Fréttablaðið - 28.04.2005, Page 6

Fréttablaðið - 28.04.2005, Page 6
6 28. apríl 2005 FIMMTUDAGUR Landspítali-háskólasjúkrahús: Minni samdráttur í sumar HEILBRIGÐISMÁL Áætlað er að sam- dráttur í starfsemi Landspítala- háskólasjúkrahúss í sumar verði heldur minni en undanfarin sum- ur eða 13 prósent af mögulegum legudögum. Á síðasta ári var hann 15 prósent og 16 prósent árið 2003, að því er fram kemur í upp- lýsingum frá spítalanum. Minni samdráttur verður á öldrunarsviði nú heldur en undan- gengin ár. Hann var 26 prósent sumarið 2004 en er nú áætlaður 15 prósent. Einnig verður minni samdráttur á skurðlækningasviði. Hann var 28 prósent á síðasta ári en er áætlaður 21 prósent í sumar. Á lyflækningasviði I er áætlaður meiri samdráttur í ár en undan- farin sumur eða 14 prósent nú en var 5 prósent sumarið 2004. Ákveðið hefur verið að fjölga dag- deildarrýmum á lyflækningasviði I til að mæta, að hluta, meiri sam- drætti í starfseminni í sumar. „Það er skortur á hjúkrunar- fræðingum og samdrátturinn er einkum tilkominn af því að við höfum ekki mann í manns stað,“ sagði Eydís Sveinbjarnardóttir, starfandi hjúkrunarforstjóri á LSH. Hún sagði að skýringin á miklum samdrætti í starfsemi lyf- læknissviðs I væri sú að þar yrðu viðgerðir á húsnæðinu í sumar. -jss Stuðningsyfirlýsingar embættismanna: Borgarkerfið notað til stuðnings Ingibjörgu STJÓRNMÁL „Afskipti æðstu emb- ættismanna af innanflokksátök- um í ákveðnum stjórnmálaflokki með svona áberandi hætti hafa ekki tíðkast til þessa,“ segir Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti Sjálfstæðismanna í borgarstjórn, vegna stuðningsyfirlýsingar þriggja af æðstu embættismönn- um borgarinnar, sviðsstjóranna Láru Björnsdóttur og Gerðar G. Óskarsdóttur auk Hildar Jóns- dóttur jafnréttisráðgjafa, við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur í formannskjöri Samfylkingar. „Þarna er litla ljóta klíkan í ráðhúsinu, eins og Helgi Hjörvar kallaði hana, að nota sína aðstöðu til stuðnings fyrrverandi borgar- stjóra, segir Vilhjálmur. Hann segir að þó fólki megi taka af- stöðu verði æðstu embættismenn að muna að þeir vinni fyrir alla borgarfulltrúa og borgarbúa og verði að kappkosta að njóta trausts þeirra allra. Hann segist þess fullviss að ef Sjálfstæðis- maður í sömu stöðu beitti sér með svipuðum hætti yrði hann kallað- ur á teppið og dregið úr áhrifum hans eins og kostur er. „Enginn embættismaður þorir að tjá sig nema vera í náðinni hjá ráðhús- stjórninni.“ - bþg Áfengisneysla ógnar heilsu landans Lýðheilsustofnun varar við auknu aðgengi almennings að áfengi þrátt fyrir að nýleg könnun sýni að Íslendingar drekki mun minna af áfengi en aðrar þjóðir Evrópu. Neysla ungs fólks er þó að aukast. LÝÐHEILSUMÁL „Það sem er mesta áhyggjuefnið eru þær hugmyndir sem uppi eru um að auka aðgengi að áfengum drykkjum,“ segir Rafn M. Jónsson, verkefnisstjóri áfeng- is og vímuvarna hjá Lýðheilsustöð. Niðurstöður könnunar um áfengis- neyslu Íslendinga sem kynntar voru í gær benda meðal annars til að ungt fólki drekki oftar en áður og meira magn í hvert sinn. Sams konar könnun var gerð fyrir fjórum árum og þrátt fyrir að um frumniðurstöður sé að ræða telja forsvarsmenn Lýð- heilsustöðvar ljóst að vaxandi áfengisneysla ógni lýðheilsu Ís- lendinga. Fram kemur að þó að fjöldi þeirra sem neyta áfengis standi nokkuð í stað á þessu tíma- bili hefur magnið aukist og sér- staklega á það við um unga karl- menn. Drekka þeir að meðaltali tæpa tvo lítra af bjór meðan