Fréttablaðið - 04.05.2005, Síða 10
BLEIK OG BLÁ
Útskriftarnemendur í Verkmenntaskólan-
um á Akureyri settu skemmtilegan svip á
bæjarlífið á Akureyri á föstudaginn. Á Ráð-
hústorgi var gripið í gítar, teknar léttar leik-
fimiæfingar og sungið við raust.
10 4. maí 2005 MIÐVIKUDAGUR
Meintur fjárdráttur fíkniefnalögreglumanns:
Krafðist ómerkingar
HÆSTIRÉTTUR Verjandi Halls G.
Hilmarssonar, fíkniefnalögreglu-
mannsins sem dæmdur var fyrir
fjárdrátt í opinberu starfi í fyrra,
krafðist þess fyrir Hæstarétti í
gær að málið yrði lýst ómerkt og
því vísað heim í hérað. Til vara
krafðist hann að ákærði yrði
sýknaður eða dæmdur til vægustu
refsingar.
Fjórir götulögreglumenn lögðu
hald á tæplega 900 þúsund krónur
í 5.000 króna seðlum ásamt öðrum
gögnum í fíkniefnamáli skömmu
fyrir áramót 2002-2003. Féð var
talið ágóði af fíkniefnasölu.
Ákærði sem var lögreglufulltrúi
við fíkniefnadeildina fékk pening-
ana inn á sitt borð ásamt öðrum
gögnum. Eitthvað fór á milli mála
hver fór með rannsóknina og fékk
féð ekki eðlilega meðferð innan
lögreglunnar.
Eigandi fjársins, sem lögregl-
an hafði áður fylgst með vegna
gruns um fíkniefnabrot, krafðist
þess að fá það til baka en dráttur
varð á því. Féð fannst síðar í
geymslu lögreglunnar og var skil-
að eigandanum. Fíkniefnalög-
reglumaðurinn neitaði sök og
kvaðst ekki hafa vitað af pening-
unum.
-ghs
Fögur múmía:
Lá grafin í margar aldir
EGYPTALAND, AP 2.300 ára gömul
múmía var afhjúpuð á Saqqara
píramídasafninu suður af Kaíró í
gær. Múmían sem er frá tímum
30. faróaveldisins fannst fyrir
skemmstu í trékassa sem graf-
inn var í sand á sex metra dýpi.
Zahi Hawass, yfirmaður forn-
leifastofnunnar Egyptalands,
segir múmíuna eina þá allra
fallegustu sem nokkru sinni hef-
ur fundist. Á næstu dögum verð-
ur múmían sneiðmynduð og
þannig reynt að svara spurning-
um um uppruna og tilurð þessa
merkisfundar. ■
Auglýsing vek-
ur illdeilur
Formenn fimm stéttarfélaga í Eyjafirði eru afar óhressir með ritstjóra
Vikudags á Akureyri en hann notaði auglýsingu í blaðinu til að koma á fram-
færi óánægju sinni með einn formanninn.
DEILUR Í Vikudegi, sem kom út á
fimmtudaginn, er auglýsing frá
fjórum stéttarfélögum þar sem
verkafólki eru sendar kveðjur í
tilefni 1. maí en neðst í auglýsing-
unni stendur: „Hér átti að vera
kveðja frá félagi byggingamanna,
Eyjafirði, en er ekki að sinni því
Guðmundur Ómar formaður er í
fýlu við ritstjóra Vikudags.“
Guðmundur Ómar Guðmunds-
son, formaður Félags bygginga-
manna Eyjafirði, segir ritstjóra
Vikudags hafa sent félaginu kald-
ar kveðjur með skrifum sínum
fyrir einu og hálfu ári og síðan
hafi félagið ekki átt viðskipti við
blaðið. „Ég einfaldlega sagði nei
þegar hann falaðist eftir auglýs-
ingu og mér finnst þessi viðbrögð
hans fyrst og fremst barnaleg.
Hin félögin borga auglýsinguna
og ég skil vel að þau séu óhress,“
segir Guðmundur Ómar.
Hjörleifur Hallgríms, ritstjóri
Vikudags, segir Guðmund Ómar
vera að refsa blaðinu fyrir það eitt
að flytja fréttir og það geti hann
ekki sætt sig við. „Guðmundur
Ómar er í fýlu vegna þess að hann
er ósáttur við skrif blaðsins en mér
fannst hins vegar sjálfsagt að Fé-
lag byggingamanna í Eyjafirði
væri með auglýsingu í tilefni 1.
maí. Ég er yfirleitt mjög ánægður
með verkalýðshreyfinguna og hef
ekkert upp á hina formennina að
klaga. Þeta fólk er að vinna mjög
gott verk,“ segir Hjörleifur.
Björn Snæbjörnsson, formaður
Einingar – Iðju, segir vinnubrögð
ritstjórans fyrir neðan allar hell-
ur. „Ég vil ekki gefa neinar yfir-
lýsingar þess efnis að við auglýs-
um ekki aftur í blaðinu en get þó
sagt að við höfum ekki áhuga á að
borga auglýsingu með svona
kveðju. Ég hef séð margt ljótt á
prenti en þetta er með því
ósmekklegasta sem ég hef séð,“
segir Björn.
