Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.04.2005, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 28.04.2005, Qupperneq 22
Hafnarfirði Fjarðargata 17 Sími 520 2600 Fax 520 2601 Netfang as@as.is Heimasíða www.as.is Flott 103 fm íbúð á fyrstu hæð í litlu fjölbýli. Sér inngangur, falleg gólfefni og innréttingar. Sturta og baðkar á baðherbergi. Rúmgóð tvö herbergi. Fallegt útsýni, rólegt hverfi en stutt í alla þjónustu. Verð 22.9 millj. Vinsæl staðsetning. OPIÐ HÚS Í DAG Á MILLI 17.00 - 19.00 GALTALIND 20 SÖLUMAÐUR Á STAÐNUM • SÍMI 862-3377 Í fyrri viku velti ég fyrir mér áhrifum einstaklinga á fram- vindu sögunnar og tók dæmi af Indlandi og Pakistan, sem voru eitt land undir stjórn Breta og skiptust árið 1947 í tvö lönd (þrjú með Bangladess 1971). Löndin tvö stefndu eftir það í ólíkar áttir, sem virtust í hvoru landi fyrir sig ríma vel við upplag landsfeðr- anna. Indverjar tóku upp full- trúalýðræði, enda hefði Mahatma Gandí aldrei tekið annað í mál, ekki frekar en t.a.m. Nelson Mandela. Pakistan er á hinn bóg- inn harðsvírað einræðisríki. Lönd eru eins og annað fólk: lengi býr að fyrstu gerð. Hugsum þessa hugsun aðeins lengra. Jesús Kristur og Mú- hameð voru býsna ólíkir menn. Kristur var friðflytjandi, Mú- hameð var stríðsherra. Er það þá nokkur furða, að flest lönd krist- inna manna á okkar dögum eru friðsæl lýðræðisríki? – og öfga- menn í ríkjum múslíma heita ófriði í guðs nafni og nærast á heift. Vandinn í ríkjum múslíma er þó ekki bundinn við öfgamenn þar, öðru nær. Lýðræði er sjald- gæft meðal múslíma, einræði er reglan. Lönd Araba hafa mörg hver orðið viðskila við nútímann; æðsti draumur ofsatrúarmanna þar er að hverfa aftur til miðalda eins og þeim tókst í Afganistan í stjórnartíð talíbana. Hvers vegna er lýðræði reglan meðal kristinna manna og ein- ræði meðal múslíma? Svarið virð- ist ekki vera að finna í inntaki trúarbragðanna, enda eru þau upp runnin á sömu slóðum í Aust- urlöndum nær með nokkurra alda millibili og eiga þar að auki margt annað sameiginlegt. Friðarboð- skapur og fyrirgefning í anda Krists eru að vísu ekki rúmfrek í Kóraninum, en það skiptir þó varla sköpum í nútímanum, enda gegnir umburðarlyndi lykilhlut- verki í íslam líkt og í okkar trú. Er svarið þá heldur að finna í for- dæmi spámannanna? Kannski. Fjölmennasta ríki múslíma nú er Indónesía, og þar situr nú lýð- ræðislega kjörin stjórn. Tyrkland er einnig lýðræðisríki og stefnir á inngöngu í Evrópusambandið inn- an tíðar. Hvorugt landið fær þó hæstu einkunn í lýðræðismæling- um stjórnmálafræðinga, þar vantar enn talsvert á. Arabalönd- in eru annar handleggur. Í þeim hópi er ekkert lýðræðisríki. Arabalöndin liggja nálægt botni á lýðræðislistum stjórnmálafræð- inganna ásamt þeim fimm komm- únistaríkjum, sem enn eru uppi- standandi. Hvers vegna? Einræði kommúnista liggur í hlutarins eðli: kommúnistar stjórna jafnan með þvílíkum yfirgangi á lands- vísu og svo illa, að ekkert nema einræði og ofbeldi getur haldið þeim við völd. (Á landsvísu, segi ég, því að kommúnistum hefur sums staðar tekizt að afla sér virðingar