Fréttablaðið - 04.05.2005, Blaðsíða 1
Kostar
170 milljónir
● stór mynd á íslenskan mælikvarða
Ingvar úti í Mýri:
▲
SÍÐA 42
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
MIÐVIKUDAGUR
SÍÐUSTU HÁDEGISTÓNLEIKARNIR
Klukkan tólf hefjast síðustu hádegistónleik-
ar vetrarins í Hafnarborg, menningar- og
listastofnun Hafnarfjarðar. Bergþór Pálsson
baritón og Antonía Hevesi píanóleikari
flytja vorljóð úr ýmsum áttum.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
4. maí 2005 – 119. tölublað – 5. árgangur
MÁLAFERLAFRUMVARP Stjórnar-
frumvarp um Ríkisútvarpið leiðir til rétt-
indaskerðingar starfsmanna og málaferla
að mati stjórnar BSRB. Ekkert liggur á að
afgreiða frumvarpið segir formaður Starfs-
mannasamtaka RÚV. Sjá síðu 2
VAKTASKIPTI Í WESTMINSTER
Bretar ganga að kjörborðinu á morgun og
kjósa sér nýtt þing. Þrátt fyrir það er rólegt í
miðborg Lundúna eins og Auðunn Arnórs-
son blaðamaður komst að í gær. Sjá síðu 4
STEFNA Á STRASSBORG Samtök
eigenda sjávarjarða höfða mál á hendur
ríkinu. Nýfallinn dómur Hæstaréttar tók
ekki á eignarrétti sjávarbænda á hlunnind-
um í sjó. Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttar-
lögmaður segir viðbúið að mál bændanna
endi í Strassborg. Sjá síðu 6
Kvikmyndir 38
Tónlist 36
Leikhús 36
Myndlist 36
Íþróttir 28
Sjónvarp 40
Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
Nýtt
viðs
kipta
blað
með Fré
ttablaði
nu
alla miðvikudaga
Sögurnar • Tölurnar • Fólkið
● nám
Ferðin til Hóla
tók tíu ár
Guðrún Rut Hreiðarsdóttir:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
VÍÐA LÍTILSHÁTTAR VÆTA síst þó
austan og suðaustan til. Fremur þungbúið á
landinu. Hiti 4-11 stig, hlýjast Suðaustan-
lands. Sjá síðu 4
FÓTBOLTI Við getum þrátt fyrir þetta
tap borið höfuðið hátt. Þetta tímabil
hefði getað orðið ótrúlegt með því
að komast í úrslitin en Liverpool
spilaði mjög vel og gerði okkur
erfitt fyrir,“ sagði Eiður Smári
Guðjohnsen, leikmaður Chelsea, í
gær, eftir að hafa fallið annað árið í
röð úr leik í undanúrslitum Meist-
aradeildar Evrópu með 1-0 tapi
gegn Liverpool á Anfield í gær.
Þrátt fyrir að hann reyndi að horfa
á björtu hliðarnar leyndu vonbrigð-
in sér ekki í andliti Eiðs.
„Að þetta skuli gerast annað
árið í röð gerir það enn sárara.
Menn voru niðurbrotnir í klefanum
eftir leikinn og þetta var bara ekki
okkar dagur,“ sagði Eiður sem
sjálfur brenndi af besta færi Chel-
sea á síðustu mínútu leiksins í gær.
„Þetta var þröngt færi auk þess
sem ég var orðinn mjög þreyttur.
Það sagði til sín,“ sagði Eiður. Hann
getur þó huggað sig við enska
meistaratitilinn sem Chelsea
tryggði sér um síðustu helgi. ■
HEILBRIGÐISMÁL Of litlu fjármagni
er hér veitt til starfsendur-
hæfingar. Ónógt framboð, skort-
ur á fjölbreytni og ófullnægjandi
eftirfylgni eru þröskuldar í vegi
hennar, auk þess sem skortir á
samræmingu úrræða og heildar-
yfirsýn.
Niðurstöður þessar er að finna
í óbirtri skýrslu starfshóps um
starfsendurhæfingu á Íslandi.
Jón Kristjánsson heilbrigðisráð-
herra skipaði hópinn, en hann
kynnti sér skipulag og framboð
starfsendurhæfingar og endur-
menntunar, bæði hér og einnig á
hinum Norðurlöndunum. Hann
hefur nú skilað skýrslu sinni.
