Fréttablaðið - 28.04.2005, Síða 72
44 28. apríl 2005 FIMMTUDAGUR
Fyrirspurnum um Selmu Björns-
dóttir, fulltrúa Íslands í
Söngvakeppni evrópskra sjónvarps-
stöðva í ár, og lagið If I Had Your
Love hefur rignt inn til Sjónvarpsins
síðustu vikur. Það eru bæði fjölmiðl-
ar sem og æstir aðdáendur sem vilja
fá upplýsingar, myndir og lagið
sjálft sent til sín enda er búist við
miklu af Selmu þegar keppnin í
Kænugarði hefst um miðjan maí.
„Það er fólk alls staðar að sem
hringir inn og er að spyrjast fyrir
um Selmu og lagið,“ segir Jónatan
Garðarsson hjá Sjónvarpinu. „Við
erum búin að senda hátt í tvö hund-
ruð diska út og það er eitthvað sem á
eftir að bætast við.“
Jónatan segir að það sé aðallega
fólk og fjölmiðlar frá þeim löndum
sem keppnin er hvað vinsælust í
sem hringi inn en einnig sé töluvert
hringt frá löndum í Austur-Evrópu.
„Það er mjög jákvætt að það séu
svona margir að forvitnast um
Selmu. Við finnum fyrir sterkum
straumum hvað svo sem það þýðir,“
segir Jónatan hlæjandi.
Starfsfólk Sjónvarpsins er ekki
óvant því að svara fyrirspurnum um
keppendur Íslands í söngvakeppn-
inni. „Síðustu ár hafa margir að-
dáendur hringt inn til að sníkja
efni en nú er meira um að fag-
fólk og fjölmiðlar séu að biðja
um gögn,“ segir Jónatan. „Við
fáum líka alltaf töluvert af að-
dáendapósti.“
Venja er að keppendur frá Ís-
landi taki með sér kynningar-
efni í keppnina og svo
verður einnig í ár.
„Það er verið að út-
búa „presskitið“
núna en við erum
ekki eins stórtæk
og margir. Sumir
koma með húf-
ur, nælur og
trefla með sér
en við erum
ekki svoleið-
is. Við látum myndir og upplýsingar
duga,“ segir Jónatan.
Selma og hið fríða föruneyti legg-
ur af stað til Kænugarðs þann 10.
maí en fyrsta æfingin verður morg-
uninn eftir. „Þetta verður ansi
langt ferðalag hjá okkur. Það
er mæting klukkan fimm að
morgni upp í Sjónvarp og
flogið til Kaupmannahafnar
rétt fyrir átta. Síðan þurfum
við að skipta um vél í Kaup-
mannahöfn til Berlínar og svo
aftur til Kænugarðs. Ég held
að við verðum ekki
komin þangað fyrr
en um hálflellefu
um kvöldið,“ seg-
ir Jónatan sem
fær það erfiða
hlutverk að
leiða föruneyt-
ið alla leið til
Kænugarðs
og aftur
heim. ■
BÍLSKÚRS-
HURÐAOPNARI
MOTORLIFT 4000
19.999 kr.
Öll helstu merkin í verkfærum.
Ótrúlegt úrval af BMF festingum,
boltum, skúfum og saum.
Sjón er sögu ríkari.
Súperbygg, þar sem þú færð
meira fyrir minna.
Opið mán-fös 8-18 og lau 9-15
Bæjarhaun 8 Hafnarfjörður
Sími: 414-6080
NÝTT Á ÍSLANDI
HJÓLSÖG 185
M/LEISER
4.990 kr.
20.990 kr.
METABO
sds 650w
POWER CRAFT
BÚTSÖG
TIFSÖG
7.990 kr.
HÖGGBORVÉL
ZEMA 1050w
3.490 kr.
GASHITIARI
13kw
hæð 220cm
15.600 kr.
HRÍFA
BEÐAKLÓRA
BEÐASKAFA
690 kr. pr.stk
REGNGALLASETT
LUXUS STÆRÐIR
S,M,L,XL,XXL
3.900 kr. 5.990 kr.
DEWALT BORVÉL
12 VOLT
2 RAFHLÖÐUR
12.990 kr.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ú
V
ÍSLENSKA EUROVISIONLAGIÐ: VINSÆLT ÚT UM ALLAN HEIM
Æstir aðdáendur vilja Selmu
SELMA BJÖRNSDÓTTIR
Selma virðist vera að slá í
gegn út um allan heim
enda margir sem spá
henni góðu gengi í
Eurovision. Forkeppnin fer
fram þann 19. maí en að-
alkeppnin tveimur dögum
seinna.
JÓNATAN GARÐ-
ARSSON Fararstjóri
íslenska hópsins til
Kænugarðs.
Útgáfutónleikar Úlpu
Hafnfirska rokksveitin Úlpa
heldur útgáfutónleika á Nasa á
morgun í tilefni af útkomu smá-
skífunnar Attempted Flight. Lag-
ið verður að finna á annarri plötu
sveitarinnar, sem kemur út síðla
sumars.
Á smáskífunni verða þrjú
aukalög, þar af eitt tónleikalag
og eitt raftónlistarlag án söngs.
Skífan verður gefin með hverj-
um keyptum aðgöngumiða á tón-
leikana en ekki verður hægt að
kaupa hana í hljómplötubúðum.
Aðgangseyrir er 500 krónur.
Þess má geta að myndband við
nýja lagið er komið í spilun en
það var tekið upp í Barcelona. ■
Lögga skýtur
tvisvar á klósetti
Lögreglumaðurinn Craig
Clancy var heldur óhepp-
inn þegar hann skaust á
bílauppboð heima í San
Antonio á frívakt. Honum
varð mál að gera númer
tvö á klósetti uppboðs-
haldarans, en ekki vildi
betur til þegar hann girti
niður um sig buxurnar að
byssa sem hann geymdi
utan á belti sínu féll úr
hulstrinu og hleypti af
tveimur skotum þegar
Clancy lögreglumaður
reyndi að bjarga málum
en greip óvart í gikkinn.
Eftir því sem talsmað-
ur lögreglunnar í San Ant-
onio segir fór fyrsta
byssukúlan í gegnum
hurðina á klósettinu og
djúpt í fótlegg manns sem
stóð í sakleysi sínu og
þvoði á sér hendurnar. Sá
var umsvifalaust fluttur
blæðandi á sjúkrahús, en
innra eftirlit lögreglunn-
ar í Texas rannsakar mál-
ið. ■
LÖGREGLU-
SKJÖLDUR TEXAS
Lögreglumaður á frí-
vakt skaut mann
óvart á klósetti.
ÚLPA Hljómsveitin Úlpa gefur út sína aðra plötu í sumar. Fyrst kemur þó út smáskífan
Attempted Flight.
■ SKRÝTNA FRÉTTIN