meðal kjósenda í ein- stökum borgarstjórnum og hér- aðsstjórnum, t.d. á Ítalíu og Ind- landi). En hvernig stendur þá á því, að Arabalönd fylla sama flokk og kommúnistalöndin? Arabalöndin búa sum að miklum olíulindum, sem ráðandi öflum hefur tekizt að sölsa undir sig. Þeim, sem hefur tekizt að leggja undir sig svo mik- inn auð til eigin nota, hugnast yf- irleitt ekki að deila honum með öðrum. Konungsfjölskyldan í Sádi-Arabíu sér því ýmis tor- merki á frjálsum kosningum þar í landi, enda myndi sú góða fjöl- skylda þá missa völdin yfir land- inu í einu vetfangi – og þá um leið umráðin yfir olíulindunum. Ríkis- stjórn Sádi-Arabíu eys fé í ofsa- trúarhópa einmitt til þess að geta skýlt einræðisstjórninni á bak við þörfina á að halda þeim í skefj- um. Svipað á við um Pakistan, enda þótt engri olíu sé þar til að dreifa: þar eru tíu þúsund trúar- skólar, enda þótt aðra skóla skorti allt til alls. Sumir halda, að lýðræði sé lúxusvara og hæfi því ekki fá- tæku fólki. Þessi skoðun orkar tvímælis eins og dæmi Indlands vitnar um, því að þar býr tæpur milljarður manna við lýðræði og þekkir ekki aðra stjórnskipan af eigin raun. Það er að vísu rétt, að fátækt hamlar lýðræði – og ekki bara lýðræði: fátækt er óvinur alls, sem lifir. Hún dregur svo þrótt úr fólki, að það skortir afl til þess að hrinda óvinum lýðræð- isins af höndum sér. Hagvöxtur lyftir lífskjörum almennings með tímanum og eflir fólkið svo til dáða, að það megnar að rísa upp gegn kúgurum sínum og kasta hlekkjunum. Þess vegna hlýtur einræði að víkja og óskorað lýð- ræði að taka við. Aðeins sjö lönd í heiminum búa nú við auðsæld – þ.e. mikla landsframleiðslu á mann – án lýðræðis: sex íslömsk olíulönd (Barein, Brúnei, Katar, Kúveit, Sameinuðu furstadæmin og Sádi-Arabía) auk Singapúr, sem á engar auðlindir aðrar en lifandi fólk. Þjóðarauðinum er misskipt í íslömsku olíulöndun- um sex, því að einræði kallar á ójöfnuð og annað verra, en ekki í Singapúr: þar er ójöfnuðurinn ekki meiri en sums staðar í Evr- ópu. ■ Hvers vegna eru svona margir ungir öryrkjar hér á landisem raun ber vitni? Er það þenslan á vinnumarkaði og íefnahagslífinu sem hefur orðið til þess að fólk sem er eitt- hvað vanmáttugt er hrakið af vinnumarkaði eða er orsakanna að leita annars staðar? Þetta eru spurningar sem vakna í kjölfar út- tektar Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands sem Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, kynnti í fyrradag. Sam- kvæmt henni eru mun fleiri ungir öryrkjar hér á landi en annars staðar á Norðurlöndum, en aftur á móti eru þar hlutfallslega fleiri 50 ára og eldri á örorkubótum en hér. „Það getur verið að eitthvað af fólki sé að þrýstast á milli kerfa hjá okkur þar sem örorkubæturnar eru hærri heldur en atvinnu- leysisbætur,“ sagði Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra um þá miklu aukningu sem orðið hefur á fjölgun öryrkja á allra síðustu árum. Hann sagði að hættan væri sú að þeir sem ættu í tímabundn- um erfiðleikum festust inni á örorkubótunum. Þá væru komnar upp spurningar um endurhæfingu og hvernig