Formenn félaganna fimm
funduðu um þetta tiltekna mál í
gærmorgun og í kjölfarið var rit-
stjóra Vikudags skrifað bréf sem
póstlagt var í gær. Formennirnir
vilja hins vegar ekki upplýsa um
innihald bréfsins að svo stöddu
þar sem ritstjórinn hefur ekki
fengið það í hendur.
kk@frettabladid.is
Ástþór Magnússon:
Réttað vegna
myndavélar
HÉRAÐSDÓMUR Málflutningur var í
Héraðsdómi Reykjavíkur í gær-
morgun í máli á hendur Ástþóri
Magnússyni, forsvarsmanni Friðar
2000.
Ástþóri er gefið að sök að hafa
brotið myndavél ljósmyndara. Ást-
þór var orðinn þreyttur og pirraður
á myndatökum ljósmyndara og taldi
sig ekki fá að vera í friði, ekki einu
sinni inni í bíl sínum. Hann taldi sig
ekki opinbera persónu og vildi að
myndum sem af sér hefðu verið
teknar yrði eytt.
Þegar málið var tekið fyrir í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur í gær sletti
Ástþór tómatsósu á ljósmyndara.-ghs
BJÖRGUNARMENN AÐ STÖRFUM
Margra daga starf bíður björgunarmanna í
Lahore í Pakistan.
25 bíða bana:
Hús hrundi
í sprengingu
PAKISTAN, AP Að minnsta kosti 25
létust og 20 særðust í gasspreng-
ingu sem varð í austurhluta
Pakistan í gærmorgun. Spreng-
ingin varð í þriggja hæða húsi
sem hýsti rjómaísverksmiðju og
ódýrar verkamannaíbúðir. Húsið
hrundi til grunna við sprenging-
una. Að sögn lögreglustjórans í
Lahore er ekki ljóst hvað olli
sprengingunni en þeir íbúar sem
lifðu af sögðu gastanka hafa verið
geymda í kjallara byggingarinnar.
Aðkoma björgunarmanna var
vægast sagt hrikaleg og það mun
taka marga daga að leita í rústun-
um. ■
KÍNVERSKAR RISAPÖNDUR
Kínverjar buðu Taívönum tvær pöndur að
gjöf í kjölfar vel heppnaðrar heimsóknar
leiðtoga stjórnarandstöðu Taívans.
Nýstárleg sáttaleið:
Bjóða Taívön-
um pöndur
PEKING, AP Ríkisstjórn Kína fúls-
aði í gær við útréttri sáttahönd
Taívana og lýsti því yfir að engar
formlegar viðræður gætu orðið á
meðan Taívanar standa fast á því
að eyjan skuli hljóta fullt sjálf-
stæði. Þetta gerðist einungis ör-
fáum klukkutímum eftir að Kín-
verjar höfðu boðið tævönsku
þjóðinni tvær risapöndur að gjöf
til að kóróna vel heppnaða, sögu-
lega heimsókn leiðtoga taí-
vönsku stjórnarandstöðunnar
upp á meginlandið. Pöndurnar
gætu þó gefið vísbendingu um að
afstaða kínverskra stjórnvalda
sé heldur að mildast í málefnum
litla bróður í suðri. ■
■ ÖRYGGISMÁL
■ HÉRAÐSDÓMUR
– hefur þú séð DV í dag?
Morðkvendi
á flótta í
Reykjavík
Einkaviðtal DV við Ísafjarðar-Beggu sem
hvarf af Litla-Hrauni í tæpan sólarhring
Handtekin og flutt á Hraunið í gær
STAL ÚTVARPSVEKJARA Maður
var dæmdur í mánaðarfangelsi,
skilorðsbundið í tvö ár, í Héraðs-
dómi Norðurlands eystra í gær.
Maðurinn hafði stolið útvarps-
vekjaraklukku úr Rúmfatala-
gernum á Akureyri um miðjan
desember sl. Í mars í fyrra hlaut
sami maður 10.000 kr. sekt fyrir
þjófnað.
SÓLARHRINGSVAKT LÆKNA
Björn Bjarnason, dóms- og
kirkjumálaráðherra, og Jón
Kristjánsson, heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra, undirrit-
uðu í gær samning um þyrluvakt
lækna á Landspítala - háskóla-
sjúkrahúsi. Samningurinn tryggir
sólarhringsvakt lækna í þyrlum
Landhelgisgæslunnar.
GEFA HJARTASTUÐTÆKI Akranes-
deild Rauða krossins hefur gefið
lögreglunni á Akranesi fullkomið
hjartastuðtæki. Tækið verður í
öðrum tveggja útkallsbíla lög-
reglunnar en lögreglan kaupir
annað tæki í hinn bílinn. Vonast
er til að þetta verði til að bjarga
megi mannslífum.
HÆSTIRÉTTUR
Verjandi fíkniefnalögreglumanns, sem
dæmdur var fyrir fjárdrátt í opinberu starfi
í fyrra, krafðist þess að málið yrði lýst
ómerkt og því vísað heim í hérað.
AUGLÝSINGIN Í VIKUDEGI
„Mér finnst ritstjórinn óvirða okkur með því að nota pláss í auglýsingu sem við borgum
undir persónulegan skæting,“ segir Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar – Iðju.
DÝRÐIN TIL SÝNIS
Eins og sjá má er múmían marglit og fögur.