Svölu, á þarna tvö kvæði, og
heitir annað þeirra Fyrst er allt
frægast, en hitt I rökkurfaðmi.
Svo vel vill til, að við vitum, aö
Svala er engin önnur en
Halldóra B. Björnsson skáld-
kona, þvi að ljóð hennar Fyrst
er allt frægast birtist siðar i
ljóðum hennar, sem komu út
árið 1949. Það er þar (á bls. 13)
en að visu allnokkuð breytt.
Þannig er bók Magnúsar
Sveinssonar hinn ánægjulegasti
lestur, allt þangað til farið er að
lesa hana i þvi augnamiði, að gá
að prentvillum, en þvi miður
kemur þá annað upp, þvi að
prófarkalesturinn er hvergi
nærri nógu góður. Við tiltölu-
lega fljótlegan yfirlestur fann
ég hvorki meira né minna en
fimmtán villur, og það er
óneitanlega helzt til mikið i bók,
sem aðeins telur ellefu arkir.
Þegar prentvillurnar eru orðnar
miklu fleiri en arkirnar, er
lesandanum talsverð vorkunn,
þótt hann fari að ókyrrast I sæti
sinu.
Það getur varla talizt nein
höfuðsynd, þótt höfuðból sé
kallað höfuðbál, einsoggert er
við efstu greinarskil á bls. 15,
eða þótt stafur troði sér
enda orðs, þannig að „störf”
verður störfg (bls. 22). En þegar
þaðgerist, sem lesa má nálægt
kaflaskiptum á bls. 72, fer
óneitanlega nokkuð að harðan á
dalnum. Þar stendur þetta: ,,í
hópi gamalla nemenda eru
mörg þekkt skáld og rit-
höfundar, má þar nefna
Kristmann Guðmundsson,
Halldóru B. Björnsson, Helga
Hjörvar, Hallgrim Jónasson og
margir fleiri.” (Leturbreyting
min. VS). Og á bls. 36 stendur
eftirfarandi: „Það, sem hér fer
á eftir varðandi Hvitárbakka-
eignina og stofnun hlutafélags,
er að mestu leyti farið eftir
greinargerð Andrésar Eyjólfs-
soriar, fyrrverandi alþingis-
manns i Siðumúla.” Þessi
setning er rangt mynduð, það
hljóta allir að sjá, sem lesa hana
opnum augum.
Þessar tvær siðast töldu villur
stafa auðvitað ekki af þvi að
Magnús Sveinsson kennari geti
ekki skrifaðbetur. Síðurensvo.
Hér er engu öðru um að kenna
en þarflausri óvandvirkni, —
hver eða hverjir sem bera
ábyrgð á henni. — Hér skulu
ekki nefndar fleiri villur, enda
er lesendum i lófa lagið að finna
þær af eigin rammleik, meðal
annars á bls. 38, 71, 74 og 79 —
að ógleymdum sjálfum loka-
orðum höfundar á öftustu les-
málssiðu, þar sem orðið
„dánarár” er haft i eintölu i
staðinn fyrir fleirtölu, sem hefði
verið hið rétta.
En þótt þannig megi sitthvað
finna að ytra frágangi þessarar
bókar Magnúsar Sveinssonar,
þá stendur hitt eftir, að hún hef-
ur marga hluti til sins ágætis.
Hún er stórmerk heimild um
skóla, sem hófst á legg við
erfiöar aðstæður, en átti eftir að
bera rikulegan ávöxt — i einu
sögurikasta og menningar-
auöugasta héraði þessa lands.
-VS.
Skoda-eigendur
AUSTURLANDI
Þar sem Varahlutaverzlun Gunnars Gunnarssonar,
Egilsstöðum hefur tekið að sér söluumboð og vara-
hlutaþjónustu fyrir Skoda og Tatra bifreiðir fyrir
Norður- og Suður-Múlasýslu, er viðskiptavinum vor-
um, svo og væntanlegum bifreiðakaupendum bent á
að snúa sér til Varahlutaverzlunar Gunnars Gunnars-
sonar, Egilsstöðum, með alla fyrirgreiðslu, vara-
hlutaþjónustu, svo og aðra þjónustu.
Væntum við þess, að viðskiptavinir vorir á Austur-
landi muni framvegis njóta bættrar þjónustu með
staðsetningu varahlutabirgða fyrir Skoda bifreiðir á
Egilsstöðum.
TEKKNESKA BIFREIÐAUMBOÐIÐ
Á ÍSLANDI H.F.
AUÐBREKKU 44-6 SlMI 42600 KÚPAV0GI
VARAHLUTAVERZLUN
GUNNARS GUNNARSSONAR
Egilsstöðum — Sími 1158
Bifreiðaeigendur
AUSTURLANDI
Varahlutaverzlun Gunnars Gunnarssonar,
Egilsstöðum, hefur tekið að sér
söluumboð fyrir
miim
hjólbarða
ó Austurlandi og mun framvegis hafa
fyrirliggjandi hjólbarða fyrir fólks-,
jeppa- og vörubifreiðir
TEKKNESKA BIFREIÐAUMBOÐID
Á ÍSLANDI H.F.
AUÐBREKKU 44-6 SlMI 42600 KÚPAV0GI
VARAHLUTAVERZLUN
GUNNARS GUNNARSSONAR
Egilsstöðum — Sími 1158