atvinnulífið væri í stakk búið til að taka við þessu fólki. Einnig þyrfti að athuga hvort leiðin í gegnum matið væri of auðveld. „Ég vil undirstrika að við viljum hjálpa þeim sem þurfa á hjálp að halda,“ sagði ráðherra þegar skýrsla Hagfræðistofnunar var kynnt. Í skýrslunni kemur fram að frá árinu 2002 og þar til á síðasta ári fjölgaði umsóknum um örorkumat úr 944 í 1622 eða um rúmlega 70 af hundraði. Þetta getur átt sér margvíslegar skýringar, en aðalá- hyggjuefnið hlýtur að vera hin mikla fjölgun ungra öryrkja hér á landi. Sú hætta er alltaf fyrir hendi að ungt fólk sem fer á örorku- bætur eigi erfitt með að fara aftur á almennan vinnumarkað. Stjórnvöld þurfa því að huga sérstaklega að þessum þætti og láta kanna hann nánar ef allar upplýsingar um málið koma ekki fram í skýrslu Hagfræðistofnunar. Eru þessir ungu öryrkjar í þéttbýli eða dreifbýli? Ef þeir eru í þéttbýli, hvar er þá aðallega að finna? Eru þeir á höfuðborgarsvæðinu eða á litlum stöðum sem hafa orðið illa úti vegna sameiningar fyrirtækja eða tilflutnings á kvóta? Það er ekki aðeins að það sé slæmt fyrir ungt fólk að fara á örorkubætur, heldur aukast útgjöld samfélagsins til þessa málaflokks mjög ef fólk er á örorkubótum lungann úr starfsævinni. Samtök öryrkja þurfa líka að líta raunsæjum augum á þær staðreyndir sem fram koma í skýrslunni, þótt það geti verið sárt fyrir suma skjólstæð- inga þeirra. Það er vitað að viss hluti þjóðfélagsþegnana þarf á að- stoð samfélagsins að halda, og þeim á að hjálpa svo þeir geti lifað mannsæmandi lífi, en aðrir fara kannski á örorkubætur aðeins vegna þess að þær eru hærri en atvinnuleysisbætur. ■ 28. apríl 2005 FIMMTUDAGUR SJÓNARMIÐ KÁRI JÓNASSON Umsóknum um örorkumat fjölgaði um sjötíu af hundraði á tveimur árum Hér eru of margir ungir öryrkjar ORÐRÉTT Slæm blanda Nú veit ég að engu er að treysta þegar ástin og peningar eru ann- ars vegar Anna Pálsdóttir fær lítið fyrir trúlof- unarhringinn sem hún ætlaði að selja eftir að upp úr slitnaði í sambandinu DV 27. apríl Hin eina rétta skoðun Gagnrýnandi Morgunblaðsins hreifst af píanóleik Kristínar Jónínu Taylor. Dásemd var að hlýða á túlkunina Baksíðufyrirsögn Morgunblaðsins Morgunblaðið 25. apríl En svona er handboltinn Við fengum fjölmörg tækifæri til að komast yfir í leiknum en dómar féllu okkur ekki í hag á mikilvægum augnablikum og dómararnir áttu sinn þátt í sigri Hauka hér í dag. Það er fárán- legt að bjóða upp á svona dóm- gæslu í úrslitaleik. Elísa Sigurðardóttir Eyjakona var ósátt í leikslok Morgunblaðið, 27. apríl Gott að þau geri það ekki í tímum Þau bera sig, drekka úr drullu- polli fyrir pening og pissa í ræsið í frímínútum. Hildur Karen Aðalsteinsdóttir, kenn- ari í Grundaskóla á Akranesi, um skólabörn sem horfa á Strákana. DV, 27. apríl Er þetta satt? Meðal framsóknarmaðurinn er hættuleg samsetning sem er til alls vís og notar helst meðul sem eru helguð tilganginum. Þórarinn Þórarinsson skilgreinir stjórnmálin Fréttablaðið, 27. apríl Allt í hund og kött Lengi getur vont versnað og vond- ur innri maður orðið verri, því í ljós hefur komið að Ásgeir