Fréttablaðið - 28.04.2005, Qupperneq 10
JACKSON MÆTIR
Poppgoðið Michael Jackson mætir í dóm-
hús Santa Barbara-sýslu í Santa Maria í
Kaliforníu í gær, í fylgd bróður síns Jackie
og föðurins Joe Jackson. Réttarhaldið hef-
ur nú staðið í tvo mánuði.
10 28. apríl 2005 FIMMTUDAGUR
Tregða bankafyrirtækja að afhenda skattayfirvöldum upplýsingar:
Angi af miklu stærra máli
EFNAHAGSMÁL „Menn verða að
spyrja sig hvers konar fjár-
málaumhverfi á að ríkja hér í
næstu framtíð,“ segir Guðjón Rún-
arsson, framkvæmdastjóri Sam-
taka banka og verðbréfafyrir-
tækja, vegna gagnrýni Indriða H.
Þorlákssonar, ríkisskattstjóra, á
tregðu bankastofnanna við að veita
skattayfirvöldum upplýsingar um
viðskiptavini sína.
Guðjón bendir á að eigi bankar
að opna allar bækur fyrir skatta-
yfirvöldum eins og Indriði gerir
kröfu um sé borin von að hér dafni
alþjóðlegt fjármálaumhverfi eins
og vonir margra standa til. „Þessi
ósk Indriða er angi af miklu
stærra máli. Ef við viljum vera
samkeppnishæfir við lönd í kring-
um okkur á borð við Lúxemborg og
Sviss þá verður að vera hér lág-
marks bankaleynd. Skattstjóri get-
ur óskað upplýsinga um einstaka
viðskiptamenn sem grunur leikur
á að telji ekki rétt fram en að slíkt
gangi yfir allan almenning er of
langt gengið.“
Í leiðara Tíundar, fréttablaðs
Ríkisskattstjóra, segir Indriði
bankaleynd ekki vera málefnaleg
rök fyrir því að meina skattayfir-
völdum aðgang að hlutabréfaupp-
lýsingum almennings og að tregða
bankastofnanna við að verða við
þeim óskum gagnist þeim einum
sem vilja hafa rangt við.
Ríkisskattstjóri svaraði ekki
skilaboðum blaðamanns. -aöe
Skattayfirvöld í Norður-Noregi:
Íslendinga leitað
vegna gjaldþrots
NOREGUR Norsk skattayfirvöld í
Narvik í Norður-Noregi leita ís-
lenskra eigenda tveggja fyrir-
tækja, sem lýst hafa verið gjald-
þrota. Leikur grunur á að eig-
endurnir hafi forðað sér úr landi
til Íslands.
Fyrirtækin sem um ræðir
heita Balis og GLM og voru
staðsett í Narvík og Ballangen
sem er skammt sunnan Narvík-
ur. Sömu eigendur voru að fyrir-
tækjunum en á pappírunum var
Balis í eigu GLM.
Ætlunin var að fyrirtækin
framleiddu nýja gerð fiskikerja
úr plastefni en ekki tókst að
framleiða svo mikið sem eitt
fiskikar áður en skattayfirvöld
fóru fram á fyrirtækin yrðu tek-
in til gjaldþrotameðferðar. Þau
segja ýmislegt vafasamt í
rekstri fyrirtækjanna og aukin-
heldur leikur grunur á undan-
skotum á virðisaukaskatti.
Skattayfirvöld fóru fram á að
Balis-fyrirtækið yrði tekið til
gjaldþrotaskipta í nóvember í
fyrra en dótturfyrirtækið GLM,
var lýst gjaldþrota fyrir
skemmstu.
Heildarupphæð gjaldþrots
fyrirtækjanna liggur ekki fyrir
þar sem allar kröfur í þrotabúin
eru ekki komnar fram.
-ssal
Nýr kafli í flugsögunni
skrifaður í frönsku skýin
Nýr kafli í sögu farþegaflugsins hófst í gær þegar Airbus A380 flaug sitt fyrsta flug. 555 farþegar
rúmast hæglega í þessari risaþotu en ekki er víst hvort smíðin muni nokkurn tímann svara kostnaði.
BLAGNAC, AP Stærsta farþegaþota
sem smíðuð hefur verið, Airbus
A380, flaug jómfrúarflug sitt í
gær. Kostnaður við þróun og smíði
vélarinnar er ríflega 800 milljarð-
ar króna og er óvíst hvort fram-
leiðslan muni nokkurn tímann
borga sig.
Yfir 30.000 manns fylgdust
með Airbus A380 risaþotunni
hefja sig til flugs í fyrsta sinn frá
Blagnac-flugvelli í útjaðri Toulou-
se í Frakklandi og gleði fólksins
þegar vélin lenti heilu og höldnu
fjórum tímum síðar var óblandin.
Engir farþegar voru þó um borð
að þessu sinni heldur einbeitti
áhöfnin sér að því að kanna flug-
hæfni þotunnar til hlítar. Til von-
ar og vara voru allir með fallhlíf-
ar á bakinu. Þúsundum mæli-
tækja hafði verið komið fyrir í
vélinni en auk þess var farangurs-
rýmið fullt þannig að aðstæður
væru allar sem raunverulegastar.
Airbus A380 er sannkölluð risa-
þota. Hún er 73 metrar á lengd og
vegur fullhlaðin 560 tonn. Staðalút-
gáfa hennar rúmar 555 farþega en
hægt er að breyta farþegarýminu
þannig að allt að 840 komist þar
fyrir.
