Fréttablaðið - 04.05.2005, Síða 43
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2005 15
H É Ð A N O G Þ A Ð A N
Sími 535 9000
www.bilanaust.is
Manista
Handþvottaefni sem
fagmenn nota: Gert úr
náttúrulegum efnum;
öflugt en fer vel með
húðina.
Hand-
þvottakre
mið sem
fagmenni
rnir
nota!
Barrier Cream
Ver hendur/húð gegn
óhreinindum og áhrifum
ýmissa efna.
Screen Wash
Fyrir rúðu-
sprautuna allan
ársins hring:
Frostþolið efni
sem hreinsar,
hrindir vatni frá
og gerir gler
hálla. Inniheldur
ekki tréspíra
(metanól).
Injector Magic
Hellt í bensín-
geyminn. Losar
óhreinindi, heldur
innsprautukerfi
bensínvélar hreinu,
eyðir raka; tryggir
eðlilega úðun og
endingu spíssa.
Árangur:
Betri gangur,
hámarksafl og
sparneytni.
Dot 4
Syntetískur
bremsuvökvi
sem flestir bíla-
framleiðendur
mæla með fyrir
öll bremsu-
kerfi, með eða
án ABS.
Superdiesel
Bætiefna-
bætt olía:
Fyrir meðal-
stórar og
stærri
dísilvélar.
Þykktar-
flokkun:
15w40.
Eurolite
Hálf syntetisk
olía: fyrir
bensín- og
dísilvélar.
Hár gæða-
staðall.
Þykktar-
flokkun:
10w40.
Long Life
100%
syntetisk há-
gæða olía.
t.d. fyrir
Audi, Skoda,
Golf ofl.
Nýjustu
staðlar.
Þykktar-
flokkun:
0w30.
GEFA SÍMSTÖÐ Eva Magnúsdóttir, upplýs-
ingafulltrúi Símans og Björn Ástmundsson,
forstjóri Reykjalundar.
Síminn styrk-
ir Reykjalund
Síminn hefur ákveðið að færa
Reykjalundi símstöð sem nýtast
mun í starfsemi stofnunarinnar.
Um er að ræða símstöð með öll-
um innri búnaði, skiptiborðum og
150 símtækjum með skjám fyrir
alla notendur. Stöðin er nokkurra
ára en tæknilega af nýjustu gerð,
hún er með beinu innvali til
hvers notanda, talhólfum og
sjálfvirkri svörun. Síminn fellir
niður stofngjöld en Reykjalund-
ur mun greiða fyrir uppsetningu
búnaðarins og þær óverulegu
breytingar sem gera þarf á lögn-
um. - dh
NBA-deildin hefur sektað Jeff
Van Gundy, þjálfara Houston
Rockets, um 100 þúsund dali
vegna ummæla sem hann lét
falla um dómgæslu í leik gegn
Dallas Mavericks í úrslitakeppn-
inni. Van Gundy er afar ósáttur
með þá meðferð sem hinn kín-
verski miðherji Houston, Yao
Ming, fær frá andstæðingum sín-
um. Þjálfarinn hefur staðfest að
ónefndur NBA-dómari hafi
hringt í sig og sagt honum að
dómurum væri ráðlagt að fylgj-
ast sérstaklega með Ming. Van
Gundy telur að Mark Cuban, eig-
andi Dallas, hafi komið því til
leiðar að dómarar fylgdust sér-
staklega með Ming.
Cuban er svo sem ekkert lamb
að leika sér við en hann hefur
verið sektaður af NBA um eina
milljón dali fyrir ýmis ummæli
og uppátæki. - eþa
Metsekt:
NBA-þjálfari í klandri
HÁ SEKT Kínverski miðherjinn Yao
Ming, sem mældist 2,28 metrar við síð-
ustu hæðarmælingu, fær ekki sann-
gjarna meðferð hjá NBA-dómurum að
sögn Jeff Van Gundys, þjálfara Houston
Rockets. NBA-deildin hefur sektað Van
Gundy um 100.000 dali.
Sjá ofsjónum yfir
erlendu vinnuafli
Kemur í veg fyrir að verkefni og fyrirtæki fari
úr landi.
Samtök atvinnulífsins hafa margítrekað farið fram á einföldun á að-
gengi erlendra starfsmanna til landsins og meðal annars lagt til, að
dvalarleyfi og atvinnuleyfi verði veitt af sömu stofnun. Þetta kom
fram í máli Ingimundar Sigurpálssonar, formanns Samtaka atvinnu-
lífins á aðalfundi þeirra í gær. Hann sagði mikilvægt að erlent starfs-
fólk ætti greiða leið hingað til lands. „Svo virðist á stundum, að séð
sé ofsjónum yfir því að erlent starfsfólk fái hér störf. Í því sambandi
er vert að hafa í huga, að oft kann það að vera betra en að verkefni
fari úr landi og þá jafnvel fyrirtæki með. Aðgangur að stærri vinnu-
markaði getur því varið störf og áframhaldandi tilvist fyrirtækja hér
á landi,“ sagði Ingimundur. - dh
ROK Í REYKJANESBÆ Gunnar Oddsson,
umboðsmaður TM í Reykjanesbæ, Árni Sig-
fússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar og Ósk-
ar Magnússon, forstjóri TM.
TM tryggir
Reykjanesbæ
Forsvarsmenn Reykjanesbæjar
og Tryggingamiðstöðvarinnar
hafa undirritað samkomulag um
að TM veiti Reykjanesbæ víð-
tæka vátryggingarvernd sem
sniðin er að þörfum bæjarfélags-
ins. Reykjaneshöfn er einnig að-
ili að samkomulaginu.
Árni Sigfússon segir að með
útboði á vátryggingum bæjarins
og Reykjaneshafnar og samn-
ingnum við TM náist fram veru-
legur sparnaður.
Óskar Magnússon fagnar því
að Reykjanesbær skuli hafa
ákveðið að ganga til samninga
við TM. - dh