Fréttablaðið - 04.05.2005, Síða 4

Fréttablaðið - 04.05.2005, Síða 4
KAUP Gengisvísitala krónunnar Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR USD GBP EUR DKK NOK SEK JPY XDR 63,80 64,10 120,68 121,26 82,03 82,49 11,02 11,08 10,07 10,13 8,89 8,94 0,61 0,61 96,33 96,91 GENGI GJALDMIÐLA 03.05.2005 GENGIÐ Heimild: Seðlabanki Íslands SALA 113,43 +1,23% 4 4. maí 2005 MIÐVIKUDAGUR Bresku þingkosningarnar verða á morgun: Blair enn í vörn vegna Íraksmála BRETLAND Enn er sótt að Tony Blair forsætisráðherra vegna Íraks- málsins. Á mánudag féll breskur hermaður við skyldustörf þar og hafa fjölmiðlar gert mikið úr þessum atburði á lokaspretti kosningabaráttunnar. Meðal ann- ars var haft eftir ekkju hermanns- ins að dauði hans væri Blair að kenna. Þá mættu fulltrúar samtaka að- standenda fallinna hermanna að Downingstræti 10 og afhentu kröfu um að fram færi ný óháð rannsókn á því hvort ákvörðunin um þátttöku Bretlands í Íraks- stríðinu hefði verið lögleg. Viðhorfskannanir hafa þó ít- rekað sýnt að Íraksmálið sé ekki mjög ofarlega á lista flestra kjós- enda yfir þau mál sem þeim þykir skipta mestu í þessum kosning- um. Efnahags- og velferðarmálin standa flestum nær, og á þessum sviðum stendur stjórnin allsterkt að vígi að mati meirihluta kjós- enda. Óánægjan sem margir stuðningsmenn Verkamanna- flokksins bera í brjósti í garð Blairs vegna Íraksstríðsins virð- ist þó ætla að verða til þess að all- nokkrir þeirra láti hana í ljósi með því ýmist að sitja heima á kjördag eða kjósa Frjálslynda demókrata, eina stóru flokkanna þriggja sem frá upphafi var andsnúinn inn- rásinni í Írak. -aa Vaktaskipti í Westminster Bretar ganga að kjörborðinu á morgun og kjósa sér nýtt þing. Þrátt fyrir það er rólegt í miðborg Lundúna eins og Auðunn Arnórsson blaðamaður komst að í gær. BRETLAND Það er af sem áður var, þegar vegfarendur um fjölförn- ustu torg Lundúna gátu vart þver- fótað fyrir kosningaáróðri sem sjálfboðaliðar flokkanna öttu að þeim er kosningar stóðu fyrir dyr- um. Á endasprettinum fyrir þing- kosningarnar sem fara fram í Bretlandi á morgun er fátt í bresku höfuðborginni sem minnir á að vaktaskipti í einu elsta og virtasta þingi heims séu að skella á. Það er helst að fulltrúar sprell- framboða vindi sér að vegfarend- um með boðskap á borð við: „Ís fyrir alla.“ Meira að segja höfuð- stöðvar flokkanna í nágrenni þing- hússins skera sig ekki að neinu leyti frá hverjum öðrum skrifstofubygg- ingum nema að því leyti að öryggisvarsla við inngangana er áberandi mik- il. Það kom blaðamanni á óvart að prentaðar kosningastefnuskrár stóru flokkanna þriggja var aðeins hægt að fá í bókabúð gegn greiðslu. Og það á verði sem er vel yfir framleiðslukostnaði. Það er augljóst að það er liðin tíð að flokkarnir reyni að vinna kjósend- ur á sitt band með dreifingu prent- aðs áróðurs. Að minnsta kosti í Lundúnum, þar sem svo til öll kjördæmi eru talin „örugg“ – kosningabaráttan er meira áber- andi í þeim um það bil 100 kjör- dæmum (af alls 646) þar sem kannanir benda til að mjótt sé á mununum. Í þessum kjördæmum beita flokkarnir markhópamiðuðum áróðursaðferðum svo sem per- sónulegum póstsendingum og blöðrugjöfum til skólabarna með orðsendingum til foreldranna. Að ógleymdum hefðbundnum baráttu- aðferðum eins og kosningafundum með flokksleiðtogunum eða sjón- varpsauglýsingum með stuðnings- yfirlýsingum vinsælla frægra per- sóna við þennan eða hinn flokkinn. Nú á dögum ýktra hryðjuverka- varna er reyndar ekki hlaupið að því fyrir kjósendur að mæta á kosningafundi þar sem leiðtogarn- ir tala. Svo að ræðurnar sem þeir halda eru oftast