Fréttablaðið - 04.05.2005, Qupperneq 24
Sumarnámskeið
Nú er sumarið á næsta leiti og nóg af sumarnámskeiðum úti um allan bæ. Vinnandi
fólk ætti að rífa sig upp úr vananum í sumar og skella sér á einhver framandi námskeið
í dansi, myndlist eða spennandi tungumálum svo fátt eitt sé nefnt.[ ]
Nám fyrir þá sem þurfa
að styrkja stöðu sína
Guðrún Hannesdóttir segir nám hjá Hringsjá góða endurhæfingu fyrir þá sem hafa lent í áföllum.
Hjá Hringsjá er boðið upp á nám
og endurhæfingu. Kennd eru öll
almenn fög og nú er verið að skrá
nemendur á haustönn.
Hringsjá er sjálfstæð stofnun, rekin
af ÖBÍ með þjónustusamningum við
félagsmálaráðuneytið og Trygg-
ingastofnun.
Í Hringsjá er veitt endurhæfing
til náms og starfa en námið er ætlað
einstaklingum eldri en 18 ára, sem
vegna sjúkdóma, slysa eða annarra
áfalla þurfa að endurmeta og
styrkja stöðu sína. Í Hringsjá eru
hverju sinni um 45 nemendur í fullu
námi og námskeiðshópar að auki.
„Við erum að kenna öll almenn
fög eins og tölvunotkun, bókfærslu,
stærðfræði, íslensku, ensku, sam-
félagsfræði, tjáningu, myndlist og
námstækni, svo eitthvað sé nefnt,“
segir Guðrún Hannesdóttir, for-
stöðumaður Hringsjár.
„Við veitum líka náms- og starfs-
ráðgjöf og kennum gerð starfsum-
sókna.
Þá þjálfum við fólk fyrir at-
vinnuviðtöl og vinnum með sjálfs-
styrkingu nemenda, sem oft er ekki
vanþörf á þar sem þeir hafa flestir
verið án atvinnu í nokkurn tíma. Þá
er hvatningin naðuðsynleg, eða svo
vitnað sé beint í einn nemendanna:
„Ég tel námið í Hringsjá hafa hjálp-
að mér mikið og það er með mig
eins og flesta aðra að þetta var ekki
aðeins náms- og starfsendurhæfing
heldur líka félagsleg endurhæfing.“
Næst verða nemendur útskrifað-
ir 18. maí en fullt nám er þrjár ann-
ir. Námskeiðin standa hins vegar
fram að sumarleyfi 20. júní. Um-
sóknarfrestur fyrir haustönn er til
15. maí, en inntaka í fullt nám fer
fram tvisvar á ári. Inntaka á nám-
skeiðin stendur allt skólaárið.
Námskeið fyrir sumarbústaðaeigendur verður haldið 4. júní frá kl. 10 til 16
á Reykjum í Ölfusi. Þar verður meðal annars fjallað um jarðveg og áburðar-
gjöf, plöntuval í sumarbústaðalandið, upptöku og flutning trjáa, ræktun og
umhirðu skjólbelta, meindýr og sjúkdóma á gróðri og fjölæringa og þekju-
plöntur í sumarbústaðalandinu. Leiðbeinendur verða Kristinn H. Þorsteins-
son, garðyrkjustjóri Orkuveitu Reykjavíkur, og Guðríður Helgadóttir, for-
stöðumaður starfs- og endurmenntunardeildar Landbúnaðarháskólans, sem
eru jafnframt umsjónarmenn garðyrkjuþáttarins Í einum grænum í sjón-
varpinu. Þátttökugjald á námskeiðið er 7.000 krónur en 10.000 krónur ef
hjón skrá sig saman.
Skráning fer fram í gegnum netfangið, mhh@lbhi.is eða í síma 433 5305.
45 nemendur eru í fullu námi hjá Hringsjá og margir á námskeiðum.
Ræktun sumarbústaðalóða
NÁMSKEIÐ Á REYKJUM 4. JÚNÍ.
Hver á sér ekki draum um að geta flogið? Svifið um loftin blá
eins og fugl að eigin vali, hlegið að fólki á jörðu niðri og spyrnt
sér í skýin? Sá draumur þarf ekki að vera svo
fjarri lagi nú þegar Fisfélag Reykjavíkur stendur
fyrir námsskeiðum þar sem konur og karlar á
öllum aldri geta reynt sig við svifflug. Árni
Gunnarsson smitaðist af flugbakteríunni þegar
hann var lítill og hefur stundað svifflug síðan
1978. „Við kennum „paragliding“ flug sem á
íslensku heitir svifvængjaflug.
Kennslan fer fram á jörðinni því að það er
svolítil kúnst að ná vængjunum á loft og
stjórna þeim. Námskeiðin eru allt í allt 10
dagar, er ýmist kennt á kvöldin eða daginn
um helgar. Að loknu námskeiði er flogið
nokkur renniflug ofan af fjalli.“ Árni segir ekki
líkamlega erfitt að stjórna svifvængjum og að
þeir séu ekki þungir. „Þetta er íþrótt bæði fyrir
konur og karla og vængirnir eru af ýmsum stærðum eftir lík-
amsbyggingu hvers og eins.“
En hversu hratt er hægt að fljúga? „Hægt er að ná 20-50 kíló-
metra hraða á klukkustund ef uppstreymið í fjöllunum er gott.
Lengst hafa menn flogið 50 kílómetra á Íslandi.
„ Árni segir að yfir 50 manns stunda svifflug á
Íslandi enda séu aðstæður til þess einkar góðar
hérlendis.“ Hér eru engin tré að þvælast fyrir
þegar fólk þarf að lenda og landið er svo opið
að hér er lítið um sviptivinda. Engin slys hafa
orðið á mönnum við iðkun þessarar íþróttar.“
Tvö námskeið eru fyrirhuguð og er tólf þátttak-
enda hámark á hvoru. „Það fyrra byrjar 15. maí
og það síðara þann 25. Námskeiðið er bæði
bóklegt og verklegt og kostar fimmtíu þúsund
krónur. Fólki er séð fyrir vængjum og nægir að
mæta bara með góða skapið,“ segir Árni.
Þeir sem vilja kynna sér málið nánar ættu að
drífa sig á kynningarfund fimmtudaginn 5.maí
klukkan 19:30 í Grund, húsi Fisfélags Reykjavík-
ur við Hafravatnsveg. Allar nánari upplýsingar má finna á
www.fisflug.is.
Fljúga skal svifdrekinn
FISFÉLAG REYKJAVÍKUR KYNNIR NÁMSKEIÐ SÍN Á OPNUM KYNNINGARFUNDI Á MORGUN.
Draumurinn um flugið er ekki
eins fjarri og margir halda enda
eru rúmlega fimmtíu Íslendingar
forfallnir svifflugsáhugamenn.
f2809060
4 _ m a g a -
dans_51.jpg