Forsvarsmenn Airbus-fyrir-
tækisins voru hinir ánægðustu
svo og ráðamenn í löndunum sem
aðild eiga að verkefninu. „Þetta
eru frábærar fréttir fyrir Evrópu-
samvinnu á sviði iðnaðar,“ sagði
Jacques Chirac Frakklandsfor-
seti, eflaust góðum fréttum feg-
inn mitt í kosningabaráttunni um
stjórnarskrársáttmála Evrópu-
sambandsins.
Flugið markar endalok ellefu
ára þróunarstarfs sem hefur kost-
að ríflega 800 milljarða króna. Ná-
lega þriðjungur þess er greiddur
af skattfé þjóðanna sem að verk-
efninu standa. 154 pantanir hafa
þegar borist en talsvert fleiri þarf
til að verkefnið standi undir kostn-
aði. Enda þótt A380 sé mun hag-
kvæmari í rekstri en júmbóþotan
Boeing 747 þá benda sérfræðingar
á að tími slíkra risaþotna sé senni-
lega liðinn.
Framtíðarmöguleikarnir liggi í
smærri en langdrægari þotum á
borð við Boeing 787 Dreamliner.
Yfir 287 slíkar vélar hafa verið
pantaðar af fjölda flugfélaga og er
Icelandair þar á meðal.
Vinsældirnar ættu að vera
Boeing-fyrirtækinu kærkomnar
því í gær tilkynnti bandaríski flug-
vélarisinn að hagnaður fyrirtækis-
ins hefði dregist saman um 14 pró-
sent á fyrsta ársfjórðingi 2005. ■
Kosningafundur:
Ráðist á
ráðherrann
BRETLAND Ruth Kelly, menntamála-
ráðherra Bretlands, fékk ekki góðar
móttökur þegar hún mætti til kosn-
ingafundar í kjördæmi sínu í Bolton
á Englandi í fyrrakvöld. Þegar hún
var í þann mund að ganga upp á
sviðið viku tveir menn sér að henni,
hrifsuðu í handlegg hennar og
reyndu að setja í járn.
Pólitískir andstæðingar Kelly
komu henni til hjálpar en þá hentu
fautarnir í hana eggjum og hlupu
svo á brott. Enginn hefur verið
handtekinn vegna málsins en að
sögn dagblaðsins The Independent
er talið að mennirnir séu félagar í
samtökunum Fathers4Justice. ■
Mogens Glistrup:
Afplánar
dóm fyrir
fordóma
DÓMSMÁL Mogens Glistrup, stofn-
andi danska Framfaraflokksins,
þarf á næstunni að afplána tutt-
ugu daga fangelsisdóm fyrir
brot á lögum um kynþáttafor-
dóma.
Glistup, sem orðinn er 79 ára
gamall, hefur alla tíð verið ákaf-
ur andstæðingur þeirrar stefnu
sem dönsk stjórnvöld hafa
lengstum haft í innflytjendamál-
um. Hann hefur nokkrum sinn-
um fengið dóma vegna ummæla
sinna í garð innflytjenda og er
þessi síðasti dómur frá 2003.
Þrátt fyrir að vera hjartasjúk-
lingur segist Glistrup ekki ætla
að auðmýkja sig með því að óska
eftir náðun. Hann segist auk
þess standa við öll þau ummæli
sem hann er dæmdur fyrir. ■
Danskur her í Írak:
Verður átta
mánuði enn
DANMÖRK Danska ríkisstjórnin
hefur ákveðið að lengja dvöl
danskra hersveita í Írak um átta
mánuði. Per Stig Møller utanrík-
isráðherra skýrði frá þessu í vik-
unni í danska þinginu. Hann
hafnaði þar með um leið kröfu
stjórnarandstöðunnar um að
binda enda á dvöl danskra her-
sveita í Írak.
Núverandi samningur Dana
um veru hersveita í Írak rennur
út í byrjun júní en vegna þing-
kosninga í Írak í desember telja
dönsk stjórnvöld eðlilegt að
framlengja dvöl hermannanna
um átta mánuði til að byrja með.
Fyrstu dönsku hermennirnir
voru sendir til Írak um mitt ár
2003. ■
FRÁ LÚXEMBORG
Afar ströng lög um bankaleynd gilda
þar og engar upplýsingar eru veittar
um viðskiptamenn.
■ HÆSTIRÉTTUR
STAÐFESTI GÆSLUVARÐHALD
Hæstiréttur staðfesti í gær dóm
Héraðsdóms Reykjavíkur um
gæsluvarðahald yfir manni og
geðrannsókn vegna árásar á
lækni sem borið hafði vitni í
barnsfaðernismáli hans. Mannin-
um var gert að sæta gæsluvarð-
haldi til föstudagsins 20. maí.
Verjandi mannsins vildi fá úr-
skurðinum breytt í þá veru að
manninum yrði gert að sæta
nálgunarbanni í stað gæsluvarð-
haldsins.
■ JAPAN
95 LÍK HAFA FUNDIST Nú er talið
útilokað að fleiri finnist á lífi í
flaki lestarinnar sem fór út af
sporinu í Amagasaki í Japan.
Tólf lík fundust í brakinu í gær
og því er fjöldi látinna kominn
upp í 95. Enn á eftir að ná
nokkrum líkum út, þar á meðal
líki lestarstjórans sem hefur
verið kennt um slysið.
Í LÁGFLUGI YFIR BLAGNAC-FLUGVELLI
Yfir 30.000 manns fylgdust með jómfrúarflugi Airbus A380. Búist er við að vélin verði tek-
in í notkun árið 2006 og mun Singapore Airlines ríða á vaðið.
M
YN
D
/AP