Fréttablaðið - 28.04.2005, Síða 8

Fréttablaðið - 28.04.2005, Síða 8
28. apríl 2005 FIMMTUDAGUR Ofbeldi í íslensku samfélagi: Akureyringum ofboðið OFBELDI Ungt fólk á Akureyri hef- ur boðað til þögullar mótmæla- stöðu gegn ofbeldi á Ráðhústorgi klukkan 17 á morgun. Kornið sem fyllti mælinn hjá ungum Akureyr- ingum var að 17 ára piltur í bæn- um var fyrir hálfum mánuði skot- inn 11 skotum með loftskamm- byssu vegna fíkniefnaskuldar. Birting, hópur ungs fólks á Ak- ureyri sem vill stuðla að betra samfélagi og betri ímynd ungs fólks, stendur að mótmælunum og segir Valdís Anna Jónsdóttir að Akureyringar verði að spyrna strax gegn auknu ofbeldi. „Við viljum senda skýr skilaboð til stjórnvalda og almennings og vekja landsmenn til umhugsunar um hve stórt vandamálið er. Sak- laust fólk hefur ítrekað orðið fyr- ir barðinu á ofbeldismönnum sem virðast geta vaðið uppi í samfé- laginu án þess að gripið sé til nokkurra aðgerða. Þetta viljum við stöðva,“ segir Valdís. Birting hvetur almenning á Ak- ureyri til að fjölmenna á Ráðhús- torg á morgun, taka þátt í mót- mælastöðunni og hlýða á tónlistar- manninn KK leika nokkur lög. - kk Tillögur stjórnvalda um aðlögun innflytjenda. Setja innflytjendaráð á fót INNFLYTJENDUR Innflytjendaráð verður sett á fót verði nýjar tillög- ur nefndar um aðlögun innflytj- enda að íslensku samfélagi að veruleika. Árni Magnússon fé- lagsmálaráðherra lagði fram ítar- lega skýrslu nefndarinnar á ríkis- stjórnarfundi á þriðjudag. Nefnd- in leggur til að innflytjendaráðið hafi aðsetur í félagsmálaráðu- neytinu og hafi það hlutverk að móta tillögur um stefnu stjórn- valda í málefnum innflytjenda og hafa umsjón með framkvæmd hennar. Meginniðurstaða nefndarinn- ar er að brýnt sé að móta heild- stæða stefnu í málefnum inn- flytjenda. Lagt er til að ráðuneyti menntamála, félagsmála, dóms- mála, heilbrigðis- og tryggingar- mála og Samband íslenskra sveit- arfélaga tilnefni fulltrúa í inn- flytjendaráðið. Í lokaorðum skýrslunnar segir að þótt útlendingar komi til þess að vinna þurfi að sinna aðlögun. Gæta þurfi þess að misrétti skap- ist ekki milli fólks eftir því hvað- an það komi eða eftir útliti og trú- arbrögðum. Loks segir, að festist misrétti í sessi ýti það undir að- skilnað og einangrun og þar með fordóma. Því sé gagnkvæm aðlög- un lausnarorðið. - jh Samherji í fisk- eldi í Færeyjum Hundruð þúsunda laxaseiða og 35 þúsund lúðuseiði flutt frá Íslandi til Færeyja. Eldistíminn er styttri í Færeyjum en á Íslandi og í Færeyjum er hagkvæmt að kaupa eða leigja eldisstöðvar sem farið hafa í þrot. ÚTRÁS Á undanförnum dögum hefur hátt í hálf milljón laxaseiða verið flutt frá Íslandi til Færeyja þar sem ætlunin er að rækta þau í slátur- stærð í eldisstöð sem félag í eigu Samherja hefur tekið á leigu af Færeyjarbanka. Í fyrradag fóru 35 þúsund lúðuseiði utan þar sem þau verða alin í sömu fiskeldisstöð. Jón Kjartan Jónsson, framkvæmda- stjóri fiskeldis Samherja, segir þetta lið í útrás Samherja auk þess sem minni kostnaður er við eldið í Færeyjum en á Íslandi. Norskur brunnbátur, Kristine, er notaður við seiðaflutningana og alls voru flutt með honum 450 þús- und laxaseiði, í þremur ferðum, en seiðin komu frá Íslandslaxi og voru 70 til 90 grömm að þyngd. Jón Kjartan segir að það taki 15 til 20 mánuði að ala þau í sláturstærð í Færeyjum en um tvö ár á Íslandi. „Sjávarhiti er hærri við Færeyjar og því er eldistíminn styttri sem gerir eldið hagkvæmara. Seiðin voru flutt í ferskvatni og sett í ferskvatn í Færeyjum þar sem þau verða næstu 50 dagana en fara þá í sjókvíar. Flutningurinn gekk mjög vel; engin afföll urðu á leiðinni og erfiðasti hjallinn að baki,“ segir Jón Kjartan. Fyrirtækið sem stendur að eld- inu í Færeyjum heitir North Salmon og er í eigu Samherja og Framherja en Samherji á tæplega þriðjung í Framherja á móti fær- eyskum aðilum. North Salmon leig- ir fiskeldisstöð af Færeyjarbanka en bankinn eignaðist stöðina eftir að Vestlax lenti í rekstrarerfiðleik- um. „Með því sparast miklir fjár- munir sem ella hefðu farið í kostn- aðarsamar fjárfestingar,“ segir Jón Kjartan en hann vill ekki gefa upp hversu miklir fjármunir sparast. Norski brunnbáturinn lagði af stað til Færeyja á þriðjudag með 35 þúsund lúðuseiði sem framleidd voru hjá Fiskeldi Eyjafjarðar á Hjalteyri en alin í eldisstöð félags- ins í Þorláksshöfn. Hvert lúðuseiði er 300 til 500 grömm að þyngd og er ekki áformað að flytja fleiri lúðu- seiði að sinni til Færeyja. kk@frettabladid.is INNFLYTJENDUR Heilstæð stefna verður mótuð. LÚÐUELDI Starfsmenn Fiskeldis Eyja- fjarðar í Þorlákshöfn vigta eldislúðu. VALDÍS ANNA JÓNSDÓTTIR „Mótmælunum er ekki bara beint gegn of- beldi í fjölskyldubænum Akureyri heldur á landinu í heild,“ segir Valdís.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.