Í skýrslunni segir að erfitt sé
að ná til fólks nógu snemma, eða
á fyrstu mánuðunum sem fólk er
óvinnufært. Lág framfærsla og
flókið framfærslukerfi ýti ein-
staklingnum óeðlilega snemma
út í að sækja um örorkubætur án
þess að starfsendurhæfing hafi
verið reynd. Þá séu úrræði til
starfsendurhæfingar takmörkuð
utan höfuðborgarsvæðisins. End-
urhæfingarlífeyrir Trygginga-
stofnunar er í mörgum tilvikum
sagður of skammvinnur og regl-
ur atvinnuleysistryggingasjóðs
um missi bótaréttar of stífar.
Starfshópurinn bendir á að
beinn fjárhagslegur sparnaður
fyrir þjóðfélagið við að forða ör-
orku hjá einum einstaklingi nemi
um 30 milljónum króna. Því þurfi
að endurskipuleggja starfshæf-
ingu og auka framboð og sveigj-
anleika til að bregðast við breytt-
um þörfum á vinnumarkaði.
Lagt er til að komið verði á fót
miðstöð starfsendurhæfingar.
Við það skapist vettvangur til að
vinna frekar að málefnum
endurhæfingar í starfi, þvert á
ríkjandi fyrirkomulag. Áætlaður
kostnaður við miðstöðina er 40
milljónir króna, en hópurinn
bendir á atriði sem hafa í för með
sér beinan og óbeinan sparnað
með tilkomu hennar. Leggur
hópurinn til að rætt verði við
hagsmunaaðila um aðild þeirra
að skipulagningu og fjármögnun
sameiginlegs endurhæfingar-
kerfis með einni miðstöð. Þar
yrði metin þörf einstaklinga á
starfsendurhæfingu og þeim
vísað á viðeigandi úrræði.
Jafnframt telur starfshópur-
inn þörf á endurskoðun ákvæða
laga um endurhæfingarlífeyri,
auk þess sem breyta þurfi
læknisvottorðum þannig að þau
endurspegli endurhæfingar-
þörfina tímanlega.
„Efla þarf sértækar greiðslur
til atvinnulausra,“ segir í skýrsl-
unni, „til að hvetja þá til náms og
starfsendurhæfingar og inn á
vinnumarkaðinn að nýju.“
jss@frettabladid.is
HEIMSFRUMSÝND Í DAG
FRÁ LEIKSTJÓRA
GLADIATOR
Chelsea beið lægri hlut fyrir Liverpool í Meistaradeildinni í gærkvöld:
Eiður Smári komst ekki í úrslit
LEIKUR GÆRKVÖLDSINS
Eiður Smári Guðjohnsen telur að hann og félagar hans í liðinu Chelsea geti borið höfuðið hátt þrátt fyrir að hafa lotið í lægra haldi fyrir
Liverpool í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu með 1-0 tapi í gærkvöld.
Starfsendurhæfing í ólestri
Ráðherraskipaður starfshópur segir að í starfsendurhæfingarmálum hér á landi skorti fjármagn,
framboð, fjölbreytni og eftirfylgni. Þá vantar á samræmingu úrræða og heildaryfirsýn í
málaflokknum. Hópurinn hefur skilað heilbrigðisráðherra skýrslu um stöðuna.
FRÁBÆR TILBOÐ!
SÉRBLAÐ FYLGIR
Sala Símans framundan:
Keppast við
tilboðsgerð
EINKAVÆÐING Að minnsta kosti sjö
innlendir hópar keppast nú við að
undirbúa óformlegt tilboð í Sím-
ann fyrir 17. maí. Ekki liggur enn
fyrir hverjir munu á endanum
sameinast í lokatilboði.
Einstaklingar tengdir Atorku
og Tryggingamiðstöðinni eru að
ræða samstarf á síðara stigi út-
boðsins. Meiður og VÍS hafa verið
að undirbúa tilboð og einnig
Burðarás. Þá er Íslandsbanki í við-
ræðum við bandaríska fjárfesta,
Blackstone Group að nafni. Lík-
legast er að Straumur starfi með
erlendum aðilum og Almenningur
ehf. stefnir áfram á þátttöku.
– bg
Sjá Markaðinn
FJÖLMENNT
Fjölmennt – fullorðinsfræðsla fatlaðra er
eitt þeirra endurhæfingarúrræða sem starf-
rækt eru hér á landi og talin eru upp í
skýrslunni. Starfsendurhæfing er mjög mik-
ilvæg til að forða fólki frá örorku.
M
YN
D
: N
O
R
D
IC
PH
O
TO
S/
G
ET
TY
IM
AG
ES