fluttar til þess að fjölmiðlar flytji fréttir af þeim – öðru vísi næðu þær ekki eyrum nema þeirra fáu útvöldu sem hleypt er inn á kosningafundina. audunn@frettabladid.is Fésektir og fangelsi: Fíkniefnabrot fyrir norðan DÓMSMÁL Sex voru dæmdir í fésekt- ir og fangelsi fyrir fíkniefnabrot í fjórum dómum Héraðsdóms Norð- urlands eystra í gær. Lægsta sektin var 30 þúsund krónur og sú hæsta 150 þúsund. Þyngsti dómurinn hljóðaði upp á tveggja mánaða fang- elsi og eins árs ökuleyfissviptingu. Í öllum málunum var um að ræða tiltölulega lítið magn efna, trúlega ætlað til eigin neyslu. Sá sem fékk hæstu sektina sat inni í fangelsi þegar félagi hans reyndi að smygla til hans rúmlega 2,5 grömmum af hassi í földu í tölvudrifi. Sá sem fangelsisdóminn hlaut á sér langan sakaferil og rauf skilorð með broti sínu. - óká NORRÆNA Á SIGLINGU Hópur Norðmanna: Fastur í Norrænu NOREGUR Illa fór fyrir hópi Norð- manna sem tóku sér far með ferj- unni Norrænu frá Björgvin til Hanstholm í Danmörku um helg- ina. Þegar hópurinn bjó sig undir að yfirgefa skipið við heimkom- una í Björgvin var honum sagt að það hefði þegar lagt frá bryggju og væri á leið til Íslands með við- komu á Hjaltlandi og í Færeyjum. Hópnum var ekki hleypt frá borði á Hjaltlandi þar sem enginn hafði vegabréf meðferðis og þar sem engar ferðir eru á milli Nor- egs og Færeyja ákvað fólkið að halda áfram til Íslands, en ferjan kom til Seyðisfjarðar í gær. „Við báðum ekki um að fara í þessa ferð,“ sagði Björn Engvik, einn farþeganna, í samtali við Bergens Tidende. ■ SAMNINGURINN STAÐFESTUR Gert er ráð fyrir að framkvæmdum vegna nýja samningsins verði lokið síðla árs 2008. Norðurál á Grundartanga: Viðbótar- raforka frá OR ORKUMÁL „Þetta er stærsta verk- efni sem Orkuveitan og Hitaveita Suðurnesja hafa ráðist í hingað til,“ segir Guðmundur Þórodds- son, forstjóri Orkuveitu Reykja- víkur. Í gær var skrifað undir samn- ing milli Norðuráls annars vegar og Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suðurnesja hins vegar um kaup hins fyrrnefnda á 70 megavöttum af viðbótarraforku fyrir álver fyrirtækisins á Grund- artanga. Samningurinn gerir Norðuráli kleift að auka fram- leiðslu sína í 260 þúsund tonn ár- lega. -aöe ■ LÖGREGLUFRÉTTIR ■ STUÐNINGSNEFND Sektargreiðslur olíufélaga: Einungis Skelj- ungur borgaði OLÍUSAMRÁÐ Bæði Essó og Olís ætla að bíða með að greiða sektir sínar vegna ólöglegs samráðs þar til nið- urstöður dómstóla liggur fyrir. Bæði félögin vilja leggja fram bankatryggingar þangað til. Skelj- ungur var því eina olíufélagið sem borgaði sekt sína að fullu áður en frestur til þess rann út á mánudag. Samtals þurfa fyrirtækin að greiða um einn og hálfan milljarð króna, Olís 560 milljónir, Ker 495 milljónir og Skeljungur 450 millj- ónir. -oá FULLUR ELDMÓÐS Þótt hart sé sótt að Tony Blair vegna Íraks- málsins sýna skoðanakannanir örugga for- ystu Verkamannaflokksins. VÖRUBÍLL VALT OG BRANN Vöru- bíll fór út af veginum við Kára- hnjúka í gær. Engin slys urðu á fólki en það kviknaði í bílnum og er hann ónýtur eftir. Slysið varð þegar tveir stórir bílar mættust og vegöxl gaf sig með þessum af- leiðingum. BRESKA ÞINGHÚSIÐ Ekki er að sjá að Lundúnabúar kippi sér mikið upp við þingkosningarnar sem fara fram á morgun. VILJA FRELSA ARON PÁLMA Hóp- urinn sem vann að frelsun Bobbys Fischer hefur ákveðið að beita sér í máli Arons Pálma Ágústssonar, íslensks drengs, sem sætt hefur refsivist í Banda- ríkjunum í yfir 8 ár, frá 13 ára aldri. „Hyggst nefndin nú beita sér af alefli í máli hans,“ segir í tilkynningu.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.