Tíminn - 20.04.1975, Qupperneq 27
Sunnudagur 20. april 1075
TÍMINN
27
SAGÐI
GÆTI
UNNIÐ
VERÐ-
„DOOG” ... krúnurakaöur.
Aðeins 17 ára gamall (1957)
flutti Dougan til Englands, og hóf
hann þá aö leika meö Portsmouth
og vakti þar strax geysilega at-
hygli — hann lét þá vaxa á sig
gifurlegt yfirvararskegg og þar
með varð hann fyrsti leikmaöur-
inn i ensku knattspyrnunni, sem
gat státaö af yfirvararskeggi.
Aftur vakti þessi litriki knatt-
spyrnumaöur mikia athygli 1959,
þegar hann byrjaði að leika meö
Biackpool — þá lét hann krúnu-
raka sig. Allt ætlaði um koll að
keyra af fögnuöi, þegar hann
hljóp inn á leikvöllinn meö Yul
Brynner skaliann og ekki minnk-
aði fögnuöurinn hjá áhorfendum,
þegar hann stökk upp og skallaði
knöttinn i net andstæðinganna.
En Derek Dougan virtist ekki
geta fest rætur hjá neinu félagi —
áriö 1961 var hann byrjaöur að
leika meö Aston Villa og aðeins
tveimur árum seinna — 1963 —
klæddist hann búningi Peter-
borough. Þegar ,,Doog” var 25
ára gamatl (1965) var hann
keyptur til Leicester á 21 þús.
pund og 1967 kom hann tii
Molenux — Úlfarnir keyptu hann
þá á 45 þús. pund. Þar festi hann
rætur og var vinsælasti knatt-
spyrnumaður Úlfanna allt fram á
siðasta dag.
Dougan hefur haft mikil áhrif á
knattspyrnuna I Englandi — hann
hefur mótaö hana með getu sinni
og hæfileikum. Hann hefur gert
knattspyrnuna skemmtilega meö
leik slnum, þar sem hann hefur
alltaf leikið fyrir áhorfendur
siðan hann var 17 ára gamall.
Hann »var ávallt vanur að taka
þátt i spennunni, vonbrigðunum
og ánægjunni með þeim —
Dougan heldur þvi fram, að það
sé rétt að sýna áhorfendum til-
finningar sinar á leikvelli og gefa
þeim ettthvað, sem þeir geta
tekið þátt i. Þegar Dougan var og
hét, var hann vanur að valhoppa
um völlinn og senda áhorfendum
fingurkoss, öskra til þeirra og
láta öllum illum látum — og
jafnvel hefur hann gert grln að
mótherjum sinum og furðuleg-
ustu hlutir hafa komið fyrir hann
á leikvelli. Hann ienti eitt sinn I
geysilegum slagsmálum við
Bobby Mooreji annað sinn svekkti
h'' <i leikmann hjá Tottenham
svo mikið á leikvelli, að meðspil-
urum hans ofbauð og þeir settu
hann I keppnisbanna.
Það hefur margt komið fyrir
þennan litrika knattspyrnumann
á hinum litrlka sex-félaga-knatt-
spyrnuferli hans. Hann er t.d.
fyrsti og eini trinn, sem skorað
hefur yfir 200 mörk I ensku deild-
arkeppninni. Það er mikill
sjónarsviftir, að sjá á eftir þess-
um snjalla knattspyrnumanni,
sem kunni svo sannarlega að
skemmta áhorfendum. Hátindur
knattspyrnuferils hans var sl.
keppnistimabil, þegar Úlfarnir
tryggðu sér deildarbikarinn á
Wembley.
Knattspyrnukappanum
DEREK DOUGAN er bezt lýst,
með þvi að gefa nokkrum kunn-
um knattspyrnumönnum orðið og
láta þá segja sitt álit á „Doog”:
BOBBY CHARLTON: — Það er
nú meira undrahjólið þessi Doug-
an. Hann virðist ætla að halda
áfram að skora mörk um alla
framtið.
TOMMY TAYLOR (West
Ham): — Ég hlakkaði alltaf til,
þegar ég átti að leika gegn Doug-
an. Þegar ég heyrði fyrst talað
um hann, var mér sagt, að hann
væri bezti skallamaður i ensku
knattspyrnunni og einnig beztur i
munninum.
DAVID WAGSTAFFE (Hull —
áður Wolves): — Dougan var
stórkostlegur knattspyrnumaður
— hann virtist eiga mörkin á
kippum. Bara nærvera hans i
leikjum var gulls tgildi.
BILL SANKLY (Fyrrum fram-
kvæmdastjóri Liverpool): —
Hann var hættulegur, alveg
þangað til að leiknum var lokið.
MARTIN CHIVERS (Totten-
ham): — Dougan er einn hættu-
legasti knattspyrnumaður, sem
ég hef kynnzt. Hann hafði ein-
staka hæfileika til að finna veik-
leika mótherjanna strax i byrjun
og hann fór þegar að hrella
miðverði — og notfæra sér veik-
leika þeirra. Ég hrósa happi,
fyrir að hafa ekki leikið miðvörð
gegn „Doog”.
Þessi mynd var tekin á Wembley á siðasta keppnistimabili, eftir að
Úlfarnir höfðu sigrað Manchester City I úrslitaleik deildarbikarkeppn-
innar. Dougan vann þar til sinna fyrstu verðlauna I ensku knattspyrn-
unni og á myndinni krýpur hann I þökk og bæn. Eftir þennan leik sagði
hann: — Ég ætla að leika knattspyrnu eitt keppnistlmabil I viðbót,* og
siðan bætti hann við: — Hverjir segja, aö ég geti ekki unniö til verð-
launa?