Fréttablaðið - 28.04.2005, Page 45
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ { LANDBÚNAÐUR } ■■■ 11
Vörn gegn
vindi
Út er komið 40 blaðsíðna
rit um skjólbelti.
Skjólskógar
á Vestfjörð-
um og
Rannsókn-
a r s t ö ð
skógræktar
á Mógilsá
hafa gefið
út íslenska
þýðingu á
40 blað-
síðna riti
um skjól-
belti. Ritið er skrifað með aðstæður
landbúnaðar í Norðvesturríkjum
Bandaríkjanna í huga og fjallar um
hönnun, ræktun og viðhald vind-
brjóta, skjólbeltakerfa og lifandi snjó-
fangara. Veðurfar á þeim slóðum er
öfgakennt og erfitt trjágróðri, en jafn-
framt afar breytilegt innan og milli
ríkja. Skjólbeltarækt á þessum slóðum
á sér langa sögu. Þær aðferðir sem
lýst er í ritinu ættu að duga við fjöl-
breytilegar aðstæður eins og þær sem
við búum við hér á landi. Ákveðið var
að snara bæklingnum yfir á íslensku,
án þess að staðfæra tegundaheiti eða
aðlaga efni hans á annan hátt að
íslenskum aðstæðum. Þannig geta
lesendur kynnt sér þau vandamál sem
við er að etja vestan hafs og hvernig
brugðist er við þeim, enda bæði
vandamálin og lausnirnar alþjóðleg-
ar.
Ritið kostar 1.000 kr. og er til sölu hjá
Skjólskógum, Aðalstræti 26, 470
Þingeyri. Pöntunarsími er 456 8201
og einnig má panta á netfanginu
skjolskogar@netos.is.
Ágúst Sigurðsson rektor segir um 300 nemendur í Landbúnaðar-
háskóla Íslands og starfsmenn um 130 talsins.
Skólinn varð til um síðustu áramót við
sameiningu Landbúnaðarháskólans á
Hvanneyri, Rannsóknastofnunar landbún-
aðarins á Keldum og Garðyrkjuskólans á
Reykjum. Rektor er Ágúst Sigurðsson og
hann hefur þetta um námið að segja:
„Skólinn er starfræktur í þremur deildum:
auðlindadeild, umhverfisdeild og starfs- og
endurmenntunardeild. Við bjóðum upp á
háskólamenntun til BS 90, BS 120 og MS-
gráða auk starfsmenntunar í búfræði og
garðyrkju. Vinsælasta BS-námið undanfar-
in ár hefur verið umhverfisskipulag sem
undirstöðunám fyrir landslagsarkitektúr eða
skipulagsfræði en nýtist einnig beint út í
atvinnulífið. BS-nám í búvísindum hefur
verið starfrækt lengi og hefur í gegnum tíð-
ina ávallt fengið ágæta aðsókn enda fjallar
námið á breiðum grunni um búrekstur,
hvers kyns ræktun nytjajurta og búfjár. Þá
höfum við einnig verið að prufukeyra
diplómanám í garðyrkjugreinum en fyrir
því hefur verið mikill áhugi hjá fólki sem er
starfandi í greininni.
Það eru mjög spennandi tímar fram undan
í uppbyggingu skólans. Háskólaþorpið hér
á Hvanneyri er í miklum vexti. Rann-
sóknaaðstaða okkar á Keldnaholti við
Reykjavík mjög góð og eins aðstaða til
rannsókna í garðyrkju á Reykjum. Eins og
staðan er núna þá er starfsemin nokkuð
dreifð en það skapar líka ákveðin tæki-
færi.“
Beint úr
búverkunum
Verkefnið Dagur með
bónda hefur verið við lýði í
sex ár.
„Þetta verkefni lýsir sér þannig að
starfandi bóndi fer í 7. bekk grunn-
skóla á höfuðborgarsvæðinu og
Akureyri. Þar er hann í fjóra tíma
samfleytt með myndband og ýmsa
hluti úr sínu starfi og segir frá lífinu í
sveitinni,“ segir Berglind Hilmars-
dóttir á Núpi undir Eyjafjöllum sem er
verkefnisstjóri. „Þetta hefur verið í
gangi í sex ár og við önnum ekki
eftirspurn. Á hverjum vetri fá um 90
bekkir svona heimsókn. Skilyrði er að
þetta sé starfandi bóndi og komi nán-
ast beint úr búverkunum, annars er
það ekki að marka. Í vetur hafa sex
bændur sinnt þessu. Sjálf hef ég farið
í 15 bekki eftir áramót og 10 fyrir jól.
Kennarar eru almennt mjög ánægðir,
það má segja að fagnaðarlátum þeirra
ætli aldrei að linna.“
Áhersla á náttúrunýtingu
og umhverfisfræði
Það er búsældarlegt í Borgarfirðinum þar sem höfuðvígi Landbúnaðarháskóla Íslands stendur í túni.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/G
VA