kon- urnar láta 1.3 lítra duga í hvert sinn. Bæði kyn hafa þó aukið neysluna síðan 2001. Hlutfall sterkra drykkja í neyslumynstrinu heldur áfram að minnka og fleiri drekka léttvín eða bjór í staðinn. Þó ber að taka fram að í þeim niðurstöðum sem birtar voru eru ekki tölur yfir drykkju heimabruggs né heldur drykkju svokallaðra blandaðra drykkja en slíkir drykkir eru afar vinsælir meðal ungs fólks. Ýmsir aðilar á borð við Sam- tök verslunarinnar og Samtök ferðaþjónustunnar hafa barist fyrir auðveldara aðgengi og lækkun gjalda á áfengi hér á landi og segist Rafn hafa af því vissar áhyggjur. „Þrátt fyrir að hugmyndin sé ekki að vera með neina forræðishyggju þá hefur það ítrekað sýnt sig að auðveld- ara aðgengi að áfengi, til að mynda í matvöruverslunum, eyk- ur neyslu þegar í stað og það þrátt fyrir að eftirlit hafi verið aukið til muna á sama tíma. Við óttumst að hið sama verði hér uppi á teningnum en aukinni drykkju fylgir svo margt annað óæskilegt eins og heilsukvillar, ölvunarakstur og þar fram eftir götunum.“ albert@frettabladid.is Bætur vegna vinnuslyss: Fékk rúma milljón DÓMSMÁL Grandi var í gær dæmdur til að greiða 33 ára manni rúma milljón ásamt vöxtum auk 250 þús- und króna í málskostnað. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur en málið höfðaði mað- urinn á hendur Granda og Sjóva-Al- mennum tryggingum. Maðurinn krafðist tæplega 62 milljóna í bætur fyrir vinnuslys sem hann varð fyrir við störf í einum togara Granda í apríl árið 2002. Á manninn hrapaði tómt fiskikar þar sem hann var að störfum í lest skips- ins. Varanleg örorka mannsins af slysinu er talin 50 prósent og hann framvegis ófær til starfa á sjó. - óká Eiga allir þingmenn að upp- lýsa um eigna- og hagsmuna- tengsl sín? SPURNING DAGSINS Í DAG: Á að afnema fyrningu kynferð- isbrota gegn börnum? Niðurstöður gærdagsins á visir.is 14% 86% Nei Já Farðu inn á fréttahluta visir.is og segðu þína skoðun KJÖRKASSINN flugfelag.is | 570 3075 Suðvesturströnd Grænlands, Eystribyggð, er heillandi heimur fyrir þá sem vilja njóta stórkost- legrar náttúrufegurðar á sólríkum sumardögum. Þarna eru góðar laxveiðiár og kjörlendi til gönguferða. Leitið nánari upplýsinga um það sem er í boði á Suður-Grænlandi, ferðamöguleika, skipulagðar ferðir, gistingu og aðra ferðaþjónustu á www.flugfelag.is Suður Grænland Narsarsuaq við Eiríksfjörð í beinu flugi tvisvar í viku í sumar (17. júní til 2. sept.), á þriðjudögum og föstudögum. Sumartilboð á netinu: Frá aðeins 13.500 kr.* flugfarið á manninn aðra leiðina þegar bókað er á netinu – takmarkaður sætafjöldi Þessi auglýsing er styrkt af SAMIK - samstarfi Íslands og Grænlands um ferðamál. *Innifalið: Flugfar og flugvallarskattar. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S FL U 2 82 05 04 /2 00 5 - paradís útivistarmannsins VILHJÁLMUR Þ. VILHJÁLMSSON „Mikil reiði og óánægja ríkir hjá fjölmörg- um starfsmönnum borgarinnar vegna rugl- ingslegra stjórnsýslubreytinga. Embættis- menn þora ekki að tjá sig nema nema í leyni við borgarfulltrúa þar sem óttast þeir um stöðu sína.“ MEIRI DRYKKJA Í HVERT SINN Karlmenn drekka að meðaltali 52 sinnum á ári en konur bragða áfengi 40 sinnum að meðaltali á sama tímabili. NEYSLA SÍÐUSTU ÁRA Línuritið sýnir þróun drykkju síðustu árin en neysla bjórs og léttvína hefur aukist til muna á kostnað sterkra drykkja. LANDSPÍTALINN Minni samdráttur verður á starfsemi spítal- ans í sumar heldur en undangengin ár.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.