stend- ur fyrir nýju hundaræktarfélagi. Úr bréfi til félaga Íshunda. DV, 27. apríl Fátæktin opinberuð Framsóknarmennirnir eru nú að stíga fram með einkafjármálin og Kristinn sleggja fer þar fram fremstur í flokki. Sýnist á öllu að hann sé skítblankur. Óli Ómar Ólafsson, leigubílstjóri. DV, 27. apríl FRÁ DEGI TIL DAGS Það er ekki aðeins að það sé slæmt fyrir ungt fólk að fara á örorkubætur, heldur aukast útgjöld sam- félagsins til þessa málaflokks mjög ef fólk er á örorkubót- um lungann úr starfsævinni. ,, Í DAG ÓVINIR LÝÐRÆÐISINS ÞORVALDUR GYLFASON Vandinn í ríkjum múslíma er þó ekki bundinn við öfgamenn þar, öðru nær. Lýðræði er sjald- gæft meðal múslíma, ein- ræði er reglan. ,, Lengi býr að fyrstu gerð Allt er illt sem kemur að sunnan Björn Þorláksson fréttamaður Ríkisút- varpsins á Akureyri setti ofan í við Hjör- leif Hallgríms, ritstjóra Vikudags, í stuttri Morgunblaðsgrein um daginn. Björn hafði hnotið um frétt í Vikudegi undir fyrirsögninni „Íbúðarheildsalar frá Reykjavík teygja arma sína til Akureyr- ar“.Hvað með það, spyr Björn og vitnar áfram í Vikudagsfrétt- ina: „Það er slæmt til þess að vita að gróðabraskarar úr Reykjavík ætli að fara að sprengja upp íbúðaverð hér í okkar fallega bæ og gera þá til dæmis ungu fólki erfitt með að eignast eigin íbúð, nóg er samt.“ Og svo þetta: „Það eru tilmæli Vikudags til væntanlegra íbúðarkaup- enda að þeir eigi ekki viðskipti við gróðabraskara að sunnan sem væntan- lega hækka íbúðaverðið um milljónir króna.“ Þarna ofbýður Birni og hann skrifar: „Ritstjórinn má skrifa greinar og leiðara um eigin þröngsýni en hlífum fréttunum við slíku. Ég sem íbúi á Ak- ureyri skammast mín fyrir að eini fréttaprentmiðill Akureyrar skuli ekki standa sig faglegar en raun ber vitni.“ Agavandamál hjá útvarpi þjóðar- innar Hjörleifur Hallgríms lætur fréttamann RÚV, sem kallaður er Björn Mývetning- ur í greininni, ekki eiga neitt inni hjá sér og svarar honum í síðasta tölublaði Vikudags. Og spyr: „Í hvaða ástandi varstu Björn Þorláksson þegar þú last forsíðufréttina í Vikudegi og í framhaldi af því skrifaðir greinina í Moggann sem er uppfull af rógburði og rangfærslum.“ Og Hjörleifur telur að hann megi eitt og annað sem fréttamönnum RÚV leyf- ist ekki: „Ég vil að lokum segja við þig Björn að við sem vinnum á héraðs- fréttamiðlunum höfum óformlegt leyfi til að tjá okkar eigin skoðanir í fréttum jafnt sem öðru efni, en fréttamaður eins og þú, sem vinnur hjá Ríkisútvarp- inu, útvarpi þjóðarinnar, hefur ekki leyfi til þess eins og þú gerir og ert jafnvel með leiðandi spurningar. Til þess hefur þú ekkert leyfi. Þér færi líklega betur að halda þig við skáldsöguskriftir.“ johannh@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRI: Kári Jónasson FRÉTTARITSTJÓRAR: Sigurjón M. Egilsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FULLTRÚI RITSTJÓRA: Guðmundur Magnússon RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir AUGLÝSINGASTJÓRI: Þórmundur Bergsson RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐAL- SÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.